Túrbó-hani, hundrað svín
Í kjölfar umfjöllunar um íslenska skinku í síðasta blaði skal sjónum beint að beikonneyslu landsmanna. Beikon úr innfluttum grísasíðum frá Danmörku og Þýskalandi virðist nær fylla hillur stórmarkaða. Beikon eins framleiðanda úr íslenskum grísasíðum fannst í hillunum, frá Ali. Athyglinni er því nú beint til Danmerkur og stöðu mála í svínarækt þar í landi og mögulegum vendingum í kjúklingaeldi.
Dýravelferðarmál hafa verið framarlega á borði núverandi ríkisstjórnar Danmerkur og þingið nú lagt tímabundið bann á uppbyggingu nýrra eða stækkun þauleldisbúa. Svína-, kjúklinga- og sjókvíaeldi hefur mikið verið rætt og rödd neytenda verið hávær. Danir flytja árlega út um 17 milljónir grísa til eldis í öðrum löndum, aðallega Þýskalandi. Formaður svínaframleiðenda í Danmörku segir grísi þar í landi eiga að hafa það betra. Nú boðar ráðherra dýravelferðar einnig bann við svokölluðum túrbókjúklingum.
Beikonneysla landans
Neysla á svínakjöti hefur aukist lítillega á undanförnum 15 árum en á sama tíma hefur innlend framleiðsla staðið í stað og er tæp 6.800 tonn á ári. Innflutningur á svínakjöti hefur heilt yfir aukist úr rúmum 2.600 tonnum árið 2022 í rúm 3.200 árið 2025.
Samkvæmt ör-athugun blaðamanns er langmest beikon í hillum stórmarkaða á Íslandi úr innfluttu svínakjöti, dönsku og þýsku. Ferð í nokkrar verslanir í fyrri hluta nóvember leiddi í ljós að aðeins beikon frá Ali var úr íslenskum svínasíðum.
Framboð á íslensku og innfluttu beikoni getur breyst á milli mánaða, en framleiðendur selja bæði afurðir úr eigin eldi og innflutningi. Innflutningur á beikoni, svínasíðum, hefur aukist á milli ára til að mæta aukinni eftirspurn. Hann var tæp 840 tonn árið 2023, 640 árið 2024 og 1.140 tonn á síðasta ári.
Meira aðhald neytenda
Danska þingið hefur ákveðið að stöðva leyfi fyrir uppbyggingu nýrra verksmiðjubúa í svínaeldi og stækkunar búa til októberloka 2027, á meðan nýtt regluverk sem móta skal framtíð greinarinnar er í vinnslu. Aðgerðin tekur ekki til lífrænna framleiðenda og þeirra sem ala svín í lausagöngu. Dönsku bændasamtökin vara við fjárhagstjóni og málaferlum sem hlotist geta af reglugerðinni.
Samkvæmt nýrri könnun sem gerð var fyrir fréttastofu DR vilja 49% Dana að „miklu færri“ eða „aðeins færri“ svín verði alin í Danmörku. Í sambærilegri könnun í mars var hlutfallið 37%. Landbúnaðarsagnfræðingurinn Peder Dam talar um „hröðun“ í aðhaldi neytenda. Hann segist þó hissa á að mótstaðan sé ekki enn meiri, miðað við hve umræðan á sér rætur langt aftur. Jeppe Bloch Nielsen, formaður svínaframleiðenda, er í raun sammála Peder, og segir að á grundvelli mikillar umræðu hefði talan getað verið hærri. Í viðtali við blaðamann DR segir Jeppe grísi í Danmörku eiga að hafa það betra.
Svínaiðnaður er þegar gríðarlega stór þar í landi. Danir ala árlega rúmlega 30 milljónir grísa. Til samanburðar er sá fjöldi á bilinu 730-830.000 í Noregi, 1,3 milljónir í Svíþjóð og tæpir 80.000 á Íslandi. 1949 svínabú eru í Danmörku samkvæmt tölum dönsku bændasamtakanna.
Landnýting og útflutningur umdeild
Danir flytja út um 85% af árlegri framleiðslu, að meðtöldum um 17 milljónum grísa sem eru fluttir úr landi til frekara eldis, mestmegnis til Þýskalands. Framleiðsla ódýrrar útflutningsvöru á dýrmætu landi er harðlega gagnrýnd. Stór hluti útflutningsins fer til Kína og finnst dönskum neytendum þar skjóta skökku við.
