Hjarta mitt slær á Ljótarstöðum
„Mér hefur aldrei fundist ég einangruð hér, þótt bærinn minn sé vissulega afskekktur, hann er innsti bærinn í Skaftártungu, hérna utan við Fljót,“ segir Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, bóndi og rúningskona, þar sem hún stendur á hlaðinu á æskuheimili sínu, Ljótarstöðum, á björtum haustdegi í lok september. Ekkert vantar upp á náttúrufegurðina þegar horft er þaðan, en yfir veturinn getur allt farið á kaf í snjó.
„Þegar ég var krakki var stundum ófært hingað fyrir skólabílinn og þá var hann geymdur frammi í Tungu, þangað sem farið var með okkur krakkana á snjósleðum eða traktorum. Nú eru ekki eins snjóþungir vetur og voru á mínum æskuárum,“ segir Heiða, sem er nýkomin aftur heim að Ljótarstöðum eftir fjögurra ára fjarveru.
„Ég fór norður sumarið 2022 til þáverandi kærasta míns, Árna Gunnarssonar í Sveinungsvík, og þar bjuggum við saman með sauðfjárbú. Ég var með helling af kindum þegar ég fór norður og þurfti að losa mig við þær, en margar þeirra yngstu fóru á bæ í Meðallandi. Ég fæ þær kannski aftur hingað þegar þær úreldast hjá þeim, því ég vil halda í minn fjárstofn,“ segir Heiða og bætir við að hún hafi verið með annan fótinn á Ljótarstöðum árin sem hún bjó fyrir norðan, sinnti þar girðingaframkvæmdum og öðru. „Hjarta mitt slær hér á Ljótarstöðum og það stóð aldrei annað til en að vera tímabundið fyrir norðan. Núna er bústofninn hjá mér ekki stór, hann samanstendur af fjórum kindum, tveimur geitum og fjórum hestum, en mamma á tvo þeirra, hún keypti þá undir rassgatið á mér, örverpinu. Það gengur rólega hjá mér að fullorðnast,“ segir Heiða og hlær. „Geiturnar kom ég með að norðan og ég kom líka með eina gimbur þaðan, svo átti ég eina á hér sem gekk úti á Rangárvallaafrétti fyrsta veturinn eftir að ég fór norður. Þegar hún fannst árið eftir fór hún í pössun í Úthlíð, en nú er hún aftur komin heim að Ljótarstöðum, með tvær gimbrar.“
Örkin hans Nóa-stemning
Heiða hefur til margra ára starfað með fjárbúskapnum við rúning og fósturtalningu, en hún er hætt að telja fóstur.
„Tuttugu ár voru nóg af þeim þrældómi, það var erfið vinna og slítandi og ég ákvað að hætta áður en öxlin á mér gæfi sig,“ segir Heiða sem ætlar að ljúka meistaranámi í félagsvísindum næsta vor.
„Ég fór í þetta nám við Háskólann á Akureyri sama ár og ég fór norður, því ég ætla mér að setja upp hér á Ljótarstöðum athvarf fyrir konur í kulnun, nýta náttúruna og skepnur til að veita þeim stuðning meðan þær glíma við slíkt vandamál. Ég þarf háskólagráðu til að vera marktæk manneskja sem stýrir slíku athvarfi og ég verð að geta sýnt fram á að þetta sé hægt, sem ég er að gera með rannsóknum. BA-verkefnið mitt fjallaði um þetta málefni og meistararitgerð mín er plagg sem skýrir verkefnið sem ég ætla að setja á laggirnar hér. Mig hafði lengi langað í háskólanám og hluti af ákvörðun minni að fara norður var að fara í nám þar. Framtíðarplönin voru alltaf að koma aftur hingað að Ljótarstöðum og setja upp þessa starfsemi með rúmlega hundrað kinda hjörð og Örkinni hans Nóa-stemningu, fáeinar geitur, hunda, ketti, alifugla, svín, nokkra yfirvegaða hesta og kýr. Það er gott að vera í nálægð og samskiptum við stórar rólegar skepnur ef manni líður ekki vel, hér voru kýr til heimilis í minni bernsku og líka geithafur sem gæludýr til margra ára, hann hét Leiknir og kunni ýmsar kúnstir,“ segir Heiða, sem ætlar að vera með aðstöðu til að vinna vörur úr mjólkinni, gera sápur úr ullarfitu og fleira.
