Þátttakendur á vinnustofunni í Vallanesi framan við Asparhúsið sem er fyrsta hús á Íslandi sem byggt er alfarið úr íslenskum viði, skógi ræktuðum í Vallanesi.
Þátttakendur á vinnustofunni í Vallanesi framan við Asparhúsið sem er fyrsta hús á Íslandi sem byggt er alfarið úr íslenskum viði, skógi ræktuðum í Vallanesi.
Á faglegum nótum 19. október 2026

Loftslagsvænn landbúnaður – leið til bættra búskaparhátta

Höfundur: Sigurður Torfi Sigurðsson
Sigurður Torfi Sigurðsson.

Verkefnið Loftslagsvænn landbúnaður varð til með samstarfi bænda, Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins, Landgræðslunnar, Skógræktarinnar, (seinna Land og skógur) og ráðneyta á sviði landbúnaðar- og umhverfismála. Markmið verkefnisins er að styðja bændur við að þróa loftslagsvænni og hagkvæmari búskaparhætti. Verkefnið á sér nú þegar nokkurra ára sögu, fyrstu bændurnir hófu þátttöku árið 2020 en síðan þá hafa um 60 bú tekið þátt í verkefninu. Þátttakendur sem eru í verkefninu hafa náð góðum árangri í að minnka kolefnisspor á sínum bújörðum. Helstu áhersluþættir þessara búa í aðgerðaáætlunum eru: 

  • Áburðarnýting og næringarefnastjórnun
  • Orkunotkun og orkusparnaður
  • Jarðvegsheilbrigði og kolefnisbinding
  • Fóðrun og búfjárhald
  • Landnýting og gróðurvernd
  • Sjálfbær rekstur og auðlindanýting

Nú er tækifæri fyrir aðra bændur að feta í þeirra fótspor og gerast þátttakendur í verkefninu. Opnað hefur verið fyrir inntöku nýrra þátttakenda og fer skráning fram á heimasíðu RML.

Fyrir hvað stendur verkefnið

Loftslagsvænn landbúnaður? Samtal og samvinna eru rauður þráður í starfi Loftslagsvæns landbúnaðar. Í verkefninu er lögð áhersla á fræðslu, ráðgjöf og miðlun hagnýtrar þekkingar með það að markmiði að aðstoða bændur við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og auka bindingu kolefnis á jörðum sínum. 

Markmið verkefnisins er:

  • Að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá landbúnaði.
  • Að auka kolefnisbindingu í gróðri og jarðvegi.
  • Að styðja bændur við að bæta búskaparhætti og greina tækifæri á að hagræða í búrekstri.
  • Að efla sjálfbærni og auðlindanýtingu í íslenskum landbúnaði.
  • Að skapa vettvang fyrir jafningjafræðslu – miðlun reynslu og þekkingar milli bænda.

Í verkefninu er lögð áhersla á að upplýsingamiðlun taki mið af raunverulegum aðstæðum í íslenskum landbúnaði. Þátttakendur hittast reglulega á fjölbreyttum fræðsluviðburðum, bæði á fundum á netinu og í heimsóknum á þátttökubú. Á fræðslufundum miðla sérfræðingar fagþekkingu bæði með fyrirlestrum og í samtali við bændur. Jafnframt er leitað til bænda í verkefninu og þeir fengnir til að deila reynslu og þekkingu til annarra þátttakenda. Fundirnir sameina þannig beina miðlun þekkingar og virkt samtal bænda og sérfræðinga. Í heimsóknum á þátttökubú, svokölluðum staðarvinnustofum, eru aðstæður og sérstaða hvers bús skoðaðar auk þess sem bændur og starfsfólk verkefnisins skiptast á reynslusögum, hugmyndum og lausnum. Þessi jafningjafræðsla byggir á staðbundinni þekkingu bænda, umhverfi og rekstrarskilyrðum þátttakenda. Hún eykur þekkingu og styrkir jafnframt tengsl, kunningsskap og vináttu meðal þátttakenda.

