Í Þorlákshöfn starfar fyrirtækið First Water sem elur lax í lokuðum kerjum og nýtir til þess tæran sjó úr borholum. Fyrsti áfangi af sex er langt kominn og er fullvöxnum laxi reglulega slátrað. Ísland nýtur forskots þegar kemur að aðgengi að verðmætum mörkuðum í Bandaríkjunum og Kína.
Í Þorlákshöfn starfar fyrirtækið First Water sem elur lax í lokuðum kerjum og nýtir til þess tæran sjó úr borholum. Fyrsti áfangi af sex er langt kominn og er fullvöxnum laxi reglulega slátrað. Ísland nýtur forskots þegar kemur að aðgengi að verðmætum mörkuðum í Bandaríkjunum og Kína.
Mynd / ál
Fréttaskýring 9. nóvember 2026

Stefna á 60 þúsund tonna ársframleiðslu á laxi

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Í Þorlákshöfn rís landeldisstöðin First Water og er fyrsti áfangi af sex langt kominn. Að framkvæmdum loknum er áætlað að árleg framleiðslugeta séu 60 þúsund tonn af laxi á ári. Miðað við áætlanir annarra fyrirtækja sem eru í uppbyggingu á landeldi verður First Water stærsta landeldisstöð Íslands.

Framkvæmdir hófust árið 2021 og upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir að þeim yrði lokið árið 2031 og á staðnum yrðu samtals 164 ker fyrir áframeldi á laxi á lóð sem er um 1,3 kílómetra löng, eða rúmlega 50 hektarar. Í samtali segir Stefán Páll Ágústsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, að líklegt sé að framkvæmdir dragist eitthvað miðað við upphaflegar áætlanir.

Stefán Páll Ágústsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs First Water, stendur hér við framkvæmdasvæði fyrirtækisins í Þorlákshöfn. Miðað við áætlanir stefnir í að First Water verði stærsta landeldisstöð Íslands þegar framkvæmdir klárast með framleiðslugetu upp á 60 þúsund tonn af slægðum laxi á ári. Núna eru 20 fiskeldisker á svæðinu komin í notkun, en áætlanir gera ráð fyrir 164 tönkum af ólíkum stærðum á lóð sem er 50 hektarar. Myndir / ál

Á lokafasa fyrsta áfanga

„Árið 2021 byrjuðum við á því að bora sjóholur, leggja lagnir og byggja svokallaðan vatnsmiðlunarturn,“ segir Stefán. „Fyrsta karið fyrir áframeldi var tekið í gagnið í apríl 2022 og um sumarið vorum við komnir með fjögur lítil og krúttleg ker sem eru 620 rúmmetrar hvert. Síðan þá erum við búnir að bæta við átta 1.440 rúmetra kerjum og öðrum átta 3.500 rúmmetra kerjum. Síðasta skrefið í að klára fyrsta áfanga felst í því að byggja átta 5.500 rúmmetra ker sem við erum byrjaðir að reisa.

Við gáfum út framkvæmdaáætlun í september og ef við fylgjum henni verða kerin tilbúin eftir eitt og hálft ár. Enn sem komið er er ekkert sem gefur til kynna að tafir verði á því. Þegar þessi kör eru komin í notkun verðum við komnir upp í þá 10.000 tonna framleiðslu sem fyrsti fasi á að standa undir. Langtímamarkmiðið er ársframleiðsla upp á 60 þúsund tonn þegar allir sex áfangarnir verða búnir. Hversu hratt við byggjum ræðst af rekstrarárangri, fjármögnun, leyfum og stöðu afurðarinnar á markaði. Við erum búnir að fjármagna fyrsta áfanga að fullu, en hver áfangi er fjármagnaður fyrir sig. Áætlanir okkar gera ráð fyrir að fyrirtækið skili jákvæðri EBITDA þegar fyrsti áfangi er kominn í fulla notkun.