„Konur koma þá hingað á eigin forsendum og ég verð hér til stuðnings og við sinnum saman almennum bústörfum. Í gegnum tíðina hafa verið konur hér á Ljótarstöðum á öllum aldri og þeim hefur liðið vel hjá mér. Þetta er styrkleiki sem ég virðist hafa og ég ætla að nota hann,“ segir Heiða, sem var með rúmlega 500 kindur þegar mest var í hennar sauðfjárbúskap, en hún er mikil skepnukona, segist vera dýrasjúk. ,,Þetta er einhver djúp tenging sem verður til, bæði við skepnur og náttúruna. Ég er þó nokkur einfari og á mjög auðvelt með að vera ein, ef ég hef einhver dýr til að tuða í.“
Að rýja er einhvers konar dansglíma við kind
Heiða segir að í hennar huga sé rúningur ekki aðeins starf, heldur stærsta áhugamálið og að þeir séu fáir dagarnir sem hún horfi ekki á einhver rúningsmyndbönd á netinu.
„Ég er fíkill þegar kemur að rúningi og rúningsvertíðirnar finnst mér vera skemmtilegasti tími ársins, sérstaklega haustrúningurinn því hann er tæknilega meira krefjandi, þá er kindin rúin allan hringinn, fram á haus og niður á lappir. Ásta, stóra systir, var mín fyrirmynd í rúningi, hún var ein af þeim sem lærði að rýja þegar vélklippur fóru að ryðja sér til rúms. Hún rúði ekki aðeins heima hjá sér, heldur fór líka á bæi austur í Nes og í Suðursveit til að rýja. Þetta gerði hún árum saman og því datt mér ekki í hug að hlusta á að það væri ekki fyrir stelpur að rýja. Þegar ég fór í Bændaskólann fyrir rúmum tuttugu árum, þá gerði ég eins og flestir íslenskir rúningsmenn, ég fór á tveggja daga námskeið og fór svo að rýja. Ég fann að ég gat þetta vel og mér fannst mjög skemmtilegt að rýja. Ég rúði helling bæði haust og vor í áraraðir, en maður tileinkar sér alls konar vitleysur fái maður ekki tilsögn, festist í þeim, nær engum framförum og álag á líkama og sál verður allt of mikið út af röngum vinnubrögðum. Fyrir áratug var ég næstum hætt að rýja, nema fyrir sjálfa mig, tæp í baki og farin að halda að þetta væri ekkert fyrir mig eftir allt saman. Að rýja er einhvers konar dansglíma við kind, það þarf að hafa kontról á henni á meðan hún er rúin. Sagt er að á fullum átta tíma rúningsdegi í atvinnumennsku taki maður það sama út úr skrokknum á sér eins og að hlaupa heilt maraþon. Þetta er erfið vinna og ef fólk ætlar að vera í atvinnumennsku þá skiptir máli að vera í góðu líkamlegu formi, og rýja rétt. Rúningur snýst fyrst og fremst um að fara vel með skepnuna og ullina, en líka sjálfan sig.“
Þurfti að fara á byrjunarreit
Vatnaskil urðu hjá Heiðu í rúningnum árið 2015 þegar tveir vinir hennar drógu hana með sér til Bretlands á rúningsnámskeið.
