Fyrsti fræbankinn á Íslandi stofnaður
Ekki eru til nein fræ af friðuðum plöntum á Íslandi. Spor verður brátt markað í sögu náttúruverndar á Íslandi þegar fyrsti fræbanki landsins verður til. „Við vitum að umhverfið mun breytast mjög hratt,“ segir Magnus Göransson, sem stýrir stofnun fræbankans fyrir hönd Náttúrufræðistofnunar en það er hluti af stærra fjölþjóðlegu verkefni. Hann segir mikilvægt að varðveita erfðaefni stofna sem hafa þróast hér á landi, við vitum ekki enn hlutverk allra tegunda í náttúrunni.
Magnus er plöntulíffræðingur, hann er með bakgrunn í garðyrkjuvísindum, vann að byggkynbótum í doktorsnámi sínu og með Jónatani Hermannssyni í kynbótastarfi við Landbúnaðarháskólann. Löngun til að vinna með náttúruvernd leiddi hann til Náttúrufræðistofnunar þar sem hann sinnir nú fjölmörgum verkefnum sem tengjast vistgerðarkortlagningu, verndun flóru norðurslóða, endurheimt votlendis, söfnun erfðaefnis tegunda í útrýmingarhættu, villtum erfðalindum og fyrsta fræbankanum sem nú er í mótun.
Allt mun breytast
Magnus telur áhersluna í náttúruvernd almennt vera góða á Íslandi. „Í rannsóknum gætum við hins vegar bætt okkur en það krefst fjármagns og fleira fólks. Við erum sérstök á Íslandi hvað varðar loftslagið, það er ákveðið náttúruúrval hér sem getur ýtt tegundum í ákveðnar áttir.“
Magnus vísar í þá staðreynd að norðurslóðir eru að hitna þrisvar sinnum hraðar en restin af jörðinni. Norðurslóðir geta því orðið eins konar botnlangi fyrir ákveðnar tegundir. Hann leggur áherslu á að við þurfum að vera snör í snúningum á næstu árum í náttúruvernd og verndun líffræðilegs fjölbreytileika.
„Við vitum að umhverfið mun breytast mjög hratt út af loftslagsbreytingum fyrir árið 2100; Á okkar tíma. Þetta er flókið samspil og margir óvissuþættir, til dæmis með golfstrauminn. Það sem við vitum er að allt mun breytast.“
Verndun æðplantna fyrst
„Stofnun fyrsta fræbankans er í raun ekki mjög flókið verkefni og kostnaðurinn ekki mjög mikill heldur,“ segir Magnus. „Fyrsta skrefið er að varðveita æðplöntur á válista. Á honum eru um 80 tegundir, flokkaðar eftir stöðu þeirra í náttúrunni. Um 50 tegundir eru friðaðar með lögum og af þeim eru ekki til nein fræ. Við erum í heildina með um 500 tegundir villtra æðplantna. Það væri gott að koma upp safni af þeim tegundum, það er alveg hægt og væri næsta skref.“
Magnus segir sumar þessara tegunda bara eiga einn þekktan vaxtarstað og veltir upp spurningunni hvað verði um þær þegar breytingar í loftslagi eiga sér stað. Hann nefnir skeggburkna sem dæmi. „Við vitum af þremur einstaklingum sem vaxa á sama kletti í Eyjafirði. Tegundin hefur verið þekkt á þessum stað í 60-80 ár. Við söfnuðum gróum af þessum einstaklingum fyrir tveimur árum og höfum komið upp plöntum í Grasagarðinum. Markmiðið er ekki að varðveita lifandi plöntur, en varðveita gróin til framtíðar.“ Hann segir að það gefi möguleika á að rækta upp plöntur bæði til rannsókna og til að styrkja stofna í sínu náttúrulega umhverfi.
Fyrsti fræbankinn á Íslandi verður hluti af vísindasafni Náttúrufræðistofnunar og varðveittur í frysti í Grasagarðinum í Reykjavík. Stofnun hans er hluti stærra verkefnis, Pledge, sem er stytting á Plants on the Edge, og er samstarf Náttúrufræðistofnunar, Grasagarðsins í Reykjavík, Grasagarða Oulu í Finnlandi og Dublin sem leiðir verkefnið.
Ferlið ekki ýkja flókið
Til að koma upp fræbanka þarf að safna fræi af þeim tegundum sem á að varðveita. Fræið þarf að hreinsa og kanna spírunarhæfni til að tryggja að það sé nothæft. „Við höfum ekki mikla reynslu af að rækta þessar sjaldgæfu villtu tegundir. Þær geta sumar verið erfiðar í ræktun.“
Fræin eru þurrkuð og pakkað í þar til gerðar pakkningar og geymd í frysti. Þannig geta þau varðveist árum, áratugum og jafnvel öldum saman. Þetta starf mun fara fram í Grasagarðinum. Fræ verða einnig varðveitt á öðrum stað til öryggis. Þann stað á enn eftir að ákvæða, en hann gæti til dæmis orðið hjá NordGen. „Þá fyrst er tryggt að fræin séu örugg.“
Afkoma plantna breytingum háð
Margar tegundir eru sjaldgæfar í einu landi en algengar í öðru. Magnus nefnir dæmi um tegundir af ættkvísl steinbrjóta sem eru algengar á Íslandi en fágætar á Írlandi. Því er öfugt farið með til dæmis fyrrnefndan skeggburkna, þar sem norðlægustu mörkin eru hér á Íslandi.