Stærstu eigendur First Water eru Stoðir með 33 prósent, en það er stærsta fjárfestingafélag landsins í einkaeigu. Upphafsmenn First Water eru sex aðilar sem tóku sig saman utan um þessa hugmynd árið 2017 og eru flestir tengdir fyrirtækinu enn þá. Stoðir komu inn í þetta tiltölulega snemma, en þegar verkefnið var kynnt fyrir þeim sáu þeir mikla möguleika.“

Ísland verður með einhver prósent af heimsframleiðslu

„Heildarframleiðsla á slægðum eldislaxi í heiminum árið 2025 var í kringum 2.850.000 tonn,“ segir Stefán. „Miðað við það framleiðslumagn væri First Water með rúm tvö prósent af heimsframleiðslunni með fullbyggða stöð. Þegar öll landeldisverkefnin sem eru komin á legg á Íslandi, sem eru þá við, Samherji, Thor og Laxey, ná fullum afköstum, verða fyrirtækin saman með fimm til sex prósent af heimsmarkaðnum miðað við framleiðsluna 2025. Þetta hlutfall á hins vegar eftir að breytast því að við vitum að heimsframleiðslan á eftir að aukast þar sem eftirspurnin á laxi hefur vaxið umfram framboð í talsverðan tíma. Þá eru fleiri íslensk landeldisverkefni í burðarliðnum þannig að greinin getur stækkað enn meira.

Þegar við tölum um landeldi í heild sinni þá þýðir velgengni hjá einum velgengni hjá öðrum. Iðnaðurinn er enn þá það nýr að hann er ekki búinn að ryðja sér alveg til rúms og hver einasta árangurssaga er mikilvæg fyrir alla. Þannig fæst meiri tiltrú markaðarins og lánveitenda á svona verkefnum.

Við seljum núna fyrst og fremst til Evrópu og Bandaríkjanna. Við njótum þess, eins og aðrir framleiðendur á Íslandi, að við erum sólarhring nær Bandaríkjunum með skipi en Noregur. Við erum jafnframt að hasla okkur völl í Asíu, en ég geri ráð fyrir að laxinum verði flogið þangað frá Evrópu. Núna er álfan stútfull af Temu-flugvélum sem fljúga tómar til baka, þannig að það er nóg laust pláss sem mun ekki bæta við kolefnissporið af vörunni.“

Vatnið í fiskeldiskerjunum er borholusjór sem er afar tær eftir að hafa síast í gegnum hraun. Hægt er að stjórna lýsingunni, straumnum, súrefnismagni og fleiru í kerjunum til þess að skapa sem bestar aðstæður fyrir fiskinn. Um 1.220.000 fiskar eru núna í kerjum First Water í Þorlákshöfn, en sú tala mun margfaldast eftir því sem verkefninu vindur fram. Fyrirtækið rekur jafnframt seiðaeldi í Hveragerði og fiskvinnslu í Þorlákshöfn.

Fiskvinnsla í Þorlákshöfn

„Við erum með seiðastöð í Hveragerði þar sem við ölum öll okkar seiði og tökum hópana okkar inn sem 100 gramma seiði í minnstu kerin hérna í Þorlákshöfn,“ segir Stefán. „Yfirleitt flytjum við allan hópinn í einu milli kerja eftir því sem hann stækkar til þess að lágmarka allt inngrip. Í hverjum hópi eru um 88 þúsund einstaklingar í byrjun og eru meira en 85 þúsund af þeim sem ná fullri stærð.

Við slátruðum fyrst laxi árið 2023 og erum við með sláturaðstöðu í tímabundinni aðstöðu á svæðinu þar sem fiskurinn er aflífaður og blóðgaður. Þaðan fer hann í kæli- og flutningstanka sem við keyrum með í vinnsluna okkar í Þorlákshöfn sem við tókum í notkun á síðasta ári. Lokatakmarkið er að hafa alla þessa starfsemi hér á svæðinu. Hvenær það raungerist á eftir að koma í ljós.

Fullvaxinn fiskur hjá okkur er í kringum sex kíló, eða fimm kíló eftir slægingu, og vorum við meðal fyrstu landeldisfyrirtækjanna á heimsvísu að ná þeim árangri. Kaupendur telja sig fá betri nýtingu á fiski sem er fimm kíló slægður, enda haus, sporður og beinagarður alltaf einhver hluti af þessu. Um leið og búið er að flaka fiskinn styttist tíminn sem þú getur geymt hann ferskan og er okkar söluvara því slægður fiskur með haus, sem er oft kallaður „Head On Gutted“ eða HOG.