„Þetta voru Hafliði Sævarsson, bóndi í Berufirði, og Julio Cesar Gutierrez, sem báðir eru margfaldir meistarar í rúningi. Haustið eftir fór ég á annað námskeið hjá breskum rúningskennara sem kom hingað til lands. Ég tók sönsum og lærði aðferðina við að rýja alveg upp á nýtt, sem var átak, ég þurfti að fara á byrjunarreit, hægja alveg niður og hugsa hverja hreyfingu. Ég fór aftur að rýja fyrir aðra og jók ferðina smám saman og við Hafliði fórum til Nýja-Sjálands 2017 og rúðum þar hjá verktaka í þrjár vikur og fórum í leiðinni á heimsmeistaramótið í rúningi. Þar sóttum við námskeið hjá mörgum af færustu rúningskennurum í heimi og þar kynntist ég konu frá Bretlandi sem fór að koma reglulega hingað til lands og fara með mér í rúningstúra. Ég lærði helling af henni og í gegnum hana kynntist ég kanadískum rúningskonum sem fóru líka að koma hingað og ég lærði af þeim. Það er endalaust hægt að bæta sig. Að kunna að rýja opnar leiðir inn í stóran heim og víðfeðmt tengslanet, með möguleikum á ferðalögum og ævintýrum. Ég hef farið í tvígang til Kanada að rýja með vinkonum mínum þar og Svíþjóð er á döfinni í desember.“
Eflir konur að finna eigin styrk
Heiða hélt í fyrra rúningsnámskeið fyrir norðan eingöngu ætlað konum og hún ætlar að bjóða upp á tvö slík núna í haust, á Ströndum og í Suðursveit.
„Mig hafði langað að halda námskeið fyrir konur frá því ég fór sjálf að rétta úr kútnum í þessu, af því að á Íslandi er ekki alveg viðurkennt að konur séu að rýja mikið. Viðtökurnar á námskeiðinu í fyrra voru mjög góðar og margar kvennanna sögðu að þær hefðu ekki viljað fara á námskeið hjá karli þar sem þátttakendur væru flestir karlar. Það verður allt öðruvísi dínamík þegar hópurinn samanstendur einvörðungu af konum, þá skiptir engu máli þó einhver detti á hausinn eða rassinn standi upp í loftið. Yngsta konan á námskeiðinu var 15 ára og sú elsta tæplega fimmtug. Færnin var líka á öllum stigum, sumar höfðu rúið í mörg ár og komu til að bæta tæknina, aðrar voru byrjendur og allt þar á milli. Mikilvægast af öllu er að læra réttu rúningsaðferðina, sem fer best með þig og kindina og gengur hratt. Konur þurfa ekki að vera vöðvatröll til að mæta á rúningsnámskeið hjá mér, konur af öllum stærðum og gerðum geta rúið. Það er frábært að rýja 30 til 40 kindur á dag, í nokkra daga, ef þú ert að rýja þitt eigið fé, það þarf ekki að ofgera sér eða vera í akkorði. Fyrst og fremst á þetta að vera gaman. Oft eru karlarnir þeirra að rýja, af því að þeir eru karlinn, þó þeir kannski nenni því ekki, vilji það ekki og kunni það ekki. Ef manneskju langar að rýja, þá á hún að læra það og gera það, og oft eru konur liprari rúningsmanneskjur en karlar, en rúningur snýst einmitt gríðarlega mikið um liðleika.“
Heiða segist vera þreytt á þeim dilkadrætti sem felst í að fullyrða að eitthvað sé einvörðungu fyrir konur og annað aðeins fyrir karla. „Ef þig langar að rýja, þá skaltu rýja, ef þig langar að keyra vörubíl, keyrðu þá vörubíl, ef þig langar að vera inni að sauma, vertu þá inni að sauma. Þó ég nenni ekki að sauma þá er mér alveg sama þó einhver annar geri það, mér er líka alveg sama þó karl prjóni lopapeysu. Ef þú ert kona sem átt kindur og þykir vænt um þær, þá er gaman að rýja sínar eigin kindur og það þarf ekkert að vera í brjálæðislega góðu formi, því þetta snýst meira um liðleika og tækni en afl. Það er líka gott fyrir konur að finna að þær geti þetta, það eflir þær að finna sinn eigin styrk.“