Þátttakendur eru hvattir til að rýna eigin búrekstur og spegla bú sín við þær upplýsingar og þekkingu sem þeir fá frá fræðslufundum og vinnustofum. Í verkefninu mótar hvert þátttökubú markvissa áætlun um aðgerðir sem efla sjálfbærni, bæta rekstur og styrkja búskapinn til framtíðar. Áætlanir byggja á grasrótarnálgun þar sem hvert bú mótar sína aðgerðaáætlun út frá eigin aðstæðum, getu og tækifærum. Áhersla er lögð á að tengja loftslagsaðgerðir við daglegan rekstur búa og að þær verði skýrar, hagnýtar, raunhæfar og framkvæmanlegar. Aðgerðirnar geta meðal annars snúið að bættum búskaparháttum, endurheimt votlendis, landgræðslu, skógrækt og betri nýtingu aðfanga. Lokamarkmiðið með þessari vinnu er að greina stöðu, sjá hvar tækifæri liggja og móta aðgerðir/leiðir sem henta og hafa jákvæð áhrif bæði á umhverfi og búrekstur.

 Í góðu skjóli trjálunda í Vallanesi, rætt um kornrækt og heilbrigði jarðvegs.

Ávinningur af þátttöku í Loftslagsvænum landbúnaði

Helsti ávinningur af þátttöku í Loftslagsvænum landbúnaði felst í aðgangi bænda að fjölbreyttri fræðslu, sérhæfðri ráðgjöf og hagnýtum verkfærum sem nýtast við að greina stöðu búsins og móta raunhæfar umbætur. Með stuðningi starfsfólks verkefnisins og samtali við aðra þátttakendur fá bændur betri yfirsýn yfir búrekstur sinn, auðlindanýtingu og umhverfisáhrif búsins. Þátttakan getur jafnframt skilað beinum hagrænum ávinningi þar sem aðgerðir sem draga úr losun gróðurhúsalofttegunda bæta gjarnan nýtingu aðfanga. Þetta getur átt við um aðgerðir sem stuðla að bættri nýtingu áburðar, fóðurs og orku sem leiða oft til minni kostnaðar, meiri afurða, minni sóunar og hagkvæmari búreksturs. Loftslagslegur og hagrænn ávinningur haldast því að miklu leyti í hendur.

Helsti ávinningur þátttöku er:

  • Sérhæfð ráðgjöf frá ráðunautum RML og Landi og skógi við að greina stöðu búsins, finna tækifæri og móta raunhæfar aðgerðir.
  • Betri yfirsýn yfir losun gróðurhúsalofttegunda, landnýtingu og aðra helstu umhverfisþætti búsins.
  • Fræðsla og verkfæri sem styðja við bætta nýtingu áburðar, fóðurs, orku og lands. Tækifæri til að draga úr kostnaði og sóun.
  • Reglulegir fræðslufundir, vinnustofur, heimsóknir á þátttökubú og einstaklingsráðgjöf.
  • Jafningjafræðsla og tengsl við aðra bændur sem miðla reynslu, hugmyndum og lausnum.
  • Aðstoð við að móta aðgerðaáætlun sem tekur mið af aðstæðum, búgrein, rekstrarsvigrúmi og markmiðum hvers bús.
  • Tækifæri til að kynna búið á vef verkefnisins og styrkja ímynd þess.
  • Betri undirbúningur fyrir auknar kröfur stjórnvalda, markaðar og samfélags um sjálfbærni og skráningu umhverfisþátta.
Illgresisumræða – Í Vallanesi voru skoðuð tæki sem nota má við að uppræta illgresi og samtal tekið um hvaða leiðir má fara aðrar en að nota varnarefni.

Inntaka nýrra þátttakenda

Nýir þátttakendur verða teknir inn haustið 2026 og vorið 2027. Þátttaka í verkefninu er opin fyrir bændur í öllum búgreinum og er hægt að sækja um þátttöku með skráningarhnappi á heimasíðu RML.

