Jóannes Patursson bóndi á Kirkjubøgarði.
Jóannes Patursson bóndi á Kirkjubøgarði.
Viðtal 11. nóvember 2026

Sautjándi ættliður í Kirkjubæ í Færeyjum

Höfundur: Sigríður Huld Blöndal

Það er fagur dagur í Tórshavn í dag og ég er að gera mig ferðbúna að leggja af stað til Íslands en á eitt mikilvægt stopp áður og það er að heimsækja Kirkjubæ. Sólin skín þennan dag og ég legg af stað frá Tórshavn full tilhlökkunar að heimsækja þennan sögufræga stað, en þangað kom ég fyrst sem barn. Í Kirkjubæ er nokkur hundruð ára saga allt frá tímum víkinga og síðar biskupstíðar og konungstíðar. Það tekur um 15 mínútur að aka til Kirkjubæjar frá Tórshavn. Síðasti spölurinn er einbreiður vegur og þegar á leiðarenda er komið eru ferðamenn þau fyrstu sem ég sé á staðnum. Ég geng framhjá hvítri kirkju sem er elsta kirkja Færeyja, síðan um árið 1100 og geng síðar upp að Kirkjubøgarði þar sem Jóannes Patursson og kona hans Gudrið búa ásamt fjórum sonum sínum.

Það er eins og að koma nokkur hundruð ár aftur í tímann þegar komið er hingað, húsin sum byggð voru fyrir um 700-900 árum síðan, vel við haldin. Við mér blasir einnig hinn tignarlegi og flotti “Múrinn” svokallaði en þetta eru rústir af hinni sögufrægu Magnúsarkirkju frá um 1300. Í dag standa einungis veggir kirkjunnar eftir sem setja mikinn svip á staðinn. Kirkjubær stendur við sjóinn og útsýnið er stórfenglegt yfir á eyjarnar Koltur og Hest og eftir sjónum eins langt og augað eygir. Ég banka uppá og Jóannes tekur glaðlegur á móti mér klæddur í færeyska peysu og býður mig hjartanlega velkomna. Hann er bóndi á bænum og er 17 ættliður sömu fjölskyldunnar í Kirkjubæ, Patersson ættarinnar. Við göngum inní stórt og rúmgott eldhús og setjumst síðan inní stofuna “Stóru stovu” sem svo er kölluð og fáum okkur kaffi og kökur með því. Inni í stofunni eru húsmunir sem eiga sér langa sögu og málverk af ættfólki Jóannesar. Næst fáum við okkur sæti við fallegt borð við gluggan og sjáum ferðmenn á gangi fyrir utan húsið. Sagan drýpur hér af veggjum og munum og ég byrja á að spyrja Jóannes útí þessa miklu sögu Kirkjubæjar.

Sagan hér er allt frá tímum víkingatíðar um árið 800. Síðan segir sagan að um árið 1000 hafi hér verið bóndakona nokkur kölluð Streymoyar Birna og átti hún Kirkjubæ og alla Streymoy. Hún var gift „Tórhalli ríka sum er af götuskeggjaslagnum“ eins og Jóannes kemst svo skemmtilega til orða á færeysku.

Hún hafi átt þrjár dætur og skipti stórum landshlutum á milli þeirra og dóttir hennar Gæsa hafi fengið Kirkjubæ. Sú á að hafa tekið á móti fyrstu kaþólsku prestunum sem komu hingað og fengu að búa hjá henni. En hún hafi síðan verið send í burtu einn dag í föstunni, ákærð fyrir að borða kjöt, já þetta segja sagnirnar. Þá verður bóndabærinn lagður niður og prestarnir taka við. Á þeim tíma stóð byggðin í Kirkjubæ úti á hólma hér sem var landfastur og þar á að hafa verið stærri byggð en er hér í dag, um 50 hús og um 500-800 manna byggð. Þannig var það frá víkingatímanum og á biskupatímanum sem stóð frá 1105-1540 en þá er kaþólska biskupsdæmið lagt niður og danska konungsvaldið tekur við. Konungsvaldið tók allt sem kirkjan átti og skip komu frá Danmörku. Jörðin sem var tekin af konungsvaldinu er síðan leigð út til bænda og verða nokkurs konar konungsjarðir. Á þessum tíma tæmist byggðin sem var hér milli hólms og lands og fólk fór annað.

Árið 1600 gerist svo það að stór flóðalda skolaði öllum húsunum í burtu þar sem gamla byggðin var.

Eftir þennan tíma kemur einokunarverslun sem var mjög ströng í Færeyjum. Þetta tímabil verður Færeyingum erfitt og það er ekki fyrr en árið1850 þegar einokunarverslun er afnumin að Færeyjar fá aftur tengingu við önnur lönd og peningasamfélag tekur við. Fiskvinnan tekur þá yfir og samband við umheiminn opnast, ný tækifæri blasa við. Þá verður einnig fólksfjölgun í Færeyjum. Þetta er á þeim tíma sem langafi og langamma Jóannesar eru að hefja sinn búskap á bænum. Jóannes er ansi fróður um gamla tímann og mikill sögumaður.

