Ásdís Thoroddsen hefur umsjón með gömlum lýsistönkum á Raufarhöfn sem er búið að breyta í menningarhús.
Ásdís Thoroddsen hefur umsjón með gömlum lýsistönkum á Raufarhöfn sem er búið að breyta í menningarhús.
Viðtal 27. nóvember 2026

Lýsistönkum breytt í listatanka

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Ásdís Thoroddsen kvikmyndagerðarmaður hefur tekið að sér tvo lýsistanka á Raufarhöfn og eru þeir orðnir vettvangur lista- og menningarviðburða.

„Bæjarbúar ákváðu á fundi 2021 að þá langaði til að láta þessa tanka standa,“ segir Ásdís aðspurð af hverju hún tók að sér þessi mannvirki. „Ég vissi ekkert af þessum fundi, en þegar ég spurði einhverju síðar hvað ætti að gera við tankana var það næstum eins og viljayfirlýsing að ég ætlaði að taka þá að mér. Auðvitað samsinnti ég því og núna ber ég ábyrgð á þessum tveimur tönkum og því sem fer fram inni í þeim.

Árið 2024 var lagt af stað í það að sækja fé og fyrsti viðburðurinn var flautukonsert í júlí 2024 með Berglindi Maríu Tómasdóttur og dóttir hennar, Anna Signý, lék undir. Þetta var áður en dyraopin voru söguð og þurfti fólk að skríða inn um göt niðri við gólf. Dyraopin voru söguð um vorið 2025 og byrjaði allt heila gillið á tónlistarhátíðinni Melrakkanum um sumarið. Opnunaratriðið var „heavy duty“ tilraunatónlist í nyrðri tankinum og Raufsarar mættu á allt saman. Í syðri tankinum vorum við með stóra sýningu Siggu Bjargar Sigurðardóttur og Mikaels Lind.

Í vor var landsmót Stemmu, landssamtaka kvæðamannafélaga, í félagsheimilinu Hnitbjörgum og á einum viðburðinum var farið með rímur í öðrum tankinum. Í sumar var listasýning Péturs Arnar Friðrikssonar í syðri tankinum sem hefur gengið vel,“ segir hún. Aðrir viðburðir í sumar voru meðal annars flutningur á óperuverki um verslunarmannahelgina og kórsöngur í september. 

Tankarnir þurfa að spila hlutverk

„Starfsemin er auðvitað aldrei sjálfbær, ekki frekar en listastarfsemi yfir höfuð,“ segir Ásdís. „Það mótframlag sem vantar upp á kemur frá mér, sem felst yfirleitt í sjálfboðavinnu minni. Við fengum góðan styrk frá samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi eystra sem var hugsaður til þess að gera við þakið á báðum tönkunum, en hann rétt nægir til þess að laga þakið á einum. Í viðnum reyndist meiri fúi en við áætluðum og sperrur orðnar veikar. Núna erum við búin að tryggja þetta allt í nyrðri tankinum og setja glæra kúpla yfir götin sem áður var lokað með járnhlerum.“

Aðspurð segist Ásdís sjá um að velja þá listamenn sem halda sýningar í tönkunum, en ýmist leitar hún þá uppi eða þeir hafa samband við hana. „Þeir eru með frjálsar hendur, en ég vel þá sem ég tel hafa möguleika á að gera verk sem passa inn í tankana, en það þýðir lítið að negla upp vatnslitamyndir, eins og vatnsliturinn er fallegur. Þetta er geimur og það skiptir máli að tankarnir spili hlutverk. Mér finnst skipta máli að hafa bæði fólk sem stendur hátt í listaheiminum, eins líka fólk sem stendur lágt og starfar bara með sjálfu sér og fáum. Eins skiptir máli að hafa listamenn sem tengjast þessu svæði, alveg eins og það skiptir máli að fá listamenn sem koma langt að.“ 

Ásdísi finnst mikilvægt að listamenn sem sýna í tönkunum nýti sér rýmið á einhvern hátt. Hér sést verkið Höfn eftir Pétur Örn Friðriksson sem sýnt var í syðri tankinum í sumar.