Helstu þátttökuskilyrði eru að umsækjendur séu í búrekstri og uppfylli lögbundnar skýrsluhaldskröfur. Nýir þátttakendur þurfa að mæta á undirbúningsvinnustofur og netfundi þar sem fjallað verður um grunnatriði loftslagsmála. Einnig þurfa þátttakendur að gera raunhæfa aðgerðaáætlun. Þar er ekki gerð krafa um að allir geri það sama því áhersla er lögð á að hver og einn finni leiðir sem henta aðstæðum hvers bús. Jafnframt er gert ráð fyrir að þátttakendur taki virkan taki þátt í fræðslufundum, vinnustofum og jafningjasamtali eftir því sem kostur er og verði tilbúnir í að skoða hvernig búrekstur þeirra geti þróast til loftslagsvænni leiða og orðið sjálfbærari.

Þátttakendur í góðu yfirlæti inni í Asparhúsinu í Vallanesi og ræða hvernig lífræn nálgun getur stutt við sjálfbærni, kolefnisbindingu og betri auðlindanýtingu.

Vinnustofur á búum

Vinnustofur á þátttökubúum eru mikilvægur hluti af Loftslagsvænum landbúnaði og að mati þátttakenda eitt það skemmtilegasta við verkefnið. Þar hittast bændur, miðla reynslu og ræða hagnýtar leiðir til að bæta búrekstur, nýta aðföng betur og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.

Vinnustofa var haldin í Vallanesi á Fljótsdalshéraði 21. september sl. Þar var lífrænn landbúnaður í brennidepli og dæmi um atriði sem þar voru rædd tengdust jarðvegsheilbrigði og hvernig viðhalda má frjósemi jarðvegs með notkun lífrænna áburðarefna og skiptirækt. Einnig var rætt um hvaða aðferða má grípa til við eyðingu illgresis án notkunar varnarefna og skoðuð tæki sem notuð eru við illgresiseyðingu. Vinnustofan tókst afar vel enda margt áhugavert að sjá á búinu. Gestgjafarnir sögðu á lifandi hátt frá uppbyggingu á svæðinu og þeim verkefnum sem þau hafa sett í framkvæmd. Þau hafa áratuga reynslu á lífrænni ræktun og miðluðu þekkingu sinni til þátttakenda í vinnustofunni. Þátttakendur skiptust á hugmyndum og reynslu við raunverulegar aðstæður og nutu dagsins í góðu veðri.

Næsta vinnustofa verður 13. október og verður hún haldin í Svartárkoti í Bárðardal. Þar verður sjálfbærni í landbúnaði meginviðfangsefnið. Bærinn Svartárkot er innsti bær í Bárðardal og stendur í um 400 metra hæð yfir sjávarmáli en þar er rekið myndar sauðfjárbú og ferðaþjónusta. Á vinnustofunni verður rætt um hvaða tækifæri og áskoranir séu á jaðarbyggðum og hvernig nýta má staðbundnar náttúruauðlindir til að styðja við sjálfbærni á þessum svæðum. Einnig verður fjallað um landgræðslu, ræktun og skógrækt við krefjandi aðstæður. Vinnustofan er opin öllum bændum og skráning fer fram á vef RML.

Nánari upplýsingar um verkefni, þátttöku og vinnustofur veitir Sigurður Torfi Sigurðsson, ráðunautur og verkefnastjóri, netfang: sts@rml.is og sími: 516-5078.

Einnig má sjá frekari upplýsingar um verkefnið, aðgang að fræðsluefni auk upplýsinga um þátttakendur á vef Loftslagsvæns landbúnaðar: www.loftslagsvaennlandbunadur.is

Höfundur er ráðgjafi á rekstrar- og umhverfissviði RML.

Skylt efni: RML | loftslagvænn buskapur

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...