Mótaðu framtíð skýrsluhalds- kerfanna með okkur
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) vinnur að endurhönnun skýrsluhaldskerfanna og óskar nú eftir bændum og búfjáreigendum í rýnihópa fyrir Huppu, Heiðrúnu og Fjárvís til að hafa áhrif á þróun þeirra.
Skýrsluhaldskerfin geyma verðmætar upplýsingar sem styðja við ræktunarstarf og búrekstur um land allt. Með endurhönnun þeirra er markmiðið að einfalda dagleg störf, auðvelda notkun í farsímum og veita bændum skýrari yfirsýn til ákvarðanatöku á eigin búum.
Þarfir bænda í forgrunni
Árið 2025 lét RML vinna greiningu á gagnalandslagi landbúnaðarins og hvernig gögn og skýrsluhaldskerfi geti nýst bændum betur. Viðtöl við bændur og notendakannanir hafa gefið skýra stefnu fyrir framhaldið: einfaldari vinnubrögð, hraðari kerfi, aðgengilegar lykiltölur og betra samspil upplýsinga milli kerfa.
Þessar áherslur verða leiðarljós við endurhönnun kerfanna, þar sem bæði útlit, uppbygging og vinnuferlar verða tekin til endurskoðunar.
Vinnan er hafin
Undanfarið ár hefur farið fram umfangsmikil undirbúningsvinna við að samræma virkni og útlit kerfanna. Ný Heiðrún fór í loftið í sumar, unnið er að því að færa Huppu í nýtt umhverfi og undirbúningur að endurforritun Fjárvís er að hefjast. Samhliða er unnið að samræmingu kerfanna og Jörð mun brátt birtast í nýju útliti.
Þróun nýs WorldFengs er einnig hafin, en auglýst verður sérstaklega eftir alþjóðlegum rýnihópi fyrir hann síðar.
Vilt þú taka þátt?
Til að kerfin nýtist sem best viljum við móta þau í samráði við notendur. Hvað myndi spara þér tíma? Hvaða upplýsingar þarftu að hafa við höndina? Hvaða skráningar mætti einfalda?
Nú þegar eru starfandi rýnihópar fyrir Heiðrúnu og Huppu og hefur framlag þátttakenda verið dýrmætt fyrir þróunina. Við viljum byggja áfram á því samstarfi og bjóða fleiri þátttakendur velkomna í þá hópa, auk þess að stofna rýnihóp fyrir Fjárvís.
Stefnt er að 8–12 þátttakendum í hverjum hópi. Við leitum að bændum og búfjáreigendum með ólíkan bakgrunn og mismikla reynslu af kerfunum. Ekki þarf sérstaka tölvuþekkingu – reynsla þín úr daglegum störfum er það sem skiptir máli.
Áhugasamir geta skráð sig í gegnum QR kóðann sem hér fylgir eða í gegnum heimasíðu RML.
Við hlökkum til að móta næstu skref með ykkur.
Gunnfríður Elín er verkefnastjóri Þróunar og verkefnastofu og Christina er sérfræðingur í hugbúnaðarþróun hjá RML.
