Á 200 ára afmæli Benedikts Gröndal
Þann 6. október árið 1826 fæddist hjónunum Sveinbirni Egilssyni og Helgu Gröndal Benediktsdóttur sonurinn Benedikt. Þau bjuggu þá að Bessastöðum á Álftanesi, í húsum sem stóðu við hlið Bessastaðastofu, og kenndi Sveinbjörn þar við skólann. Árið 1835 fluttu Helga, Sveinbjörn og fjölskylda að Eyvindarstöðum á Álftanesi, en þá jörð hafði Sveinbjörn keypt, og þar voru þau með búskap samhliða kennslu Sveinbjarnar. Þegar skólinn flutti til Reykjavíkur árið 1846 fór Sveinbjörn með honum í bæinn og er þeim tímamótum fagnað um þessar mundir. Sveinbjörn varð fyrsti rektor Reykjavíkurskólans sem í 180 ár hefur starfað í brekkunni austan Lækjargötu. Þar átti Benedikt Sveinbjarnarson Gröndal einnig eftir að kenna og fluttist raunar til landsins í því skyni þjóðhátíðarárið 1874, fullur tilhlökkunar, enda orðinn að eigin sögn leiður á harkinu í Kaupmannahöfn, nýlega kvæntur sér miklu yngri konu, Ingigerði Zoëga, áhyggjufullur yfir að geta ekki séð fyrir henni nema embætti væri fast í hendi. Benedikt hrökklaðist hins vegar úr kennarastarfinu fáeinum árum síðar. Eftir að hafa fengið smjörþefinn af hamingjunni reið ógæfan yfir. Ingigerður dó árið 1881 aðeins 36 ára að aldri, ekki löngu eftir að dóttir þeirra barnung lést, en áður hafði önnur dóttir þeirra horfið héðan úr heimi. Benedikt gat ekki vikið sér undan ágjöfinni. Hann sinnti ekki kennslunni og drakk og var vikið úr starfi með smávægilegri árspensjón til að friða samvisku skólastjórnenda. Örlög föður hans á rektorsstóli voru að sama skapi snautleg. Kominn til Reykjavíkur úr víðsýninu á Álftanesi réð Sveinbjörn ekki við sjálfstæðisþrá nemenda Reykjavíkurskólans né knýjandi þörf þeirra til að fá að þjóra brennivín í Klúbbnum. Þeir hrópuðu hann niður, auðvitað á latínu, svo hann beið siðferðilegan ósigur, sagði af sér embætti eftir að hafa streist við að sitja í því áfram og lést í kjölfarið, farinn að kröftum.
Fimbulkraftar og regingaldrar
Við köllum helstu skáld nítjándu aldar oft þjóðskáld, heiti sem öldin notaði svo sem sjálf um gengna góðyrkjendur: Þeir Stefán Ólafsson, Eggert Ólafsson og Jón Þorláksson voru allir kallaðir þjóðskáld af útgefendum kvæðasafna þeirra á fyrri hluta nítjándu aldar. En þessir kallar eru nú ekki það sem við sjáum nú fyrir okkur þegar þjóðskáldin ber á góma. Þjóðskáldin eru breiðfylking reffilegra karla með ræktarlega barta og óstýrilátar hárgreiðslur sem ýmist virðast bera því vitni að krullujárn hafi verið brúkuð á toppinn eða hárlímsefni notuð til að stífa flottan strút. Þjóðskáldið Matthías Jochumsson er gott dæmi með sitt mikla nef sem hann á að hafa þurft að sveigja til hliðar svo hann gæti drukkið kaffi úr postulínsbolla, uppreista höku og hártrjónu. Hannes Hafstein er annar svona karakter með sitt koníakslegna fas og háleitan svip yfir ræktarlegri mottu en svo er það hann Benedikt Gröndal blessaður, hann var þjóðskáld líka.
Hann var einna fyrstur Íslendinga til að láta taka af sér ljósmynd. Það gerðist árið 1848 á meðan hann var í Kaupmannahöfn í sinni fyrstu staðarlotu sem stóð frá 1842 til 1850. Þar birtist hann sem fúll unglingur með miklar kinnar og hálfsítt hár sem hann greiðir til hliðar eins og rómantískt séní. Þá var hann ekki nema tuttugu og tveggja ára og sótti um þær mundir fyrirlestra í náttúrufræði hjá Japetusi Steenstrup, sem nokkrum árum fyrr hafði fylgt Jónasi Hallgrímssyni í rannsóknarferðir til Íslands en var nú orðinn prófessor í dýrafræði við Kaupmannahafnarháskóla. Benedikt hafði teiknað frá því að hann var barn og var raunar með óstöðvandi teikniáráttu en nú fyrst fékk hann faglega leiðsögn því teikningin var órjúfanlegur hluti af starfi náttúrufræðingsins á þessum tíma og Steenstrup kom Benedikt til náms hjá fugla- og blómamálaranum Johan C.T. Beyer, sem lært hafði kúnstina að draga upp náttúrufyrirbæri og lífverur af föður sínum sem hafði þann höfuðstarfa að teikna myndirnar í hina nafntoguðu blómabók Flora Danica.
Næst sjáum við Benedikt á mynd þar sem hann horfir klipptur og skegglaus og um leið nokkuð djarfur framan í heiminn á mynd tekinni um það leyti að hann var aftur kominn til Hafnar eftir fremur endasleppa dvöl í Reykjavík á árunum 1850 til 1857. Þann tíma segir hann sjálfur hafa verið sín glötuðu ár. Þá vann hann sem skrifari en reyndi sig einnig við að yrkja og skrifa en eyddi löngum stundum við drykkju og spil. Hann meira að segja trúlofaði sig en góðir menn slógu saman í púkk og komu honum úr landi og aftur til Hafnar í von um að hann tæki nú „examen“ en ekki réttist úr fyrir Benedikt þar fyrr en hann komst í ferðalög um Evrópu, tímabil sem reyndist eitt frjóasta skeið ævi hans.
