Framleiðsla á þurrkuðu korni er vandasöm en ytri aðstæður eins og veðurfar getur haft mikil áhrif á endanlega afkomu.
Framleiðsla á þurrkuðu korni er vandasöm en ytri aðstæður eins og veðurfar getur haft mikil áhrif á endanlega afkomu.
Mynd / smh
Á faglegum nótum 20. október 2026

Rekstrarhagkvæmni kornræktar á Íslandi með þurrkað korn

Höfundur: Jón Björn Blöndal

– Niðurstöður úr BS-verkefni við Landbúnaðarháskóla Íslands

Íslensk kornrækt getur borið sig en svigrúmið er lítið þegar uppskeran bregst. Framleiðsla á þurrkuðu korni er vandasöm en ytri aðstæður eins og veðurfar getur haft mikil áhrif á endanlega afkomu. Til að hámarka arðsemi af kornrækt þarf að hámarka uppskeru með sem lægstum tilkostnaði.

Afkoma kornræktarinnar hjá stærri kornræktarbúum á Íslandi árið 2025 reiknaðist jákvæð, fyrst og fremst vegna þess að uppskeran var góð. Ræktunarárið 2025 var einstaklega gott og uppskera var með besta móti í öllum landshlutum.

Rannsókn

Höfundur lauk BS-prófi í búvísindum síðastliðið vor en í lokaverkefni gerði hann rannsókn fyrir ræktunarárið 2025 til að kanna rekstrarhagkvæmni kornræktar á Íslandi. BS-ritgerðin ber nafnið Krónur í korni og hana er að finna á vefsíðunni skemman. is. Ellefu íslenskir kornbændur sem rækta meira en 100 tonn af þurrkuðu korni á ári svöruðu umfangsmiklum spurningalista sem innihélt 199 spurningar um fjárfestingu fram- leiðslutækja, kostnaðar- og tekjuliði í kornræktinni á búunum. Út frá þeim gögnum ásamt aflaðra gagna úr erlendum handbókartölum og niður- stöðum erlendra og innlendra rann- sókna var þróað afkomulíkan í Microsoft Excel fyrir íslenska kornrækt.

Mynd 1: Framleiðslukostnaður og tekjur (kr./ha) eftir uppskerumagni á hektara (tonn/ha).

Niðurstöður og umræður

Niðurstöður rannsóknarinnar eru nýjar að nálinni fyrir íslenska kornrækt en margar af þeim styðja fyrri erlendar rannsóknir. Tekjur kr./ ha aukast með auknu uppskerumagni vegna þess að markaðsverðmæti uppskerunnar eykst á hektara en framleiðslutengdur stuðningur eykur vægi og áhrif uppskerumagns á hektara enn frekar. Heildar framleiðslukostnaður kr./ha hækkar með auknu uppskerumagni tonn/ha vegna aukins kostnaðar við kornflutninga, -þurrkun og -geymslu. Á mynd 1 eru tveir svartir punktar á línu tekna og framleiðslukostnaðar kr./ha hjá meðal kornræktarbúi (68 ha) í rannsókninni. Bilið milli þessara punkta er afkoman á hektara sem var 51.113 kr./ha. Miðað við markaðsverð árið 2025 sem var 45 kr/kg kornverð næst núllpunktur við 3,4 tonna (87% þe) uppskeru á hektara þar sem línurnar fyrir framleiðslukostnað og tekjur skerast. Ef uppskeran er minni en 3,4 tonn/ha þá verður afkoman neikvæð. Á myndinni má jafnframt sjá að þegar uppskerumagn er 0 tonn/ha eins og um uppskerubrest væri að ræða, þá reiknar líkanið með að tekjur fáist einungis af hálmsölu og jarðræktarstuðningi sem er samanlagt 90.676 kr./ha. Við slíkar aðstæður er heildar framleiðslukostnaður 224.999 kr./ ha og afkoman yrði því neikvæð um -134.323 kr./ha það árið.

