Ræða við opnun Landbúnaðarsýningarinnar
Drottinn, sem veitir frægð og heill til forna,
farsæld og manndáð, vek oss endurborna.
Strjúk oss af augum nótt og harm þess horfna,
hniginnar aldar tárin láttu þorna.
Dagur er risinn, öld af öld er borin,
aldarsól ný er send að skapa vorin
Árdegið kallar, áfram liggja sporin.
Enn er ei vorri framtíð stakkur skorinn.
Herhvöt Hannesar Hafstein, fyrsta ráðherra Íslands, í ljóði sínu Aldamótin er enn í fullu gildi. „Enn er ei vorri framtíð stakkur skorinn.“ Íslendingar höfnuðu því afdráttarlaust að selja fullveldi lands vors og sjálfdæmi í annarra hendur. Við ráðum okkar auðlindum sjálf, hafinu bláa og landinu græna. Og nú er ekkert annað en að bretta upp ermar, byggja upp og rækta og minnast þess að við eigum einn besta landbúnað heimsins. Fjölskyldubúin með alúð bændanna sem færa neytendum heilbrigðustu og hollustu landbúnaðarvörur í heimi inn á eldhúsborð hvern dag.
Landbúnaðarsýningin heillar þjóðina
En hugsið ykkur hvað þessi Landbúnaðarsýning er sterk áminning um áhuga þjóðarinnar á framförum og nýjungum í íslenskum landbúnaði. Hingað koma um 60 þúsund manns á fjögurra ára fresti sem þykir vænt um landbúnaðinn sinn, bændurna, búpeninginn og sveitirnar með bleika akra og slegin tún. Þarna er ekki bara lagður grunnur að fæðuöryggi þjóðarinnar heldur líka heilnæmi matvörunnar. Til viðbótar leika grösugar sveitir landsins án nokkurs vafa stórt hlutverk í ferðaiðnaði þjóðarinnar. Án þeirra væri aksturinn á milli áfangastaðanna ábyggilega nöturlegur.
Skjöldóttar kýr, besti hestur heimsins og lagðprútt sauðféð í haganum á beit. Lambið fæðist úti í guðsgrænni náttúrunni á vorin, drekkur móðurmjólkina, teygar vatn úr lækjum og lindum, bítur gras við jökulrönd sem sprettur undan sól og regni. Svo sækir fjallsmalinn lambið inn á öræfin á besta hesti heimsins. Og lambið deyr fyrir mig og þig. Og er guðslambið sjálft. Hver er ekki sveitamaður í göngum og réttum á haustin?
Bændurnir eru landverðir Íslands
Sveitirnar eru á ábyrgð bændanna. Þeir eru landverðir þjóðarinnar. Tónninn var gefinn af landnámshetjunum. Í grunninn voru þeir Njáll og Gunnar á Hlíðarenda, Hildigunnur Starkaðardóttir, Snorri Sturluson og aðrir garpar Íslendingasagnanna bændur. Hinn spakvitri Njáll var ekki eingöngu með djúpstæða þekkingu í lögum heldur líka landbúnaði. Hann fór á undan sinni samtíð og þoldi eflaust víða bæði glott og grín fyrir að bera skarna á tún sín til þess að örva sprettuna. Hallgerði langbrók þótti honum hollara að bera skítinn á kjálka sína til þess að örva skeggvöxtinn sem enginn var.
Þannig voru bændur til forna, rétt eins og í dag, í stöðugri leit að framförum. Síðustu áratugina hafa þær verið stórstígar. Um það ber þessi sýning fagurt vitni. Nánast á hverjum fermetra sjáum við nýjungar sem spara bændum sporin, létta þeim líkamlegt erfiði, efla framfarir hvers kyns ræktunar og bæta aðbúnað með ýmsum hætti.
Byggja verður fjós og fjárhús
Þetta eru lykilatriði fyrir nýliðun í bændastéttinni. Ég er ekki einungis að hugsa um betri tækjabúnað og aukna þekkingu. Ég er upptekinn af þeirri hættulegu staðreynd að húsakosturinn, fjósin og fjárhúsin, eru fyrir löngu farin að úreldast. Svigrúmið til fjárfestinga er í lágmarki, skilningur stjórnvalda við frostmark. Við verðum að byggja ný fjós um allt land – svona eins og gert hefur verið á skagfirska efnahagssvæðinu þar sem vel er stutt við bak bænda. Við verðum einnig að hrinda í gang byggingum nýrra fjárhúsa. Í senn þarf að huga að nútímalegri vinnuaðstöðu bændanna og vellíðan búpeningsins. Þessar fjárfestingar þola enga bið.
Ég skora á bændaforystuna og ríkisstjórnina, iðnaðinn og atvinnulífið að gyrða sig í brók. Frændur okkar í Noregi eru góð fyrirmynd en þar tóku stjórnvöld þá einföldu ákvörðun að halda landinu í byggð og efla landbúnaðinn með öllum tiltækum ráðum.
En hvað ætlum við að gera á allra næstu árum? Ætlum við að fljóta sofandi að feigðarósi eða snúa vörn í sókn? Vakna af þessum væra blundi, hrekja af okkur lamandi hönd skilningsleysis og fylkja liði að baki íslenskum landbúnaði? UPP MEÐ LANDBÚNAÐINN. UPP MEÐ NJÁLU!
Hannes Hafstein missti aldrei móðinn og heldur áfram í aldamótaljóði sínu:
Sú kemur tíð, er sárin foldar gróa,
sveitirnar fyllast, akrar hylja móa,
brauð veitir sonum móðurmoldin frjóa,
menningin vex í lundi nýrra skóga.
Starfið er margt, en eitt er bræðra bandið,
boðorðið, hvar sem þér í fylking standið,
hvernig sem stríðið þá og þá er blandið, það er:
Að elska, byggja og treysta á landið.
Höfundur er fyrrverandi landbúnaðarráðherra.
