Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Á mynd eru í aftari röð: Karsten Uhd Plauborg, Felix Pahl og Anna-Lena Jeppsson frá CIP og Ríkarður Ríkarðsson frá Landsvirkjun. Í fremri röð: Hörður Arnarson frá Landsvirkjun, Jón B. Hákonarson frá Fjarðabyggð, Kristín Linda Árnadóttir frá Landsvirkjun, Jón Már Jónsson frá Síldarvinnslunni og Guðbjörg Rist frá Atmonia.
Á mynd eru í aftari röð: Karsten Uhd Plauborg, Felix Pahl og Anna-Lena Jeppsson frá CIP og Ríkarður Ríkarðsson frá Landsvirkjun. Í fremri röð: Hörður Arnarson frá Landsvirkjun, Jón B. Hákonarson frá Fjarðabyggð, Kristín Linda Árnadóttir frá Landsvirkjun, Jón Már Jónsson frá Síldarvinnslunni og Guðbjörg Rist frá Atmonia.
Fréttir 1. nóvember 2021

Þrjú fyrirtæki munu taka þátt í þróunarferli græns orkugarðs á Reyðarfirði

Höfundur: Hörður Kristjánsson

Viljayfirlýsing um verkefni sem gæti hraðað orkuskiptum á Íslandi með uppbyggingu á grænum orkugarði á Reyðarfirði var undirrituð 12. október síðastliðinn. Landsvirkjun, Copenhagen Infrastructure Partners (CIP) og sveitarfélagið Fjarðabyggð hafa unnið að því undanfarið að kanna kosti þess að þróa slíkan orkugarð og nú hafa fyrirtækin Atmonia, Síldarvinnslan og Laxar bæst við.

Markmiðið er að meta hvernig framleiðsla á grænu rafeldsneyti getur greitt fyrir orkuskiptum í sjávarútvegi, sjóflutningum og landflutningum. Því til viðbótar verða kannaðir möguleikar á framleiðslu á kolefnislausum áburði auk hagnýtingar súrefnis, sem er hliðarafurð rafeldsneytisframleiðslu, í landeldi á fiski.

Þá verða kostir þess að nýta glatvarma frá mögulegri rafeldsneytisframleiðslu til húshitunar á Reyðarfirði, sem er einn fárra þéttbýlisstaða á landinu sem ekki er með hitaveitu, kannaðir með Hitaveitu Fjarðabyggðar. Aðkoma Atmonia, Síldarvinnslunnar og Laxa er mikilvægur áfangi í þeirri vinnu sem nú stendur yfir við þróun og greiningu á tækifærum sem felast í uppbyggingu græns orkugarðs á Reyðarfirði. Fleiri fyrirtæki hafa lýst yfir áhuga á aðkomu að verkefninu og standa yfir viðræður við þau, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsvirkjun.

Landsvirkjun reynir að mæta áskorunum vegna loftslagsbreytinga

„Landsvirkjun er í stöðugri leit að leiðum til að mæta áskorunum vegna loftslagsbreytinga, bæði hér heima og á alþjóðavísu. Grænn orkugarður á Reyðarfirði getur skapað bæði verðmæti og þekkingu samhliða því að ýta undir orkuskipti, bætta orkunýtingu og minni losun kolefnis.

Samstarfið við CIP og framlag Fjarðabyggðar, Atmonia, Síldarvinnslunnar og Laxa getur hjálpað okkur að ná þessum markmiðum,“ segir Ríkarður Ríkarðsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaþróunar og nýsköpunar hjá Landsvirkjun.

Fjarðabyggð miðstöð verðmæta- og þekkingarsköpunar

„Við erum sannfærð um að grænn orkugarður á Reyðarfirði getur orðið miðstöð verðmæta- og þekkingarsköpunar sem gagnast mun samfélaginu til lengri tíma og hjálpa til í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Það er líka mjög spennandi að hugsa til þess möguleika að Reyðarfjörður muni loksins geta fengið hitaveitu vegna þess starfs sem hér mun fara fram,“ segir Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar.

Copenhagen Infrastructure Partners (CIP) vill greiða fyrir grænum orkuskiptum

„Verkefni eins og þetta á Reyðarfirði skiptir sköpum fyrir ríki og atvinnugreinar sem vilja taka næsta stóra skrefið til að draga úr kolefnislosun og ná markmiðum Parísarsamkomulagsins. Markmið okkar með verkefninu á Reyðarfirði er að greiða fyrir grænum orkuskiptum á Íslandi og í Norður-Evrópu og bæta orkunýtingu með því að nýta kosti hringrásarhagkerfisins.
Það er mikilvægt fyrir okkur að vinna með jafn öflugum aðila og Landsvirkjun og starfa með leiðandi fyrirtækjum í sjávarútvegi, fiskeldi, vöruflutningum og nýsköpun á Íslandi við að leysa úr læðingi þau tækifæri sem felast í grænu rafeldsneyti, grænum áburði og verðmætasköpun úr hliðarafurðum rafeldsneytis-framleiðslunnar,“ segir Felix Pahl, einn meðeigenda CIP.

Atmonia spennt fyrir Reyðarfirði

„Meginmarkmið Atmonia er að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda með nýrri tækni á sviði ammoníaks- og nítratframleiðslu og passar þátttaka í græna orkugarðinum fullkomlega inn í þá vegferð.

Er tækni fyrirtækisins bæði hagkvæm og umhverfisvæn nýjung og erum við mjög spennt yfir því að Reyðarfjörður verði með fyrstu stöðunum þar sem okkar tækni verður beitt í baráttunni gegn hlýnun jarðar,“ segir Guðbjörg Rist, framkvæmdastjóri Atmonia.

Laxar að taka þátt í mótun á grænum orkugarði

„Sjálfbærni og ábyrgð eru meðal kjarnagilda okkar og við erum því hæstánægð að taka þátt í mótun á grænum orkugarði.

Að nýta verðmætar hliðarafurðir eins og súrefni og nota þær til að skapa enn frekari verðmæti verður spennandi áskorun fyrir okkur og samstarfsfyrirtæki okkar,“ segir Jens Garðar Helgason, framkvæmdastjóri Laxa.

Síldarvinnslan segri verkefnið gera orkuskipti fýsilegri

„Við leggjum áherslu á sjálfbæra nýtingu sjávarauðlindarinnar, þar sem leitast er við að nota nýjustu tækni sem völ er á til veiða og vinnslu. Við erum sífellt að leita leiða til að minnka kolefnisfótspor okkar, meðal annars með því að skipta út jarðefnaeldsneyti fyrir sjálfbærari orkugjafa. Þetta verkefni mun gera orkuskipti fýsilegri og verður vonandi til þess að framtíðin verði grænni en ella,“ segir Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar.

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...