10 af stærstu mjólkurfyrirtækjum heims eru evrópsk!
Hin árlega skýrsla hollenska landbúnaðarbankans Rabobank, um tuttugu stærstu afurðafyrirtæki heims í mjólkuriðnaði, kom út nýverið og líkt og undanfarin ár er þar margt áhugavert að finna. Að þessu sinni eru stóru tíðindin ekki endilega hvaða fyrirtæki situr í fyrsta sæti eða hverjir skipta um sæti á listanum heldur eru helstu tíðindin miklu fremur þau að alþjóðlegur mjólkuriðnaður virðist vera að færast inn í nýtt skeið, þar sem færri en stærri fyrirtæki fara með sífellt stærri hluta af mjólkurframleiðslu heimsins.
Sérfræðingar Rabobank segja sjálfir að nýtt tímabil sé hafið sem einkennist af samrunum, sérhæfingu og aukinni áherslu á virðisaukandi framleiðslu. Fyrirtækin keppast ekki lengur eingöngu við að safna sem flestum lítrum af mjólk heldur einnig við að byggja upp sterkari stöðu á afmörkuðum mörkuðum og þar virðist sem próteinhluti þessara fyrirtækja fari ört stækkandi. Flest þeirra hafa komið sér upp sérhæfðum próteinvinnslum sem eru oft að skila rúmlega helmingi hagnaðar fyrirtækjanna. Þá eru sérvörur innan heilsugeirans, sérostar og aðrar vörur með hærri framlegð að bera uppi arðsemi margra af risunum á markaðinum.
Heildarveltan heldur áfram að aukast
Samkvæmt yfirliti Rabobank jókst samanlögð velta 20 stærstu mjólkurfyrirtækja heims, sjá meðfylgjandi töflu, um 5,4% á 12 mánaða tímabili 2025–2026 og nam alls um 269 milljörðum Bandaríkjadala, eða um 32 þúsund milljörðum íslenskra króna. Þetta er gríðarleg aukning frá fyrra samanburðartímabili þegar aukningin nam aðeins 0,6%. Auðvitað segir velta fyrirtækjanna ekki alla söguna enda getur arðsemin verið misjöfn en þar sem aðrar upplýsingar liggja ekki fyrir, um öll stærstu fyrirtækin, er þetta sú nálgun sem Rabobank notar og hefur notað í áraraðir.
Til að setja þessar veltutölur í smá samhengi þá er áætluð heildarvelta hins opinbera á Íslandi, þ.e. ríkissjóðs og sveitarfélaga, um 2.300 milljarðar íslenskra króna árið 2026. Þannig má til gamans setja dæmið þannig upp að ef hið opinbera á Íslandi væri afurðafyrirtæki í mjólkuriðnaði, væri það einungis í 6. sæti lista Rabobank, rétt neðan við franska afurðafyrirtækið Danone! Og til enn frekari skemmtunar má velta fyrir sér heildarstöðu Íslands, þ.e. landsframleiðslunnar árið 2025. Þá var hún rétt tæplega 5.000 milljarðar íslenskra króna, þ.e. á pari við veltu fjölskyldufyrirtækisins Lactalis. Svona samanburður er þó varasamur enda velta fyrirtækis ekki það sama og landsframleiðsla, þ.e. virðisaukinn sem verður til í hagkerfinu. En engu að síður áhugaverður samanburður að eitt fjölskyldufyrirtæki sé með árlega veltu sem er svipuð að stærð og öll landsframleiðsla Íslands.
Þrátt fyrir ýmsar áskoranir á einstökum mörkuðum virðist ljóst að stærstu fyrirtækjum heims hefur almennt gengið vel, en þó þarf sérstaklega að draga fram gríðarlega veltuaukningu Lactalis en franski risinn heldur áfram að sitja einn á toppnum og er nú með áætlaða ársveltu upp á rúmlega 40 milljarða Bandaríkjadollara. Í fyrra var áætluð velta Lactalis 31,9 milljarðar Bandaríkjadollara og nam því hrein veltuaukning þess, á einungis einu ári, 8,1 milljarði Bandaríkjadollara, eða um 970 milljörðum íslenskra króna! Þessi veltuaukning skýrist bæði af almennri aukningu á sölu en einnig vegna uppkaupa á keppinautum víða um heim. Í öðru sæti lista Rabobank situr sem fyrr Nestlé og í þriðja sæti hið bandaríska samvinnufélag bænda, Dairy Farmers of America, rétt eins og í fyrra.