Og svo kom Benedikt sem fyrr segir aftur til Reykjavíkur mitt inn í sótthita fyrstu stórbylgju sjálfstæðisbaráttunnar haustið 1874. Hann hélt áfram að yrkja og skrifa, varð þjóðskáld og var nú kominn í hópinn með Matthíasi og Steingrími og síðar „ungu skáldunum“ Hannesi og þeim öllum sem hann átti enga samleið með og eyddi sífellt púðri í að slæma í og álasa fyrir skort á póetík og andagift. Benedikt var hins vegar síður en svo ósnortinn af sjálfstæðisandanum. Líkt og þjóðskáldin öll orti hann um þjóðfrelsið sem kom sem hlý gola sunnan úr menningarlöndunum og bræddi frera deyfðar og framtaksleysis sem var hið sívinsæla umkvörtunarefni þjóðskáldanna. Á okkar móðgunargjörnu tímum hefði almenningur verið í síuppnámi yfir endalausum brigslum um sofandahátt sinn, en þetta komust skáldin þá upp með og þótti gott. Við þennan söng um frelsið og þíðuna og leysingarnar miklu sem biðu þjóðarinnar inn í blámóðu hins ókomna bætti Benedikt síðan við orðaklungri sem átti að hrífa andann upp úr duftinu og til æðri vídda með hjálp af forskeytum á borð við „regin“, „fimbul“ eða „jörum“. Þar uppi á bláum boga loguðu bjartar stjörnur og norðurljósa fimbulbönd.
Vísindamaðurinn
Benedikt var vakinn og sofinn við að afla sér þekkingar, rannsaka náttúruna og vann stöðugt að því að miðla þeirri þekkingu áfram til íslensks almennings og erlendra vísindamanna. Hann fékk styrk til þess að vinna að miklu verki um náttúru Íslands strax árið eftir heimkomuna 1874 og var meira og minna styrktur af landstjórninni og svo Alþingi til æviloka til að safna náttúrugripum og teikna þá.
Eftir að hann hafði að nokkru jafnað sig eftir andlát Ingigerðar settist hann að í húsi við Vesturgötu sem enn er við hann kennt og var á þessari öld gert upp og fært á nýjan stall við Fischersund og þar sat hann síðustu áratugi ævi sinnar og teiknaði og rýndi í bjöllur og nökkva og þarablöðkur, oft með smásjá, teiknaði og greindi og leitaðist við að festa fingur á því hvaða lífverur lifðu á láði, í lofti og í legi á Íslandi og við Ísland svo hægt væri að vita hvernig náttúra landsins raunverulega væri. Hann hafði kennt nemendum sínum í Reykjavíkurskólanum náttúrufræði og fyrst engin handhæg námsbók var til þá samdi hann eina slíka sem og kennslubók í steinafræði og landafræði. Hann stofnaði ásamt öðrum áhugamönnum um náttúru Íslands Hið íslenska náttúrufræðifélag árið 1889 sem enn starfar, veitti því forstöðu framan af áður en hans viðkvæma lund varð til þess að hann rakst þar á horn og lét af formennsku, og á vegum félagsins kom hann upp náttúrugripasafni í Reykjavík sem hann helgaði krafta sína á tíunda áratug 19. aldar. Safnaði þar gripum og tók á móti gestum fáeinar klukkustundir í viku, síðdegis á sunnudögum, nema þegar sérstakt áhugafólk knúði dyra, til að mynda erlendir gestir og vísindamenn sem komnir voru til að fylgjast með öndum við Mývatn eða voru einfaldlega á lystireisu um norðurhöf.
Á meðan þessu söfnunarstarfi stóð ritaði Benedikt sem fyrr glóandi greinar í blöð og tímarit um málefni sem brunnu á honum, til að mynda hve blöðin væru hræðilegir friðarþjófar sem æstu fólkið og rugluðu það og kæmu inn hjá því alls kyns vitleysu og rugli. Hann gagnrýndi togaraútgerðina fyrir að eyðileggja hafsbotninn og tortíma lífríki sjávar, hann sagði Vesturfaraagentum til syndanna fyrir að „tala landið niður“, eins og nú er komist að orði, og fyrir að hvetja til að fólk flytti burt af landinu. Svo gífuryrtur var hann að Sigfús Eymundsson ljósmyndari, bókaútgefandi, bóksali og Vesturheimsagent, kærði hann fyrir meiðyrði og vann.
Enginn ritaði eins og Benedikt. Greinar hans og bréf eru stundum eins og sjóðandi hver, eins og kraumandi suðupottur hugmynda, gleði og orðaleikja. Hann virtist ráða yfir öllum hugsanlegum blæbrigðum tungumálsins, geta gripið til tilvitnana í fjarskyldustu fræði og skáld á ótal höfuðtungum, ekki síst fornmálunum sem hann stóð alltaf fastur á að væru grundvöllur allrar menntunar og að þeir sem ekki kynnu latínu og forngrísku væru hálfmenntaðir barbarar. Þessi sérstaki og stórhæfileikaríki Álftnesingur sagðist í ævisögu sinni vera að náttúru fúll og einrænn en fannst um leið lítið mál að skrifa vinum sínum bréf sem jafnast á við heilar ritgerðir – aðeins til að segja þeim í andríku máli hve mjög hann væri glaður að þekkja þá.