Íslensk langamma

Langafi Jóhannesar var nafni hans Jóannes Patursson (18661946) leiðtogi sjálfstæðisbaráttu færeyinga á 20.öld. Hann var stjórnmálamaður, skáld og bóndi í Kirkjubæ. Hann var einn af stofnendum Sjálvstýrisflokksins í Færeyjum og einnig síðar formaður Fólkaflokksins. Skemmtilegt er að segja frá því að langamma Jóannesar var íslensk og hét Guðný Eiríkssdóttir, frá Karlsskála við Reyðarfjörð, faðir hennar var bóndi og útgerðarmaður. En hvernig ætli þau hafi kynnst. Jóannes með sína einstöku frásagnargáfu lætur mann svífa inní gamla tímann og segir frá sögunni. 

„Það var nú þannig að Pálína systir Guðnýjar, íslensku langömmu minnar giftist færeyeskum skipstjóra og Guðný kemur til Færeyja í brúðkaupið og hafði sagt við systur sína og fleiri að hún ætlaði ekki að ná sér í Færeying eins og systir sín og alls ekki bónda en örlögin gripu þarna í taumana og hún verður ástfangin af langafa og flytur til Færeyja”, segir Jóannes. Foreldrar Jóannesar hafi reyndar í byrjun bannað þeim að giftast þar sem hún væri frá erlendu landi og þau vildu að Guðný myndi fá sér landbúnaðarmenntun og hún fer til Noregs að mennta sig og þegar hún kemur aftur fá þau leyfi að giftast. Þau taka síðan við búskapnum á Kirkjubøgarði nokkru síðar og byggja hér fjós og nútímavæða margt á bænum. Þetta er þá rétt fyrir aldamótin 1900.“

Málverk af þeim hjónum hangir einmitt inní stofunni sem við sitjum í. „Þau eignuðust mörg börn, þar á meðal pappa minn Pál Patursson bónda og tvíburabróður hans Trónd Patursson, einn þekktasta listamann Færeyja.“

Ferðaþjónusta

Við fáum okkur meira kaffi. Í blómavösum á borðum eru sóleyjar og önnur blóm úr haganum og stundum eins og sögurnar og gamli tíminn lifni við í þessu fræga húsi. Talið berst svo aftur að húsinu sjálfu en hér býr Jóannes með konu sinni og sonum og þau reka hér ferðaþjónustu. Hluti af húsinu er notað fyrir ferðamenn eins og hin svokallaða Reykstofa (Roykastovan) sem er elsti hluti hússins og eitt af elstu timburhúsum í heimi sem ennþá er búið í. Þetta hefur verið heimili Patursson fjölskyldunnar síðan 1557 og fyrir þann tíma var þetta hluti af biskupatímanum fyrir meira en 900 árum síðan. Roykstofan var það svæði sem var bæði eldstæði og eldhús, vinnuherbergi, stofa og svefnálma hér áður fyrr. Ferðamenn geta núna heimsótt þennan part af húsinu þegar komið er í Kirkjubæ. Þarna, einmitt í Roykstofunni tekur fjölskyldan á móti ferðafólki, hópum í hádegismat, kaffi eða kvöldmat með fyrirlestrum um sögu staðarsins. Ferðaþjónustan er í vexti og fjöldinn allur af ferðafólki sem heimsækir staðinn.

Þetta byrjaði allt þegar foreldrar Jóannesar voru bændur hér, þau Páll Paturson og Sølvá. „Pabbi minn Páll tók hér við bænum árið 1967 og hann og mamma byrjuðu með ferðaþjónustu hér í Kirkjubæ. Það byrjaði þannig að þegar Landstýrið – færeysk stjórnvöld fengu þjóðhöfðingja og fleiri heimsóknir erlendis frá þá var engin „matstova“ í Tórshavn þar sem hægt var að fara út að borða nema Hótel Havnia og Hótel Færeyjar. Það var því tekið uppá því að koma með fólk hingað og eigendur Hótel Færeyja gerðu matinn en boðið sjálft fór fram í Kirkjubæ. Þannig hófst ferðaþjónustan hér á bæ.“

„Þegar ég var barn og ólst hérna upp þá bjuggu hér tvö ættarlið, afi og amma bjuggu einnig á bænum og við bræðrnar þrír. Þá var bændasamfélagið ennþá til staðar eins og í gamla daga og fleiri ættliðir bjuggu saman á bænum. Nú er þetta breytt eins og á Íslandi.“

Kýr og kindur

Það var síðan árið 1999 sem Jóannes og kona hans Gudrid tóku við Kirkjubæ. „Við héldum áfram að vera með mjólkurkýr en árið 2007 seldum við kvótan og fórum meira í ferðaþjónustu sem þá var í miklum vexti og er það enn. Við erum einnig með um 300 kindur. Síðustu ár höfum við notað mest af lambakjötinu í mat fyrir ferðafólk og við tökum á móti hópum þar sem kona mín eldar og við erum með fyrirlestri fyrir gesti um sögu staðarins.

