Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra undirritaði nýlega tvo samninga um uppbyggingu og styrkingu fjarskiptainnviða á fimm stöðum á landinu. Markmið samninganna er að bæta útbreiðslu farnets og auka öryggi fjarskipta. 37,1 milljón króna er varið til verkefnanna.
Fjarskiptaöryggi á þekktum ferðamannastöðum eykst við framkvæmdirnar. Þar á meðal við Látrabjarg og fossinn Glym í Hvalfirði þar sem takmarkað samband á gönguleiðinni hefur valdið erfiðleikum þegar slys hafa orðið.
Nýr sendastaður nærri Staðarhrauni
Annar tveggja samninga sem ráðherra undirritaði er við Borgarbyggð og hinn við Öryggisfjarskipti, félag í eigu ríkissjóðs og Neyðarlínunnar, um eflingu innviða á fjórum svæðum á Vestfjörðum, Vesturlandi og Austurlandi.
Í Borgarbyggð er áhersla á bætta farnetsþjónustu og möguleika á neyðarsímtölum, ekki síst ef hætta steðjar að og til rýmingar þarf að koma sunnan Ljósufjalla við Grjótárvatn og í Hítardal, þar sem farnetssamband er víða takmarkað.
Sveitarfélagið leiðir verkefnið sem felur í sér að reisa nýjan sendi nærri Staðarhrauni, uppbyggingu aðstöðu, mastur og tengingar við rafmagn og ljósleiðara.
Dynjandisheiði, Látrabjarg, Glymur og Mjóifjörður
Nýrri fjarskiptastöð verður komið upp á Dynjandisheiði og lagður verður ljósleiðari frá Breiðuvík að fjarskiptastöðinni á Urðarhjalla, sem þjóna mun svæðinu umhverfis Látrabjarg og stórum hafsvæðum vestan þess og á Breiðafirði. Ný fjarskiptaaðstaða verður byggð sem bætir farnetssamband í Hvalfjarðarbotni og gönguleiðinni að fossinum Glymi. Lagður verður viðbótarljósleiðari yfir um Brekkugjá sem mun auka öryggi við Mjóafjörð og Dalatanga. Þar sleit grjótskriða nýverið eina ljósleiðarann á svæðinu í sundur. Þar verða lagnaleiðir brátt tvær og aðskildar.
Öryggisfjarskipti annast framkvæmd þessara verkefna. Framlag ráðuneytisins til þess hluta eru 32,6 milljónir króna og 4,5 milljónir til Borgarbyggðar. Verklok eru áætluð vorið 2027.