Í dag erum við með 1.220.000 fiska í fulleldisstöðinni og er heildarlífmassinn þessa stundina 2.160 tonn. Heildarframleiðslan á slátruðum fiski í ár verður á bilinu 2.500 til 2.700 tonn, en á meðan fyrsti áfangi er ókláraður höfum við svigrúm til að flytja lífmassa yfir áramót til þess að nýta okkur breytilegt verð á laxi. Verðið rís skarpt í lok desember og í janúar og helst hátt fram í apríl eða maí á meðan verðið er í lágmarki í ágúst og september.“

Landeldi flóttahelt

„Ein af sérstöðunni sem landeldi hefur umfram sjókvíaeldi er fyrirsjáanleg framleiðsla í hverri viku allt árið,“ segir Stefán. „Verslanir geta því treyst því að við getum alltaf fyllt hillurýmið hjá þeim. Annar kostur við landeldi er að þetta er algjörlega flóttahelt þegar fiskurinn er kominn í áframeldi. Við erum með fimmfaldar varnir, en fyrst er mikil vörn í að vera með fiskinn í steyptu keri. Þar á eftir er vörn í fráflæðiboxi, síðan eru ristar yfir tromlusíurnar í fráveitustöðinni, þá tromlusíurnar sjálfar og að lokum ristar á eftir henni. Við höfum sett dauðan fisk í fráveitukerfið okkar og hann kemst ekki lengra en að ristunum fyrir framan tromlusíurnar. Ef svo ólíklega vill til að tankar rofna er dágóður spotti héðan niður í sjó. 

Í landeldi þurfum við ekki að glíma við laxalús og í kerjunum er lítið lífrænt álag, en vatnið kemur mjög hreint upp úr borholunum sem eru 80 til 100 metra djúpar. Því þurfum við ekki að nota nein sýklalyf eða eiturefni. 95 til 97 prósent af fiskinum nær hæsta gæðaflokki og afföllin eru í kringum þrjú prósent. Undanfarin ár og áratugi hafa afföllin verið í kringum 15 til 18 prósent í sjókvíaeldi þó svo að það sé breytilegt milli ára.

Við endurnýtum í kringum tvo þriðju af sjónum í karinu með því að setja það í gegnum afloftara og síur. Síurnar grípa föst efni og óhreinindi í vatninu og náum við út koltvísýringi í lofttæmi. Við erum þrjá tíma að endurnýja allt vatn sem þýðir að ef þú kemur að kari klukkan eitt þá er búið að skipta út öllu nýju og endurunnu vatni í karinu klukkan fjögur.“

Fyrirsjáanleiki skortir hjá hinu opinbera

„Við erum að knýja á um lagasetninu um landeldi, en regluverkið og lagaumhverfið þarf að taka mið af því hvernig reksturinn fer fram og við hvaða aðstæður,“ segir Stefán. „Landeldi fylgja áskoranir sem snúa að vatnstöku, raforkuöryggi, áreiðanleika búnaðar og annað slíkt á meðan við getum betur stýrt og vaktað marga þætti eldisumhverfisins í samanburði við fiskeldi í sjó.

Núna eru stjórnvöld búin að leggja fram frumvarp um lagareldi sem nær yfir allt fiskeldi, bæði á landi og í sjó og sá hluti frumvarpsins sem snýr að landeldi er mjög lítill. Rekstrarumhverfi þessara starfsgreina er ansi ólíkt og þess vegna teljum við skynsamlegt að aðskilja lögin eftir eðli eldisins. Við erum engir andstæðingar sjókvíaeldis en það þarf skýrar leikreglur fyrir landeldi.