Landnýting er einnig umdeild, en umfangsmikil svínarækt krefst mikils landrýmis undir kornrækt, sem þó er innflutt í miklum mæli til Danmerkur. Notkun plöntuvarnarefna sem fylgir verksmiðjubúskap svínaræktarinnar er einnig gagnrýnd og teygir sig almennt til landbúnaðarins. Ný áburðarlöggjöf tók gildi í haust en hafði mætt mikilli mótstöðu frá bændum.
Tveir þriðju hlutar landsins eru nýttir í landbúnaði en villt náttúra er lítil. Danir hafa kallað eftir endurheimt náttúrulegs umhverfis og ný ríkisstjórn boðar aðgerðir til að mæta því ákalli með nýrri náttúrulöggjöf. Þessu tvennu hefur verið splæst saman og ákall eftir meiri náttúru og minni verksmiðjuframleiðslu verður æ meira áberandi.
Virkt hlutverk og ábyrgð stjórnvalda
Um mitt sumar sagði Anja Vesterholm danska dagblaðinu Politiken frá skoðunum sínum á eftirliti og regluverki svínaræktar. Anja starfaði hjá Matvælaeftirliti Danmerkur og sinnti eftirliti á svínabúum í 11 ár og fór í yfir 1.000 eftirlitsferðir. Hún segir í viðtalinu að hún hafi séð flest. Hún segir reglurnar um dýravelferð of vinveittar viðskiptahlið starfsgreinarinnar, kerfið þunglamalegt og refsiaðgerðir sjaldan hafa afleiðingar. Hún leggur þó áherslu á að margir sinni starfi sínu faglega og dýrunum vel.
Um mitt næsta ár stendur til að hópur fólks samsettur úr röðum þingmanna, landbúnaði, dýravelferð og náttúruverndarstofnunum, verslun og viðskiptum skili tillögum að nýrri stefnu fyrir svínarækt í Danmörku. Þeim er gert að fela í sér aukna dýravelferð, sjálfbærari framleiðslu, aukna lífræna ræktun, minni sýklalyfjanotkun og ekki síst aukið virði geirans fyrir Danmörku. Þar er stóraukinn útflutningur á grísum til umræðu, verðmætin skuli í auknum mæli verða eftir í Danmörku, frekar en flutt út.
Danmörk vill banna „túrbó-kjúklinga“
Danska ríkisstjórnin vill banna svokallaða túrbó-kjúklinga sem eru ræktaðir til að vaxa hratt. Þeir eru af tegundinni Ross 308 og tekur þá um 33 til 36 daga að ná fullum vexti, þeir fara úr 50 grömmum í 2 kíló á þessum tíma. Christian Rabjerg Madsen, ráðherra náttúru og dýravelferðar í Danmörku, hefur kallað eftir banni við ræktun tegundarinnar á landsvísu sem og í Evrópusambandinu öllu. Þó að ráðherra hafi enn ekki lagt fram frumvarp um bannið hefur tilkynning hans hlotið góðan hljómgrunn og fleiri flokkar styðja hugmyndina. Dýraverndunarsinnar í Danmörku hafa lengi barist fyrir því að hætta framleiðslu túrbó-kjúklinga.
Hraður vöxtur túrbó-kjúlinga getur stuðlað að heilsufarsvandamálum og eru dæmi um að fuglarnir eigi erfitt með hreyfingu og slasist vegna eigin þunga. Tilkynning ráðherrans kom í kjölfar danskrar heimildarmyndar á TV2 sem sýndi slæman aðbúnað við alífuglarækt hjá stórum ræktanda á Norður-Jótlandi. Á þessu tiltekna búi voru lög um dýravelferð brotin. Þó að aðbúnaðurinn sé ekki svo slæmur á öllum alífuglabúum hefur Madsen krafist þess að málið verði rannsakað.
Vilja aðrar tegundir
Í Danmörku eru rúmlega 70 milljónir túrbó-kjúklingar framleiddir árlega og er það 70% allrar kjúklingaframleiðslu í landinu. Madsen sagði í viðtali við TV2 að hann hvetti neytendur til þess að kaupa aðrar tegundir kjúklings. Aðrar kjúklingategundir taka 46 til 63 daga að ná sömu þyngd og Ross 308 nær á 33 dögum. Í frétt um málið í danska blaðinu Berlingske kemur fram að sumar verslanakeðjur hafa einnig snúið baki við sölu túrbókjúklings. Dýraverndunarsamtökin Anima birtu rannsókn á því hvernig matvöruverslunum gengur að selja aðrar tegundir kjúklinga. Þar kom fram að keðjur Salling (þ.e. Netto, Bilka og Føtex) standa sig verst en tveir þriðju allra seldra kjúklinga þeirra eru túrbókjúklingar. Verslunin Rema 1000 stendur sig einna best en þar eru 15% túrbó-kjúklingar.