Arla stekkur upp í fjórða sæti
Einna athyglisverðustu tíðindi ársins eru hins vegar þau að Arla Foods hefur stokkið úr sjötta sæti upp í fjórða sæti heimslistans. Ástæðan er auðvitað samruni Arla og hins þýska DMK, en um þann samruna hefur áður verið fjallað hér á síðum Bændablaðsins. Nú hefur sá samruni gengið eftir og úr varð stærsta samvinnufélag mjólkurframleiðenda í Evrópu.
Þessi breyting dugði til þess að ýta hinu franska Danone niður í fimmta sæti listans, en um leið styrkti hún stöðu Arla verulega á alþjóðlegum markaði. Samkvæmt Rabobank er þessi samruni jafnframt eitt skýrasta dæmið um þá þróun sem nú á sér stað í mjólkuriðnaði heimsins, þar sem fyrirtæki leitast við að stækka til þess að efla samkeppnisstöðu sína og um leið fjárfestingargetu.
Fonterra komið niður í tíunda sæti
Ef horft er nokkur ár aftur í tímann eru það einnig talsverð tíðindi að sjá hvar nýsjálenska samvinnufélagið Fonterra er statt í dag. Félagið, sem eitt sinn var af mörgum talið öflugasta mjólkurfyrirtæki heims, situr nú í tíunda sæti listans. Á síðustu árum hefur félagið farið í gegnum miklar breytingar og er nú að draga sig út úr ýmiss konar neytendavörustarfsemi til að einbeita sér frekar að hráefnum og þjónustu við veitingamarkaðinn.
Það breytir þó ekki því að Fonterra er enn eitt af stærstu mjólkurfyrirtækjum heims og reksturinn gæti vel orðið sterkari til lengri tíma litið þrátt fyrir minni heildarveltu. Eins og áður hefur verið bent á segir veltan nefnilega ekki alla söguna um arðsemi fyrirtækjanna.
Ný fyrirtæki á listanum
Listinn breytist einnig nokkuð á neðri hlutanum. Þýska DMK hverfur eðlilega af listanum eftir samrunann við Arla og sömu sögu er að segja af Unilever, sem hefur skilið stærstu ísstarfsemi sína frá móðurfélaginu. Í staðinn koma inn tvö ný fyrirtæki, annars vegar ísfyrirtækið Magnum og hins vegar svissneska mjólkurfélagið Emmi. Það eru raunar fyrirtæki af þessu tagi sem Rabobank telur líkleg til að sækja fram á komandi árum, þ.e. fyrirtæki sem sérhæfa sig á afmörkuðum sviðum fremur en að reyna að framleiða sem flest fyrir sem flesta.
Færri en stærri fyrirtæki
Eins og áður segir er meginniðurstaða Rabobank ekki sú að einstök fyrirtæki hafi skipt um sæti, heldur að greinin í heild sé að breytast. Á undanförnum árum hafa fyrirtæki vaxið með því að fara inn á ný landsvæði og vinna meiri mjólk, en nú virðist sem áherslan sé í auknum mæli að færast yfir á samruna, uppkaup og sérhæfingu.
Sérfræðingar bankans telja þannig að á næstu árum muni færri en stærri fyrirtæki fara með sífellt stærri hluta af mjólkurframleiðslu heimsins. Þau fyrirtæki sem ná að sameina stærð, nýsköpun, sérhæfingu og virðisaukandi framleiðslu muni að öllum líkindum standa sterkust að vígi og ef sú spá gengur eftir er nokkuð ljóst að við höfum aðeins séð upphafið að þeirri samþjöppun sem fram undan er í alþjóðlegum mjólkuriðnaði.