Melrakkasléttan heillandi í sinni hógværð

„Nyrðri tankurinn heitir Bak á meðan hinn heitir Stjór,“ segir Ásdís. „Það er út af litunum á hurðunum, en önnur er rauð og hin græn. Sjómenn vita hvað þetta þýðir, en þetta vísar til innsiglingaljósa sem eru rauð og græn. Tankarnir voru byggðir á síldarárunum til þess að geyma lýsi og sinntu þeir síðast sínu fyrra hlutverki í kringum 2005. Þrátt fyrir þessi nýju menningarhús, ef svo skyldi kalla, er félagsheimilið Hnitbjörg alltaf miðjan, eins og í hverju þorpi. Því skiptir máli að viðhalda því, en sveitarfélagið tímir ekki að gera við það. Þessi starfsemi í tönkunum er engin afsökun til þess að sleppa því að halda við Hnitbjörgum á meðan tankarnir eru skemmtileg viðbót sem ég er ánægð að taka þátt í.“

Ásdís hefur dvalið mikið á Raufarhöfn frá árinu 2012 eftir að hún keypti elsta hús Kaupfélags Norður-Þingeyinga fyrir lága upphæð með því skilyrði að hún gerði það upp. „Ég er hérna upp undir hálft árið frá vori fram á haust. Svo finnst mér gott að vera heima í Reykjavík í dimmunni og grúska á skrifstofunni. Raufarhöfn sjálf og Melrakkasléttan, þetta landsins stél, er heillandi í sinni hógværð. Fólk hefur varla komið hingað og svæðið vekur forvitni. Hér er mikil saga og gífurlegt lífríki og mér finnst gaman að hafa lent hérna.“

Skylt efni: menning

Enn þá jafn gaman og þegar ég var sextán ára
Viðtal 26. apríl 2022

Enn þá jafn gaman og þegar ég var sextán ára

Baldur Sæmundsson, áfanga­stjóri í Menntaskólanum í Kópa­vogi, þar sem Hótel- og...

Mikilvægt að mennta fólk fyrir stækkandi atvinnugrein
Viðtal 8. apríl 2022

Mikilvægt að mennta fólk fyrir stækkandi atvinnugrein

Garðyrkjunám sem starfrækt er á Reykjum í Ölfusi mun tilheyra Fjölbrautaskóla Su...

Fann mína ástríðu í þessu starfi
Viðtal 8. desember 2021

Fann mína ástríðu í þessu starfi

„Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst öllu þessu fólki í sveitunum, notið gestri...

„Það eiga allir að gera erfðaskrá“
Viðtal 8. nóvember 2021

„Það eiga allir að gera erfðaskrá“

„Erfðaskrá er til þess fallin að leysa úr mörgum málum sem annars tæki tíma og o...

„Fyrst og fremst er það hljómurinn sem heillar mig“
Viðtal 13. júní 2021

„Fyrst og fremst er það hljómurinn sem heillar mig“

Talið er að harmonikkur hafi fyrst komið til Íslands með frönskum sjómönnum sem ...

Ný Oddakirkja verður byggð og Sæmundarstofa verður menningar- og fræðasetur
Viðtal 19. mars 2021

Ný Oddakirkja verður byggð og Sæmundarstofa verður menningar- og fræðasetur

Landbúnaður á Íslandi stendur frammi fyrir mörgum og ólíkum áskorunum
Viðtal 12. febrúar 2021

Landbúnaður á Íslandi stendur frammi fyrir mörgum og ólíkum áskorunum

Vigdís Häsler lögfræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Bændasamtaka Ísla...

Þjónusta verði snögg, fagleg og aðgengileg og eftirlitið einfalt, málefnaleg og skilvirkt
Viðtal 12. janúar 2021

Þjónusta verði snögg, fagleg og aðgengileg og eftirlitið einfalt, málefnaleg og skilvirkt