Eini háskólinn sem fær lægri krónutölu til reksturs
Landbúnaðarháskóli Íslands (LbhÍ) fær lægra fjármagn frá ríkinu til reksturs en í fyrra. Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor LbhÍ, segir samtal hafið við ráðuneytið um fjárframlög til skólans, þó leiðrétting hafi fengist að hluta sitji skólinn eftir með lægri krónutölu til reksturs en fyrri ár.
Í fjárlagafrumvarpi í september kom fram að LbhÍ fengi verulega skert fjárframlög. Rektor hafði samband við ráðuneytið sem komst að þeirri niðurstöðu að útreikningar voru byggðir á röngum forsendum og fengu háskólarnir nýjar upphæðir í október. Sú upphæð fyrir LbhÍ var þó enn lægri en sú fyrri. Rektor segir að niðurstaðan hafi ekki verið samkvæmt áætlun, skólinn standi sig vel í uppbyggingu á hínum ýmsu sviðum sem styðja beint við stefnu stjórnvalda og afli sértekna erlendis frá sem hefði átt að skila sér í auknu framlagi frá ráðuneytinu en ekki lækkun. Þar nefnir rektor til að mynda verkefni á sviði endurheimtar votlendis, hátæknilandbúnaðar og þararæktunar.
Ekki heimild til að færa 200 milljónir
Landbúnaðarháskólinn átti samkvæmt fjárlagafrumvarpi að fá 1177 milljónir til reksturs árið 2027 en skólinn fékk 1400 milljónir árið 2026. „Samkvæmt áætlun skólans var ráðgert að framlag ráðuneytisins yrði um 1600 milljónir fyrir árið 2027, vegna hækkunar á framlagi til kennslu og rannsókna þar sem háskólinn hefur náð gríðarlegum árangri í sókn í erlenda sjóði sem á að skila sér í hækkun framlags ráðuneytisins,“ segir Ragneiður. „Við fengum framhaldsfund í ráðuneytinu í síðustu viku og þar vorum við að leggja áherslu á fjögur atriði. Í fyrsta lagi að 200 milljónir yrðu ekki teknar af rekstrarframlagi og færðar í fjárfestingu Jarðræktarmiðstöðvarinnar. Það var dregið til baka og mun ráðuneytið greiða fyrir kostnað Jarðræktarmiðstöðvar af öðrum lið ráðuneytisins.“
Þá var skólinn alltaf með fjárfestingarframlag sem hækkar með vísitölu. „Það var um 56 milljónir í fyrra en nú var búið að eyrnamerkja það fjármagn Jarðræktarmiðstöðinni líka. Við erum með mikinn rekstur hérna, það þarf að endurnýja tæki og annað en þar var allt fjármagn horfið. Við vöktum athygli á því að einhver mistök hefðu orðið þar og þá fengum við 50 milljónir til baka af þessum 60 sem við reiknuðum með,“ segir Ragnheiður.
Breytingar á reglum ekki tilkynntar
„Þriðja atriðið var reglugerðin sjálf, það er reiknilíkanið sjálft sem ráðuneytið virðist ekki hafa verið að fylgja,“ útskýrir Ragnheiður. „Þar kemur fram hvernig eigi að skipta fjármunum á milli háskólanna. Það eru þrír flokkar: kennsla, rannsóknir og samfélagslegt hlutverk.“ Ragnheiður útskýrir að LbhÍ hafi hækkað bæði í flokki kennslu og rannsókna samkvæmt reiknilíkaninu þar sem skólinn hefur staðið sig vel. „Svo reiknum við með að samfélagslegi hlutinn verði svipaður og í fyrra en þá gerir ráðuneytið breytingu á þeim hluta.“
Á fundi þann 20. október kom það fram í fyrsta sinn að ráðuneytið sé að breyta reiknireglu vegna samfélagslegs hlutverks háskólanna. Það hafði hvergi verið tilkynnt, hvorki opinberlega né til háskólanna. Sú breyting leiðir til skerðingar á fjárframlagi til reksturs Landbúnaðarháskólans.
Í fyrirspurn til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins um hvort væri verið að vinna eftir breyttum reiknireglum segir að ekki sé verið að taka upp nýtt fjármögnunarlíkan heldur endurskoða tiltekna þætti þess. Þar segir að breytingin snúi að flokkum og prósentuvægi þeirra og sé það útfært með breyttum reglum. Hvergi hafði þó verið tilkynnt um þessa breyttu flokka áður en útreikningar á fjárlögum til háskólanna voru gerðar og þeim hafði ekki formlega verið breytt í reglum fyrr en 16. nóvember síðastliðinn, eftir að blaðamaður sendi fyrirspurn um hvort verið væri að vinna eftir gildandi reglugerð. Ráðuneytið tjáði sig ekki um að skjalið hafi verið undirritað og birt samdægurs né hvort samræmi væri í því að reikna eftir reglum sem ekki væri búið að setja.
„Hefur samfélagslegt hlutverk LbhÍ minnkað?“
LbhÍ gerir athugasemdir við hvernig staðið er að breytingu á reglugerð um reiknilíkan. „Það átti að tryggja fyrirsjáanleika, gagnsæi og hvetja til árangurs. Hvernig samræmist þessi breyting þeim áherslum? Og hvernig samræmist þessi niðurskurður áherslu ríkisstjórnarinnar á að fjölga störfum á landsbyggðinni, styðja við rannsóknir og nýsköpun í landbúnaði, endurheimta votlendi, tryggja fæðuöryggi og fleira?“ spyr rektor sem bíður þess að fá fund með ráðuneytinu til að fara yfir útreikningana em ráðuneytið vildi ekki senda göngin beint til LbhÍ.
Rekstur húsnæðis gleymist
„Fjórða atriðið sem við bentum á er að húsnæðishlutinn er hvergi reiknaður inn. Það er himinn og haf á milli skólanna hvað varðar húsnæði. Við erum lítill skóli með feiknamikið og dýrt húsnæði og við erum búin að vera með umsjón hér með öllum þessum friðuðu byggingum sem er dýrt að viðhalda og þurfum að borga leigu auk þess að hafa umsjón og ábyrgð með Landbúnaðarsafninu. Það er hvergi reiknað inn,“ segir Ragnheiður. „Við þurfum að bregðast einhvern veginn við þessari skerðingu og að óbreyttu þurfum við að skera einhvers staðar niður. Við hefðum viljað taka þetta í samtali svo það hefðu verið sameiginleg markmið og sameiginleg sýn en nú er okkur hent út í það að þurfa að fara að taka ákvarðanir um það hvernig við ætlum að verja grunnreksturinn, sem er námið okkar og námsbrautirnar, við viljum ekki fara í einhverja skerðingu þar.“
Ragnheiður tekur fram að ráðuneytið sé með málið til skoðunar og tók vel í það að opna á samtal. „Þau töldu okkur vera með málefnalegar athugasemdir en það er engin tímalína komin enn.“