Nú yfir sumarið getum við verið með hópa í mat á hverjum degi og þetta hefur vaxið mikið, segir Jóannes. Í kvöld eru að koma um 40 manns í mat hér í Roykstofuna og þá ætlum við einmitt að vera með lambakjötið á boðstólnum og svo kaupum við grænmeti af bæ af Sandeynni.“

Kúabúum fer hratt fækkandi

Umræðan fer svo yfir í færeyskan landbúnað. Jóannes segir að þróunin hefur síðan verið þannig í Færeyjum að kúabúum hefur farið hratt fækkandi. Árið 1985 voru um 145 mjólkurbændur og þegar við seldum kvótann árið 2007 voru 85 og í dag eru þetta 13 kúabændur í öllum Færeyjum með stærri kúabú en jafn mikla mjólkurframleiðslu.

„Í Færeyjum er ekki hægt að bíða eftir því að það komi gott veður. Ef sólin skín og gott veður er þá þarf að slá grasið strax, það þýðir ekki að bíða. Sama þegar farið er á fjall eftir kindum að þá er sama með veðrið, þú verður að fara þegar veður leyfir og verður að vera tilbúinn að hoppa af stað og það myndast smá álag vegna ferðaþjónustunnar því við getum ekki frestað hóp sem ætlar að koma í mat um kvöldið. Við verðum því að fara að hugsa þetta þegar ferðaþjónustan vex svona hjá okkur að hafa meira starfsfólk, því við hjónin sinnum þessu mest núna en fáum ungt fólk héðan úr nágrenninu að hjálpa okkur að bera fram matinn og fleira.“

Við horfum út og þar er ferðafólk enn á gangi og Jóannes fer yfir framtíðarplön tengd ferðaþjónustu og fróðlegt að sjá hvaða hugmyndir hann mun framkvæma í framtíðinni.

En ætli hann hafi alltaf átt sér þann draum að verða bóndi hér? „Þegar ég var lítill drengur já en svo hugsaði maður stundum eitthvað annað á unglingsárum. Ég kláraði menntaskólann árið 1990 og fór fljótlega eftir það til Ástralíu að vinna í smá tíma á bóndabæ þar. Fór seinna á Landbúnaðarskóla í Noregi það var árið 1994 og þegar ég kom heim aftur til Færeyja var ég alveg ákveðinn að gerast bóndi hér.“

Það hefur verið einstaklega fróðlegt að spjalla við Jóannes og hefur hann mikla sagnagáfu. Að búa hér á þessum sögufræga fagra stað í Færeyjum hefur væntanlega mótað bóndann mikið og hér býr hann góðu lífi með fjölskyldu sinni.

Skylt efni: Færeyjar

Enn þá jafn gaman og þegar ég var sextán ára
Viðtal 26. apríl 2022

Enn þá jafn gaman og þegar ég var sextán ára

Baldur Sæmundsson, áfanga­stjóri í Menntaskólanum í Kópa­vogi, þar sem Hótel- og...

Mikilvægt að mennta fólk fyrir stækkandi atvinnugrein
Viðtal 8. apríl 2022

Mikilvægt að mennta fólk fyrir stækkandi atvinnugrein

Garðyrkjunám sem starfrækt er á Reykjum í Ölfusi mun tilheyra Fjölbrautaskóla Su...

Fann mína ástríðu í þessu starfi
Viðtal 8. desember 2021

Fann mína ástríðu í þessu starfi

„Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst öllu þessu fólki í sveitunum, notið gestri...

„Það eiga allir að gera erfðaskrá“
Viðtal 8. nóvember 2021

„Það eiga allir að gera erfðaskrá“

„Erfðaskrá er til þess fallin að leysa úr mörgum málum sem annars tæki tíma og o...

„Fyrst og fremst er það hljómurinn sem heillar mig“
Viðtal 13. júní 2021

„Fyrst og fremst er það hljómurinn sem heillar mig“

Talið er að harmonikkur hafi fyrst komið til Íslands með frönskum sjómönnum sem ...

Ný Oddakirkja verður byggð og Sæmundarstofa verður menningar- og fræðasetur
Viðtal 19. mars 2021

Ný Oddakirkja verður byggð og Sæmundarstofa verður menningar- og fræðasetur

Landbúnaður á Íslandi stendur frammi fyrir mörgum og ólíkum áskorunum
Viðtal 12. febrúar 2021

Landbúnaður á Íslandi stendur frammi fyrir mörgum og ólíkum áskorunum

Vigdís Häsler lögfræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Bændasamtaka Ísla...

Þjónusta verði snögg, fagleg og aðgengileg og eftirlitið einfalt, málefnaleg og skilvirkt
Viðtal 12. janúar 2021

Þjónusta verði snögg, fagleg og aðgengileg og eftirlitið einfalt, málefnaleg og skilvirkt