Þegar verið er að byggja upp og fjárfesta í nýrri atvinnugrein þarf að vera fyrirsjáanlegt regluumhverfi, sérstaklega varðandi útgáfu leyfa, hvernig eftirlit fer fram og fleira. Við erum ekki að fara fram á sérmeðferð, en til þess að fá að borðinu fjárfesta og lánveitendur þurfa þessi atriði að vera skýr. Stjórnvöld ættu ekki að þurfa langan tíma til að semja heildarlög um landeldi, því að þau atriði sem almenningur og hið opinbera hefur mestar áhyggjur af í fiskeldi almennt eru fiskheldni og flóttavarnir – og það eru ekki vandamál í þessari starfsgrein. Að sama skapi er mengunarhætta mun minni og fráveituvatnið er hreinsað sem gefur okkur ný verðmæti, eins og áburð eða orku.“ 

Verðmæti í mykjunni

„Ef við tölum um hliðarstrauma eru það annars vegar slóg í vinnslu og hins vegar fiskeldismykja sem fellur til í tönkunum og hægt er að sía frá,“ segir Stefán. „Mykjan er uppfull af næringarefnum sem er hægt að fanga og nýta. Við tökum þátt í verkefni sem heitir Terraforming Life þar sem við erum að reyna að þróa lausnir til þess að þróa lífrænan áburð og lífgas. Fiskeldismykjuna er hentugt að nýta með annarri búfjármykju, eins og af kjúklingabúum og svínabúum – nauta- og fjárbúum jafnvel líka. Þetta þarf hins vegar að gerast í einhverju stærra samstarfi og höfum við undirritað viljayfirlýsingar um samstarf við önnur landeldisfyrirtæki. Að þessu koma meðal annars Ölfus Cluster, Bændasamtökin og Orkídea.

Það sem við síum frá núna er skráð og samþykkt sem blautur áburður sem við dreifum á skógræktarsvæði sem heitir Þorláksskógar. Við erum ekki enn þá komnir með innviðina til þess að koma allri mykjunni í farveg, en við sjáum fyrir okkur að fyrst og fremst verði þetta nýtt sem áburður.“

Stefna á 60 þúsund tonna ársframleiðslu á laxi
Fréttaskýring 9. nóvember 2026

Stefna á 60 þúsund tonna ársframleiðslu á laxi

Í Þorlákshöfn rís landeldisstöðin First Water og er fyrsti áfangi af sex langt k...

Sýklalyfjaónæmar bakteríur í svínum
Fréttaskýring 5. nóvember 2026

Sýklalyfjaónæmar bakteríur í svínum

Búfjártengdur meticillín ónæmur Staphylococcus aureus (MÓSA), sýklalyfjaónæm bak...

Eitt stærsta landeldi heims  í Vestmannaeyjum
Fréttaskýring 26. október 2026

Eitt stærsta landeldi heims í Vestmannaeyjum

Uppbygging fiskeldisstöðvarinnar Laxeyjar í Vestmannaeyjum er komin langt á veg,...

Kolefniseiningar úr endurheimt votlendis og nýskógrækt
Fréttaskýring 22. október 2026

Kolefniseiningar úr endurheimt votlendis og nýskógrækt

Kolefnismarkaðir eru af tvennum toga; lögbundnir og valkvæðir. Á lögbundnum mörk...

Ábyrgð og tækifæri bænda í landnotkun
Fréttaskýring 14. október 2026

Ábyrgð og tækifæri bænda í landnotkun

Bráðabirgðaniðurstöður úr losunarbókhaldi Íslands fyrir síðasta ár voru kynntar ...

Eitt sláturhús selur alvöru vambir
Fréttaskýring 9. október 2026

Eitt sláturhús selur alvöru vambir

Aðgengi fólks að alvöru vömbum til sláturgerðar hefur minnkað á undanförnum árum...

Hvaða flaska er best fyrir umhverfið?
Fréttaskýring 28. september 2026

Hvaða flaska er best fyrir umhverfið?

Umbúðir vega gjarnan þungt þegar kolefnisspor matar- og drykkjarvara er skoðað. ...

Fyrsti innflutningur á frjóvguðum laxahrognum í áratugi
Fréttaskýring 24. september 2026

Fyrsti innflutningur á frjóvguðum laxahrognum í áratugi

Nokkur fiskeldisfyrirtæki hafa óskað eftir leyfi til innflutnings á frjóvguðum l...