Fæðuöryggi byrjar í moldinni
Á loftslagsdeginum í Hörpu tók ég þátt í málstofu um fæðuöryggi þar sem ég fjallaði um tækifærin sem felast í lífrænni ræktun. Ég byrjaði erindið á því að spyrja áheyrendur hversu margir hefðu ræktað grænmeti heima í garðinum sínum og hvaða aðferðir þau hefðu notað í ræktuninni. Notuðu þeir moltu eða lífrænan áburð? Tilbúinn áburð? Eða eiturefni?
Það var mjög greinilegt að flestar hendur fólks fóru á loft við lífrænu aðferðirnar. Það sýnir að fólkið í salnum velur þessar aðferðir fram yfir hinar þegar þau rækta heima í garðinum sínum fyrir fjölskylduna sína. En hvað ef við hugsuðum á sama hátt um landbúnaðinn okkar í heild?
Moldin – undirstaða matvælaframleiðslu
Um 95% af matnum í heiminum í dag er framleiddur beint eða óbeint úr jarðvegi. Samt er talið að 60–70% jarðvegs í Evrópu sé í óheilbrigðu ástandi. Ástæðurnar eru margvíslegar, meðal annars einhæf ræktun, ber jarðvegur, ofnotkun á tilbúinum áburði og notkun á eiturefnum. Jarðvegur hnignar einnig þegar lífrænu efni er ekki skilað aftur til baka í hann, inn í hringrásina.
Jarðvegurinn er þó miklu meira en bara það efni sem plönturnar vaxa í. Hann er lifandi vistkerfi, fullt af örverum, sveppum og öðrum lífverum sem gegna mikilvægu hlutverki í hringrás næringarefna og frjósemi landsins.
Heilbrigður jarðvegur er bæði loftslagsaðgerð og tryggir betur fæðuöryggi
Jarðvegur er ein stærsta kolefnis- geymsla jarðarinnar. Jarðvegur geymir meira kolefni en andrúmsloftið og allur gróður jarðarinnar samanlagt! Hvernig við ræktum landið og förum með jarðveginn hefur áhrif á loftslagið.
Fjölmargar erlendar rannsóknir hafa sýnt að lífrænar ræktunar- aðferðir stuðla að auknu magni kolefnis í jarðvegi og fjölbreyttara jarðvegslífi heldur en í almennum landbúnaði. Heilbrigður jarðvegur virkar eins og svampur. Hann getur tekið við miklu vatni í mikilli úrkomu og geymt vatn betur í þurrkum. Þetta skiptir sífellt meira máli þegar loftslagsbreytingar hafa áhrif á úrkomumynstur, þurrka og ræktunarskilyrði. Að byggja upp heilbrigðan jarðveg er bæði umhverfismál og mikilvægur þáttur í að styrkja viðnámsþrótt landbúnaðarins.
Það getur tekið aldir að mynda örfáa sentímetra af frjósömum jarðvegi, en aðeins örfá ár að eyðileggja hann. Íslendingar þekkja afleiðingar jarðvegseyðingar betur en margar aðrar þjóðir.
Að vernda moldina er ekki bara náttúruvernd. Moldin er matarkistan okkar og barnanna okkar. Það skiptir miklu máli að við verndum þessa dýrmætu matarkistu fyrir komandi kynslóðir.
Íslenskir bændur búa yfir ótrúlegu hugviti
Stundum heyri ég sagt að uppskeran sé oft síðri í lífrænni ræktun, en svo þarf alls ekki að vera. Það eru mörg dæmi um það hér á Íslandi t.d. í grænmetisræktun þar sem lífrænu aðferðirnar skila alveg sambærilegri uppskeru og almennu aðferðirnar – og stundum betri.
Þegar ég vann að heimildarmyndinni GRÓU um lífræna ræktun á Íslandi ferðaðist ég um landið og hitti fjölmarga lífræna bændur sem höfðu þróað fjölbreyttar og hugvitssamlegar leiðir til ræktunar og matvælaframleiðslu.
Í Skagafirði heimsótti ég Elínborgu. Á myndinni má sjá hana með rófu á stærð við mannshöfuð, eingöngu ræktaða með lífrænum áburði í íslenskum jarðvegi.
Í Vallanesi hafa Eymundur og Eygló byggt upp öfluga lífræna korn- og matvælaframleiðslu. Þau hafa meðal annars ræktað tómata í gróðurhús upphituðu eingöngu með viðarorku og sólarorku. Þau hafa líka plantað um tíu kílómetrum af skjólbeltum og byggt upp skógrækt sem skýlir ræktuninni, bætir ræktunarskilyrði og bindur kolefni. Samkvæmt útreikningum þeirra sjálfra er nettó kolefnisbinding á búinu um 1.100 tonn af CO2 þegar tekið hefur verið tillit til losunar frá framleiðslunni.
Kristján og Dóra, stofnendur Biobú, lífrænu mjólkurvinnslunnar, hafa einnig unnið með áhugaverðar aðferðir á Neðra-Hálsi. Kristján hefur verið að framleiða lífkol úr viði sem hann grisjar úr skóginum. Hann brennir viðinn við lítið súrefni og úr því verða lífkol sem eru með mjög hátt magn kolefnis. Lífkolunum er svo dreift á túnin, þar sem þau bæta jarðveginn og virka sem langtíma kolefnisbinding í jarðvegi.
Þetta eru aðeins nokkur dæmi um þá miklu þekkingu og sköpunargáfu sem býr í íslenskum bændum.
Ímyndum okkur hvað við gætum gert ef við byggðum markvisst upp rannsóknir, ráðgjöf og þekkingu á lífrænni ræktun fyrir íslenskar aðstæður. Hvaða nýjar aðferðir gætu orðið til og hvaða gömlu aðferðir mætti endurvekja?
Fæðuöryggi snýst líka um hvaðan áburðurinn kemur
Þegar við ræðum fæðuöryggi snýst umræðan gjarnan um hversu mikið af matvælum við framleiðum sjálf. En við þurfum líka að horfa á það hversu háð framleiðslan er innfluttum aðföngum.
Nánast allur tilbúnn áburður sem íslenskur landbúnaður notar er innfluttur og hann kemur úr línulegu kerfi, ekki hrinrásarkerfi. Framleiðsla á tilbúnum áburði er orkufrek og er unnin með jarðefnaeldsneyti. Verð og framboð eru því háð alþjóðlegum orku- og hráefnismörkuðum.
Við sáum skýrt hversu viðkvæmt þetta kerfi getur verið þegar áburðarverð hækkaði mikið eftir innrás Rússlands í Úkraínu árið 2022. Bændur sem treystu á tilbúinn áburð fundu strax fyrir þessum hækkunum, lífrænir bændur síður þar sem þeirra áburður kemur úr staðbundinni innlendri hringrás hér á Íslandi.
Lífrænn landbúnaður byggir á öðrum forsendum. Þar er lögð áhersla á að viðhalda frjósemi jarðvegsins með lífrænum áburði, skiptiræktun og hringrás næringarefna, fremur en að treysta á tilbúinn köfnunarefnisáburð.
Það þýðir ekki að lífrænir bændur séu ekki háðir aðföngum eða að allar áskoranir hverfi. En með því að byggja ræktunina á staðbundnum innlendum áburðargjöfum úr hringrásinni hér á Íslandi og nýta næringarefni betur má draga úr þörfinni fyrir innfluttan tilbúinn áburð.
Á Íslandi felast mikil tækifæri í betri nýtingu lífrænna auðlinda. Við höfum búfjáráburð, matarleifar, fiskúrgang, þang og ýmsar hliðarafurðir frá matvælaframleiðslu, sem í dag fara að miklu leyti til spillis en eru í raun verðmæt hráefni. Með því að nýta þau betur mætti styrkja innlenda framleiðslu á lífrænum áburði og auka fæðuöryggi Íslands til langs tíma. Til þess þarf þó að byggja betur upp innviði fyrir söfnun, vinnslu og dreifingu á lífrænum áburði.
Tífalda á lífræna ræktun á Íslandi
Í dag er lífræn framleiðsla aðeins lítill hluti íslensks landbúnaðar, um 1%. Þetta er athyglisvert í landi sem byggir ímynd sína að stórum hluta á hreinni náttúru og hreinum matvælum.
Í Evrópusambandinu hefur verið sett markmið um að 25% land- búnaðarlands verði lífrænt vottað árið 2030. Á Íslandi kom út aðgerðaáætlun hjá atvinnuvega- ráðuneytinu um að tífalda lífrænt vottað landbúnaðarland og verði það 10% árið 2040.
Það er stórt skref frá núverandi stöðu, en um leið tækifæri til að efla íslenskan landbúnað, auka fjölbreytni í framleiðslu og byggja upp nýja þekkingu og markaði.
Til þess að slíkt markmið náist þarf þó meira en áhuga einstakra bænda.
Bændur sem vilja hefja lífræna framleiðslu þurfa að hafa aðgang að faglegri ráðgjöf, rannsóknum og þekkingu sem tekur mið af íslenskum aðstæðum. Aðlögun að lífrænum framleiðsluháttum getur kallað á breytingar í rekstri, nýjar aðferðir og fjárfestingar. Hún getur líka falið í sér áhættu, sérstaklega ef markaðurinn fyrir afurðirnar er ótryggur. Þess vegna þurfa uppbygging framleiðslunnar og þróun markaðarins að haldast í hendur.
Þar geta opinber innkaup gegnt mikilvægu hlutverki. Skólar, leikskólar, sjúkrahús og önnur mötuneyti kaupa mikið magn matvæla á hverjum degi. Með skýrum markmiðum um kaup á lífrænum matvælum væri hægt að skapa stöðugri eftirspurn og betri forsendur fyrir bændur til að fjárfesta í framleiðslunni.
Við þurfum jafnframt að efla samstarf bænda, rannsóknastofnana, ráðgjafa, matvælaframleiðenda, verslana og stjórnvalda. Uppbygging lífræns landbúnaðar er ekki verkefni sem bændur geta eða eiga að bera einir.
Það er því vert að segja frá því að Fagráð í lífrænum búskap kynnir í samstarfi við VOR og Lífrænt Ísland málþingið:
Tíföldum lífræna framleiðslu - blásið til sóknar!
Málþingið er haldið með stuðningi atvinnuvegaráðuneytisins í Kaldalóni í Hörpu fimmtudaginn 19. nóvember kl. 10–15:30.
Skráning er á vefslóðinni www.lifraentisland.is
Lífræn ræktun er ekki aðeins hugmyndafræði eða yfirlýsing framleiðanda. Hún byggir á lögbundnum reglum, vottun og eftirliti með framleiðsluháttum. Reglurnar taka meðal annars til áburðarnotkunar, varnarefna, jarðvegsverndar og dýravelferðar.
Lífræna vottunarkerfið er alþjóðlegt kerfi sem hefur verið þróað og mótað í áratugi og býður upp á verkfæri til að vinna að umhverfisvænni matvælaframleiðslu. Í allri umræðunni um loftslagsmál og umhverfismál er mikilvægt að horfa til þeirra kerfa sem eru nú þegar til og eru með lausnir sem gagnast öllu samfélaginu. Það er full ástæða til að nýta betur þá reynslu og þekkingu sem þar hefur skapast.
Þekkingin sem við megum ekki glata
Tengdaforeldrar mínir, Britta og Søren, hafa stundað lífrænan búskap á Jótlandi í Danmörku í þrjátíu ár. Nú eru þau að láta af búskap.
Í fjórtán ár hef ég notið þess að heimsækja þau og kynnast lífrænni ræktun innan frá. Fyrir þann tíma hafði ég engan áhuga á matvælaframleiðslu eða lífrænni ræktun, hélt þetta skipti engu máli, en í dag er ég á allt öðru máli. Britta hefur ræktað og selt um 85 tegundir af grænmeti á hverju ári í versluninni sinni á býlinu og Søren hefur séð um kýrnar. Börnin mín hafa fengið að alast upp við að ganga út í grænmetisbeð og tína ferskt grænmeti beint í kvöldmatinn, stundum tegundir sem ég kann ekki einu sinni nafnið á. Britta er ástæðan fyrir því að ég fékk áhuga á lífrænni ræktun og lífrænum mat.
En þegar ég hugsa um þau í dag hugsa ég ekki síður um þá þekkingu sem felst í því að hafa ræktað landið sitt með lífrænum aðferðum í þrjá áratugi. Að þekkja moldina, árstíðirnar, plönturnar og hvernig hægt er að byggja upp frjósemi jarðvegsins ár eftir ár.
Sömu hugsun fæ ég þegar ég heimsæki íslenska lífræna bændur. Þar er að finna þekkingu sem hefur orðið til með reynslu, samtali, tilraunum, mistökum og þrautseigju. Þekkingu sem er verðmæt fyrir íslenskan landbúnað og samfélagið allt.
Þegar rætt er um fæðuöryggi er mikilvægt að horfa ekki bara á framleiðslutölur, birgðir og aðfangakeðjur. Fæðuöryggi byggir líka á að það sé til fólk, bændur sem hafa þekkingu á hvernig er hægt að rækta matinn okkar hér á Íslandi úr staðbundinni innlendri hringrás.
Ef samfélagið stæði frammi fyrir alvarlegum áföllum veit ég hverja ég vildi hafa mér við hlið: Brittu og Søren og alla þá íslensku lífrænu bændur sem ég hef heimsótt og lært af. Fólk sem kann að rækta mat úr hringrásinni hér á Íslandi.
Þess vegna þurfum við að hlúa að þessari þekkingu, efla hana og tryggja að hún berist áfram til næstu kynslóða.
Lífrænn landbúnaður er ekki eina lausnin við þeim áskorunum sem íslenskur landbúnaður stendur frammi fyrir. En hann býður upp á mikilvæga möguleika til að byggja upp heilbrigðari jarðveg, efla hringrás næringarefna, draga úr þörf okkar fyrir innfluttan tilbúinn áburð og styrkja fæðuöryggi okkar til framtíðar.
Á loftslagsdeginum í Hörpu höfðu flestir í salnum valið að rækta með lífrænum aðferðum þegar þau ræktuðu grænmeti í garðinum sínum heima. Ég vil að við hugsum eins um allt Ísland. Að við lítum á jarðveginn á Íslandi sem garðinn okkar allra, sem hann er – og matarkista komandi kynslóða.
Loftslagsvæn framtíð byrjar ekki bara á því sem við hættum að losa. Hún byrjar líka á því sem við veljum að byggja upp og rækta.
Ræktum framtíðina og nýtum tækifærin sem felast í að byggja upp lífrænt Ísland.
Höfundur er verkefnastjóri hjá Lífrænt Ísland.
