Töfrar Tálknafjarðar
Nýtt byggðaþróunarverkefni undir heitinu Töfrar Tálknafjarðar hófst formlega með íbúaþingi dagana 30. og 31. október síðastliðinn.
Yfir fjórðungur íbúa Tálknafjarðar tók virkan þátt í líflegum og málefnalegum umræðum á þinginu en lögð voru til alls 26 málefni sem var forgangsraðað eftir mikilvægi. Það má segja að nú séu spennandi tímar fram undan í samstarfi við íbúa og aðra hagaðila.
Ef litið er aðeins yfir umræður þingsins kom í ljós að samgöngumál rötuðu efst á lista sem einstakur málaflokkur, en í heildina fengu atvinnu-mál mest vægi. Íbúar horfa þar til tækifæra í sjávarútvegi, landbúnaði og ferðaþjónustu auk þess sem lögð er áhersla á óstaðbundin störf, ímynd og markaðssetningu. Einnig telja íbúar að húsnæðismál, skólamál, menning, afþreying og útivistaraðstaða skipti sköpum fyrir eflingu samfélagsins. Þá var bent á mikilvægi þess að standa vörð um fjölskylduvænt samfélag og fjölskylduvæna vinnustaði, bæta heilbrigðisþjónustu og efla félagsstarf eldri borgara. Auk þess var mikill áhugi á náttúruvernd og bættri ásýnd og umgengni í byggðarlaginu.
Á þinginu voru einnig kynnt skilaboð frá nemendum Tálknafjarðar- skóla sem rímuðu vel við áherslur hinna fullorðnu þegar kom að skóla- málum, húsnæði, afþreyingu og samgöngum. Börnin lögðu áherslu á kosti þess að búa í litlu og samheldnu samfélagi í nálægð við náttúruna þar sem allir þekkjast og auðvelt er að fá aðstoð við námið. Þau eiga sér einnig ýmsa drauma um framtíðina, svo sem um byggingu tréhúss, íþróttabrautar í skólanum og einnig aukið framboð list- og verkgreina.
Sigurborg Kr. Hannesdóttir hjá ILDI stýrði þinginu og vinnur nú að samantekt á niðurstöðum þess. Verkefnið er það sautjánda í röðinni í verkefnum Brothættra byggða á vegum Byggðastofnunar. Að því standa Byggðastofnun, Vestfjarðastofa og Vesturbyggð ásamt íbúum, en verkefnisstjóri er Bergdís Þrastardóttir, starfsmaður Vestfjarðastofu.
Næsta skref er að verkefnisstjórn og verkefnisstjóri útbúi drög að fimm ára verkefnisáætlun sem byggir á niðurstöðum þingsins. Drögin verða lögð fyrir íbúafund snemma árs 2027 og í kjölfarið verður opnað fyrir umsóknir í Frumkvæðissjóð Töfra Tálknafjarðar. Áætlunin verður endur- skoðuð árlega í samráði við íbúa, en markmiðið er að nýta betur auðlindir staðarins í náttúru, sögu og mannauði til nýsköpunar og framfara.