Jafnvel þó að Danmörk myndi banna framleiðslu hraðvaxta kjúklinga bendir ekkert til þess að lönd á borð við Pólland, Frakkland og Spán hyggist gera slíkt hið sama. Vegna reglna ESB um frjálsa verslun væri því ekki raunhæft að banna innflutning sömuleiðis.
Gagnrýnisraddir hafa bent á að verslanir geti áfram selt pólskan túrbókjúkling og að eina niðurstaðan verði að danskur kjúklingur verði þá dýrari og neytendur ólíklegri til að versla hann. Ellen Emilie Mindegaard-Müllertz, þingkona fyrir Moderaterne, segir það þess vegna mikilvægt að taka þátt í baráttunni fyrir banni innan ESB og bendir á að neytendur séu tilbúnir til að kaupa aðrar tegundir kjúklings og það sjáist á því að verslanakeðjur hafa náð að minnka sölu túrbó-kjúklinganna. „En þetta snýst líka um það: Eigum við þá að vera fyrirmyndarland í einhverju? Tökum fataframleiðslu sem dæmi: þar sættum við okkur ekki við barnaþrælkun, því við teljum það ekki siðferðilega í lagi. Ég tel að Danmörk geti vel verið land þar sem við drögum mörkin,“ sagði hún í viðtali við Berlingske um málið.
Á Íslandi er eingöngu Ross 308
Á vef Matvælastofnunar kemur fram að „í kjúklingarækt á Íslandi er eingöngu notaður kjúklingastofninn Ross 308“. Þar kemur fram að framleiðendur hérlendis reka eigin stofnfuglabú og eigin útungunarstöðvar og að loknum 33 til 36 daga eldistíma er kjúklingum slátrað.
Innlend alífuglaframleiðsla nam 9.374 tonnum árið 2025 og 3.937 tonn voru innflutt. Öll kjúklingaframleiðsla hérlendis fer fram undir eftirliti Matvælastofnunar. Sýklalyfjanotkun hérlendis er mun minni en á Norðurlöndunum og sýklalyfjaónæmi er almennt lítið á Íslandi í evrópskum samanburði. Í skýrslu Embættis sóttvarnarlæknis um sýklalyfjanotkun kemur fram að sala sýklalyfja fyrir dýr til manneldis á Norðurlöndunum árið 2024 þegar miðað er við mg/kg lífmassa var mest í Danmörku, 20,1 mg/kg, en minnst í Noregi, 1,8 mg/kg, og næstminnst á Íslandi eða 4,4, mg/ kg. Benda verður á að alífuglaræktun er einnig mun minni hérlendis en í Danmörku, bæði er magnið minna og búin í Danmörku eru mun stærri. Því er ekki hægt að gera beinan samanburð né draga ályktanir um starfsemi íslenskrar alífuglaræktunar út frá því einu að hér sé ræktuð tegundin Ross 308.
Mikilvægt að fara eftir lögum og reglu
Mikilvægt er að stjórnvöld taki virkan þátt í samtalinu um dýravernd og matvælaframleiðslu til þess að ólík sjónarmið fái hljómgrunn og unnið sé að umbótum innan ramma laganna. Innbrotahrina á eldisbú sem átti sér stað í sumar sýndi það skýrt hvernig innbrot og skemmdarverk koma niður á dýrunum sjálfum og náttúrunni. Innbrot til bænda og fyrirtækja sem halda dýr eru bæði eignaspjöll og brot á lögum um velferð dýra.
Á málaskrá Alþingis þennan þingvetur eru endurnýjuð lög um dýravelferð, sem munu mögulega hafa áhrif á einstaka starfsgreinar. Niðurstaðan mun hafa áhrif á þær kröfur sem gerðar verða til viðkomandi búgreina, svo sem með uppbyggingu húsakosts og meðhöndlun á lífrænum hliðarstraumum, svo sem svínamykju, sem vonir standa til að verði hægt að nýta sem áburðargjafa. Bændur, eins og aðrar starfsstéttir, starfa innan lagaramma, sem er fylgt eftir af skilgreindum eftirlitsaðilum. Því er mikilvægt að liðkað sé fyrir leyfisveitingum til betrumbætandi framkvæmda svo sem á búum, aðbúnaði og tækjum.
