Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?
Líf og starf 21. október 2026

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Nú í blessuðu haustrokinu vefja margir sig treflum – eðlilega og umhugsunarlaust, en gera sér e.t.v. ekki grein fyrir því að saga þessa nytjahlutar teygir rætur sínar þúsundir ára aftur í tímann. Trefillinn hefur nefnilega ferðast í gegnum ólík tímabil og menningu, þá með mismunandi hlutverk og samfélagsstöðu, en jafnframt gegnt föstu hlutverki í hvert sinn.

Í dag á trefillinn fastan stað í fataskáp landsmanna, en á heimsvísu, svona í upphafi, voru treflar ekki notaðir til að verjast kulda, heldur þjónuðu hagnýtum tilgangi í heitari loftslögum – nú eða voru tákn um vald. Heimildir sýna til dæmis að Nefertiti, drottning Egyptalands, klæddist fínofnum höfuðtrefli undir krúnu sinni í kringum árið 1350 f. Krist og í hinu forna Rómaveldi bundu karlmenn klút um hálsinn (eða mittið reyndar) til þess að þerra svita af andliti og hálsi á heitum dögum. Silki og bómullarklútar auðkenndu tign og stöðu kínverskra hermanna á árunum 230 f. Krist og svona mætti lengi telja.

Þegar leið á aldirnar breyttist hlutverk trefilsins í Evrópu. Á meðan almúginn notaði heldur þykk og grófunnin sjöl til að vefja um líkamann sér til skjóls, fremur en fínofnari klæði, báru hermenn þynnri klúta, eða trefla undir brynjum sínum til að koma í veg fyrir nuddsár. Það var svo á nítjándu öld, valdatíma Viktoríu drottningar í Bretlandi, að trefillinn varð tákn um lúxus og efnisleg gæði og í kjölfarið, í upphafi tuttugustu aldar, eða árið 1937, að franska lúxusmerkið Hermés kynnti sinn fyrsta silkiklút til leiks. Slíkur fylgihlutur varð hæstmóðins.

Einn þekktasti trefill, eða mynstur sem fellur aldrei úr hásæti sínu, er án efa köflóttur kasmírtrefill tískurisans Burberry. Það var árið 1967 sem fyrirtækið ákvað að vefa skyldi mynstrið beint á trefla – og hinn heimsþekkti kasmírtrefill með köflunum varð formlega fastur hluti af línunni í kringum árið 1970.

Saga og uppruni trefla á Íslandi er nátengd lífsbaráttu þjóðarinnar í köldu norrænu loftslagi, íslensku ullinni og kemur jafnvel við sögu þjóðbúninga.

Hjá Þjóðminjasafni Íslands má finna útskorinn viðarstokk frá því í kringum árið 1700, sem ber heitið treflastokkur og hafði að geyma hina ýmsa klúta og vefnað. Segir í lýsingu: „Orðið trefill hafði áður nokkuð víðari merkingu en almennt í dag. Trefill gat átt við hvers kyns klút og þótt algengast væri að það ætti við hálsklút þá virðist það jafnframt hafa verið eitt heiti hinna svonefndu trafa; hvítra línklúta sem notaðir voru til að vefja krókfaldinn, þ.e. höfuðbúnaðinn við klæðnað kvenna á Íslandi á bæði 17. og 18. öld.“

Kemur fram að karlmenn hafi einnig snemma farið að bera hálsklúta, bæði til að verjast næðingi, en líka sem hluta af sparifatnaði. Hjá konum gegndu prjónaðar hyrnur og sjöl lykilhlutverki í uppruna íslenska trefilsins. Hyrnurnar voru krossaðar yfir brjóstið og bundnar aftan á bak, í senn hversdagslegur vinnufatnaður til að halda hita á baki og hálsi, en oft líka listaverk með fallegum mynstrum. Á 20. öldinni þróaðist flíkin svo smám saman yfir í þá löngu, ferköntuðu útfærslu sem við þekkjum best í dag.

Nú, haustið 2026, þykir trefillinn þungamiðja klæðnaðarins. Móðurskip tískunnar, Vouge, segir frá hvernig hönnuðir nýta trefla – auk silkiklúta – sem hápunkt hvers heildarútlits götufatnaðar.

Annars vegar sjást risastórir treflar, sem virka nánast eins og sjöl eða teppi … en hinir öfgarnir eru silkiklútar sem má hnýta um hálsinn. Mælt er með að vera ekkert að reyna að hnýta treflana en frekar leyfa þeim að liggja lausum yfir axlirnar. Passa sig samt að halda fast í þá í rokinu …

Skylt efni: tíska

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?
Líf og starf 21. október 2026

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?

Nú í blessuðu haustrokinu vefja margir sig treflum – eðlilega og umhugsunarlaust...

Blái hnötturinn á svið
Líf og starf 21. október 2026

Blái hnötturinn á svið

Leikverkið stórfenglega, Blái hnötturinn, fór fyrst á svið árið 2001, en það er ...

Sveppir voru það, heillin ...
Líf og starf 21. október 2026

Sveppir voru það, heillin ...

Sveppatínsla hefur aldrei verið vinsælli á Íslandi en einmitt nú á haustmánuðum,...

Stór byggð fuglahræða við Kópasker
Líf og starf 21. október 2026

Stór byggð fuglahræða við Kópasker

Í æðarvarpinu á Snartarstöðum 2 við Kópasker eru tugir skrautlegra fuglahræða se...

Á 200 ára afmæli Benedikts Gröndal
Líf og starf 20. október 2026

Á 200 ára afmæli Benedikts Gröndal

Þann 6. október árið 1826 fæddist hjónunum Sveinbirni Egilssyni og Helgu Gröndal...

Nemendur læra að taka slátur
Líf og starf 20. október 2026

Nemendur læra að taka slátur

Sláturgerð er kennd einu sinni á hverri haustönn við Hússtjórnarskólann í Reykja...

Gestir ganga glaðir í bústörfin
Líf og starf 19. október 2026

Gestir ganga glaðir í bústörfin

Howell Living History Farm er blómlegt útisafn í New Jersey í Bandaríkjunum. For...

Vísnahornið
Líf og starf 19. október 2026

Vísnahornið

Ingólfur Ómar Ármannsson lýsir eftirleitum af sinni kunnu snilld: