Tilmæli um ábyrga notkun gervigreindar
Bandalag íslenskra listamanna (BÍL) hefur ákveðið að hrinda af stað átaki þar sem vakin er athygli á mikilvægi höfundarréttar, virðingu fyrir listafólki og vernd mannlegrar sköpunar á tímum gervigreindar.
Átakinu, sem heitir „Stillum saman strengi“, verður ýtt úr vör með útgáfuhófi í Norræna húsinu klukkan 17:00 á Degi íslenskrar tungu 16. nóvember. Jóna Hlíf Halldórsdóttir, forseti BÍL, segir í samtali að bandalaginu hafi fundist vanta tilmæli sem auðvelt væri fyrir almenning, stofnanir og fyrirtæki að fara eftir. Á útgáfuhófinu verður birtur bæklingur með tilmælum sem beint er til allra sem nota gervigreind.
„Þetta er flókið viðfangsefni og við höfum verið sofandi á verðinum,“ segir Jóna. „Við vitum af fólki sem er að nota gervigreind til þess að búa til tónlist í anda þekktra listamanna á borð við Björk og Sigur Rós. Eins höfum við heyrt af kennurum sem eru að renna heilu bókunum í gegnum gervigreind til þess að búa til verkefni, án þess að biðja höfunda um leyfi. Þetta eru dæmi um notkun sem getur falið í sér brot á höfundarrétti og við finnum að mikil óvissa ríkir í samfélaginu um hvar mörkin liggja. Gervigreindin er auðvitað komin til að vera, en við viljum ná til samfélagsins og stuðla að því að fólk nýti þessa tækni af ábyrgð og virðingu fyrir höfundarrétti og sköpunarverki listafólks.
Hugmyndin að þessum tilmælum spratt frá sænskum systursamtökum BÍL sem heita KLYS (Konstnärliga och Litterära Yrkesutövares Samarbetsnämnd) sem gáfu út sambærilegan bækling í júní 2025. Við byrjuðum á að þýða og staðfæra þann bækling og unnum hann svo nánar með lögfræðingum sem eru sérfræðingar í höfundarréttarmálum.
Við eigum í góðu samstarfi við menningar-, nýsköpunar- og háskóla- ráðuneytið og viljum jafnframt efla samstarf við önnur viðeigandi ráðuneyti. Okkur finnst mikilvægt að tilmælin nái sem víðast og verði kynnt og innleidd hjá opinberum stofnunum, sveitarfélögum og öðrum aðilum sem nýta sér gervigreind í starfsemi sinni.
Það á við um allar stofnanir, meira að segja lögregluna, sem hefur meðal annars nýtt gervigreind til að útbúa límmiða fyrir börn. Það sýnir hversu hratt tæknin er að ryðja sér til rúms og hversu mikilvægt er að fólk hafi skýrar leiðbeiningar um ábyrga notkun hennar.
Við viljum fá alla þjóðina með. Þess vegna köllum við átakið „Stillum saman strengi“. Markmiðið er að skapa jafnvægi milli tækniþróunar og nýsköpunar annars vegar og hins vegar virðingar fyrir höfundarrétti og forsendum mannlegrar sköpunar. Eins viljum við að tilmælin verði til þess að stjórnvöld ráðist í nauðsynlegar lagabreytingar svo að lögin taki betur utan um réttindi höfunda og listafólks í samhengi við þróun og notkun gervigreindar. Það þarf meðal annars að tryggja að fyrirtæki sem þróa gervigreindarlíkön greiði fyrir notkun á höfundarréttarvörðum verkum og að höfundar fái sanngjarnt endurgjald fyrir notkun hugverka sinna,“ segir Jóna.
Í fréttatilkynningu frá BÍL eru tilmælin átta tekin saman í stuttu máli. Þau eru:
- Virðum og verndum höfundarréttinn.
- Notum ekki gervigreindarverkfæri sem þrengja að höfundarrétti.
- Athugum að efni sem framleitt er af gervigreind er ekki verndað af höfundarrétti.
- Gefum skýrt til kynna hvort efnið er framleitt af gervigreind.
- Setjum ekki eigið nafn við efni framleitt af gervigreind.
- Mötum ekki gervigreindarforrit á efni eftir aðra.
- Framleiðum ekki efni í persónulegum og einstökum stíl annarra.
- Skiptum ekki út vinnu starfandi höfunda og listamanna fyrir spunagreind.
Nánari útskýringar verður hægt að nálgast í bæklingnum sem gefinn verður út 16. nóvember.
