Vísnahornið
Steingrím Thorsteinsson þarf ekki að kynna. Hann yrkir svona fallega um haustið í kvæðinu Haustkvöld:
Setjumst undir vænan við.
Von skal hugann gleðja.
Heyrum sætan svanaklið.
Sumarið er að kveðja.
Vor er indælt eg það veit þá
ástar kveður raustin.
En ekkert fegra´á fold ég leit
en fagurt kvöld á haustin.
Fagra haust þá fold ég kveð f
aðmi vef mig þínum.
Bleikra laufa láttu beð
að legstað verða mínum.
Baldvin skáldi, frá Hofsstöðum í Viðvíkursveit, orti þessa haustvísu:
Fölnar smái fífillinn,
fegurð sá er rúinn.
Öll eru stráin stálfreðin,
stakki gráum búin.
Guðrún Árnadóttir frá Oddstöðum í Lundarreykjadal orti um haustið:
Híma stráin hélu rennd.
Hretið sá um dóminn.
Sveimar þráin klökkvakennd
kringum dáin blómin.
Margar sunnlenskar konu hafa verið með lipurt ljóðamál á tungu. Þessi góða staka er eftir Guðlaugu Sveinbjörnsdóttur, Uppsölum í Flóa:
Auka mörgum yndisstund,
eyða skapi þungu,
þeir sem hafa létta lund
og ljóðamál á tungu.
Guðlaug á Uppsölum orti líka þessa og margir geta þar tekið undir:
Flest þó missi völd og veg,
valtir tímar líði,
eina hylli íþrótt ég,
er það ljóðasmíði.
Guðlaug yrkir svo um tímann sem óðum nálgast:
Kreppir vetur kalda hönd
kúra blóm í dái.
Kominn er í klakabönd
káti fossinn smái.
Arnleif Lýðsdóttir (1877–1960) frá Brattholti í Biskupstungum orti þetta fallega kvæði um haustið:
Sest eg fangin fagra kveld,
fjörudrangann undir.
Hafs við vang á himins eld
horfi langar stundir.
Heyrist gnöldur hafi frá,
hrærast öldur kvikar.
Himins tjöldum heiðum á
hnattafjöldinn blikar.
Norðurljósin letra þar
leifturrósir gylltar.
Ægisdrósir dimmbláar
dansa á ósi stilltar.
Guðmundur Stefánsson, bóndi í Hraungerði í Flóa, á margar góðar:
Ævigátu á ég svar:
Yndisstund ei dvínar
meðan eru ódrýgðar
ótal syndir mínar.
Umsjón: Magnús Halldórsson
mhalldorsson0610[hjá]gmail.com
