Fílar nota lækningajurtir markvisst
Afríkufílar nota fjölmargar ólíkar lækningajurtir til að meðhöndla sig og aðra fjölskyldumeðlimi þegar veikindi herja á.
Rannsakendur, sem meðal annars eru frá Þjóðminjasafni Kenía og Brown-háskólanum í Bandaríkjunum, komust að þessari niðurstöðu eftir að taka viðtöl við fólk sem býr og starfar í nánd við fílana á Mount Elgon-svæðinu í vesturhluta Kenía. BBC greinir frá.
Skógurinn náttúruapótek
Rannsakendur segja fílana nota yfir 35 tegundir jurta. Þekkt er að 25 af þeim hafi lækningamátt. Þeir kalla skóginn náttúruapótek fílanna.
Þekkt er að fílar sækist í hella þar sem þeir nota tennurnar til að sækja sér sölt og steinefni sem nýtast þeim sem fæðubótarefni. Í rannsókninni er sjónum beint að þessari sömu tegund fíla og ályktað að þeir noti valdar jurtir markvisst til lækninga. Þekkt er að mörg dýr sæki í ákveðnar jurtir sér til heilsubótar.
Skráð voru tilfelli þar sem fílar völdu ákveðnar tegundir plantna þegar þeim virtist líða illa. Nefnt er dæmi um Angurweet Coleus barbatus, blómplöntu af varablómaætt sem er skyld álfamöttli, og því lýst hvernig fílskýr tuggðu jurtina og gáfu kálfum sínum. Jurtin inniheldur efni sem lina magaverki.
Ávinningur að vernda skógana
Tekin voru viðtöl við íbúa á svæðinu í kringum Mount Elgon og rannsakendur unnu með sérfræðingum á svæðinu í að bera kennsl á jurtirnar sem fílarnir nota. Afríski fíllinn er talinn þurfa að háma í sig um einn tuttugasta af líkamsþyngd sinni á hverjum degi, 100300 kg af plöntum.
Dr. Elodie Freymann, prófessor við Brownháskólann, er einn aðalrannsakendanna. Hún segir rannsóknina vekja spurningar um það hvort eyðilegging náttúrulegra heimkynna dýra og manna, svipti þau þeim náttúrulegu lækningajurtum sem þau þurfa til að þrífast.
Í samtali við BBC segir Freymann það sameiginlegan ávinning að vernda skógana og þessi náttúrulegu apótek.
Framhaldsrannsókn hafin
Fílar hafa lengi vakið forvitni mannanna. Þeir eru félagsdýr og nýta sér flókin samskiptakerfi. Félagskerfi þeirra einkennist af mæðraveldi, segir á Vísindavefnum, þar sem kjarni hjarðarinnar samanstendur af einni eða fleiri gömlum kúm og kvenkyns afkomendum í nokkra ættliði. Vald elstu kýrinnar er alla jafna ótvírætt en við fráfall hennar tekur dóttir hennar við. Tarfarnir yfirgefa hópinn við 8–13 ára aldur, þefa hver annan uppi og mynda svokallaða piparsveinahjörð. Þegar tarfarnir eldast draga þeir sig í hlé en kýrnar halda ávallt hópinn.
Framhaldsrannsókn er þegar hafin á greiningu þeirra plantna sem fílarnir á Elgon-svæðinu sækja í, með það að sjónarmiði að kanna hvort þar leynist upplýsingar til lyfjaþróunar.
Eins verður sjónum beint að plöntuvali fílanna miðað við líkamlegt ástand og tengsl þar á milli rannsökuð.