„Nágrannaríkin eru farin að styrkja náttúrulega stofna í útrýmingarhættu. Bláliljan sem er algeng hér er í bráðri útrýmingarhættu í Svíþjóð út af loftslagsbreytingum. Hún þarf kulda til að spíra og hitastigið í Svíþjóð er komið yfir það sem hún þarf. Grasagarðurinn í Gautaborg hefur því komið upp plöntum og plantað á náttúrulegu búsvæði tegundarinnar til að styrkja stofninn. Við viljum eiga fræ frá upprunalegum stofnum á hverjum stað svo það sé ekki verið að færa erfðaefni langar leiðir.“
Þekkjum ekki hlutverk allra tegunda
„Við viljum hafa erfðaefni frá okkar stofnum, sem hafa þróast í okkar loftslagi, bæði til að varðveita og gera rannsóknir.“ Magnus segir það einu gilda um tegundir sem þegar hafa þekkt efnahagslegt gildi, svo sem hveiti- og berjategundir sem geta nýst við kynbætur og aðrar. „Við vitum að við erum að tapa fullt af tegundum núna en við þekkjum ekki enn hlutverk allra tegunda í náttúrunni.“
Magnus vísar í skilgreiningar sænska fræðimannsins Johans Rockströms um níu mörk lífvænleika á jörðinni, Planetary Boundaries, þar sem líffræðilegur fjölbreytileiki er verr staddur en loftslagið sjálft. „Við viljum ekki tapa fleiri tegundum.“
Hann rifjar upp að hafa hlustað á upptöku af fuglasöng tegundar sem nú er útdauð. „Það er kannski auðveldara að sannfæra fólk um mikilvægi fugla en burkna en vistfræðin er heildarsamhengi. Þó eitthvað sé sjaldgæft núna þýðir það ekki að það hafi ekkert hlutverk.“
Vantar sérfræðinga í mosum og fléttum
Írland og Finnland eiga þegar sína fræbanka með fræjum plantna á válista og taka næstu skref í þróun fræbanka sinna í verkefninu.
„Finnar eru nú byrjaðir að varðveita mosa. Þeir eru varðveittir í fljótandi köfnunarefni og þeir eru að þróa aðferðir til þess. Við erum með ríka mosaflóru og sumir þeirra eru á válista. Það væri gott að komast í að varðveita þá líka. Við erum með mjög sérstakan jarðveg, hveri og fleira sem gera aðstæður á Íslandi frábrugðnar Norðurlöndunum. Það er ekki bara kuldinn sem gerir aðstæður hér sérstakar.“ Hann segir okkur þó vanta sérfræðinga í mosum og fléttum.
Erfðaefni glitrósa og þyrnirósa
Talið berst að gildi fegurðar. Glitrósin er friðuð tegund á Íslandi og fræ af henni verða því varðveitt í fræbankanum. Rannsókn á erfðaefni hennar stendur einnig yfir hjá Náttúrufræðistofnun.
„Við eigum tvær villtar rósir, glitrósina og þyrnirósina. Þyrnirósin vex á sex stöðum en glitrósin aðeins á einum stað á Suð-Austurlandi. Hún gæti auðveldlega horfið. Við vitum ekki hvaðan hún kemur og hvernig hún er skyld öðrum rósum.
Við erum búin að safna erfðaefni af glitrós og þyrnirós þar sem þær vaxa og ætlum að safna blöðum af þessum tegundum erlendis frá til að kanna skyldleika.
Þyrnirósin hvarf af einum vaxtarstað í Fljótsdal, en vex sums staðar vel. Við þekkjum ekki erfðabreytileikann innanlands, hvort hún hefur borist með fuglum eða fólki. Það eru til heimildir í flóruupptalningum í Ferðabók Eggerts og Bjarna frá 1756 en það er ekki ólíklegt að hún hafi komið með landnámsmönnum sem vildu taka eitthvað fallegt með sér.“
Magnus segist vonast eftir að geta fengið meiri upplýsingar með rannsóknunum og örugglega verði hægt að segja til um hvort erfðabreytileiki þyrnirósar er til staðar eða hvort plöntur af vaxtarstöðum í ólíkum landshlutum séu af sama klóninum. Hver niðurstaða þess verður er enn óvíst en viðmælendur eru sammála um mikið gildi fegurðar og þess að njóta hennar.