Stærðarhagkvæmni

Niðurstöður rannsóknarinnar gátu ekki gefið til kynna hvernig stærðarhagkvæmni væri háttað á Íslandi. Til að mynda var minnsta búið í gagnasafninu með bæði mestu uppskeruna og hæstu afkomuna á hektara. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa þó vísbendingar um að greinin sé í uppbyggingu og að sum bú séu ekki búin að fjárfesta nóg til skila góðri afkomu og kjörtímafrávik gæti einnig legið þarna á bak við sem étur upp arðsemina hjá sumum búum. Það skilar ekki ávinningi að rækta í fleiri hekturum nema að svigrúm sé fyrir því í tækjakosti og vinnutíma. Mörg dæmi eru um að bændur tapi uppskeru á haustin vegna þess að þreskivél og kornþurrkari afkasta ekki nógu. Erlendar rannsóknir sýna stærðarhagkvæmni, en nánari rannsóknir þarf til svo að álykta megi um eðli stærðarhagkvæmni í kornrækt hér á landi. Þó gögn höfundar (svör bænda) sýni ekki stærðarhagkvæmni þarf það ekki að sanna að hún sé ekki fyrir hendi í kornrækt á Íslandi. Gagnasafn í þessari rannsókn er takmarkandi þáttur til að skýra stærðarhagvæmni og sérstaklega vantar stóra kornræktendur í rannsóknina en slík bú eru fá starfrækt hér á landi. Greinileg stærðarhagvæmni er hins vegar í vélakostnaði.

Mynd 2: Skipting vélakostnaðar (kr./ha) á búum.

Vélakostnaður

Vélakostnaður var stærsti einstaki kostnaðarliðurinn og þar eru einna mestu möguleikarnir til að hagræða. Tekið var tillit til bæði fasts og breytilegs vélakostnaðar fyrir eigin tæki en svo bætist við kostnaður vegna leigu tækja og aðkeypta verktakavinnu fyrir þau bú sem nýta sér slíkt. Niðurstöður sýndu að vélakostnaður á hektara er mjög misjafn milli búa eins og sjá má á mynd 2. Sum bú eru með lágan vélakostnað við eigin tæki en ástæða fyrir því getur verið að mörg ræktunartæki í eigu þessara búa hafi verið vel nýtt bæði í kornrækt og aðra ræktun sem lækkar þá vélakostnað á hektara við notkun á eigin tækjum. Þó má sjá að sum bú sem leigðu tæki og/ eða keyptu verktöku eru með lágan heildar vélakostnað. Það bendir til þess að mikill ávinningur sé hjá sumum búum að leigja tæki eða kaupa verktöku.

Gögnin sýndu að heildar vélakostnaður/ha (kostnaður við eigin tæki, leigu á tækjum og aðkeyptrar verktöku) lækkar að jafnaði eftir því sem búin eru stærri, þ.e. við fleiri ræktaða hektara í kornrækt. Smærri búin eru frekar að leigja tæki og kaupa verktöku, a.m.k. verja þau meiri kostnaði í það að jafnaði en stærri búin. Í rannsókninni voru nokkur bú sem leigja tæki og kaupa verktöku og reiknast með mjög lágan heildar vélakostnað sem gefur vísbendingu um að mikill ávinningur fáist af því, sérstaklega fyrir smærri bú. Vaxtartíminn er stuttur á Íslandi og því leggja bændur mikið kapp á að sá fræi sem fyrst á vorin og uppskera á kjörtíma á haustin. Af þeim ástæðum hafa margir farið þá leið að eiga sín ræktunartæki í stað þess að leigja eða kaupa verktöku. Það eykur vélakostnaðinn en í mörgum tilfellum má búast við að kjörtímakostnaður, það er uppskerutap vegna ótímanlegra aðgerða, sé minni en ella. Aðstæður eru mjög mismunandi milli svæða, hversu góður aðgangur er að leigutækjum og verktöku á háannatíma en jafnframt kom í ljós í rannsókn höfundar að leiguverð tækja er mjög mismunandi milli svæða. Búnaðarfélög og aðrir leigjendur tækja, leigja tæki út á mishagstæðu verði á hektara og framboð af leigutækjum er mismikið milli svæða. Höfundur telur að út frá öfluðum gögnum að draga megi úr vélakostnaði allra búa með því að styrkja stöðu búnaðarfélaga og tilsvarandi tækjaleigufélaga. Styrkja mætti slík tækjaleigufélög með ríkisstuðningi eða ívilnunum og efla samvinnu bænda.

Í ljós kom í rannsókninni að þau bú sem voru með hærri vélakostnað á hektara verja að jafnaði meiri tíma í ræktunar- og uppskerustörf á hektara. Hefðbundin jarðvinnsla, þ.e. plæging og fínvinnsla, er oft algeng fyrir kornrækt. Kostur þeirrar aðferðar er að illgresi og sveppasmit er grafið niður undir plógstrengi strax að vori sem lágmarkar slík smit á vaxtartímanum og minnkar þörf fyrir varnarefni. Lækka má kostnað töluvert með léttari jarðvinnslu og jafnvel má lágmarka kostnaðinn með því að sá beint í akur frá fyrra ári með svokallaðri núllvinnslu (e. No-tillage) en sú aðferð skilar að jafnaði lægri uppskeru og þar með tekjum. Íslenskar rannsóknir hafa sýnt verulega lakari uppskeru með núllvinnslu samanborið við hefðbundna jarðvinnslu en fleiri rannsóknir skortir á hagvæmni núllvinnslu og skertri jarðvinnslu hérlendis. Samkvæmt erlendum rannsóknum mætti þó helst ráðleggja lágmarks eða enga jarðvinnslu þar sem öll bestu ræktunarskilyrði eru að öðru leyti fyrir hendi (sýrustig, framræsla og sáðskipti) og brugðist er við illgresis- og sveppaálagi með varnarefnum. Það jarðvinnslukerfi sem er valið í kornrækt þarf að fara eftir aðstæðum. Mismunandi er milli jarðvegsgerða hvaða jarðvinnsluaðferð er hagkvæmust hverju sinni en einnig hefur áhrif hversu mikið sveppa- og illgresisálagið er og hvort brugðist sé við því. Stundum er óþarfi að plægja sama kornakurinn ár eftir ár. Til dæmis getur verið hagkvæmt að plógherfa eða diskaherfa annað hvert ár eða oftar ef illgresis- og sveppaálag er lítið og brugðist er við með varnarefnum þegar upp koma slík vandamál. Innlendar og erlendar rannsóknir hafa sýnt að með blandaðri jarðvinnslu þar sem plægt er annað hvert ár en léttari jarðvinnsla notuð með plógherfi eða diskaherfi þess á milli megi draga úr kostnaði án þess að minnka uppskeru.

Lokaorð

Rannsóknin sýnir að lykilatriði er að fá sem hæstu uppskeru á hektara sem er á sama tíma með háa rúmþyngd til að kornræktin standi undir sér og skili jafnvel afkomu. Erfitt er að spá fyrir um hvort kornrækt á Íslandi standi undir sér til framtíðar en þar eru margir óvissuþættir í tekju- og kostnaðarliðum sem breytast frá ári til árs, til að mynda tekjuliðum eins og upphæð ríkisstuðnings og markaðsverð á korni og hálmi, jafnframt kostnaðarliðum eins og vaxtastigi, olíuverði og áburðarverði. Miðað við forsendur ræktunarársins 2025 reiknast núllpunktur við 3,4 tonna uppskerumagn á hektara.

Þó svo að ekki hafi greinst stærðarhagkvæmni í afkomu búa, þá greindist stærðarhagkvæmni í vélakostnaði, þ.e.a.s. vélakostnaður lækkar að meðaltali eftir því sem kornræktin er stærri hjá búum. Greinileg stærðarhagkvæmni er í vélakostnaði, fyrst og fremst vegna þess að á stórum búum eru vélar betur nýttar í kornrækt og önnur verk. Smærri bú geta hins vegar verið með lágan vélakostnað ef þau hafa aðgang að hagstæðum leigutækjum og/eða verktöku. Jafnframt má lækka vélakostnað með því að lágmarka jarðvinnslu. Minni jarðvinnsla má þó ekki verða til þess að uppskerumagn eða uppskerugæði rýrist of mikið. Frekari rannsóknir þarf að gera á hagkvæmnismörkum skertrar jarðvinnslu við íslenskar aðstæður.

Höfundur er búvísindamaður.

Skylt efni: kornrækt | LbhÍ

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...