Ríkisstjórnin og landsbyggðin
Undanfarna daga hefur skapast mikil umræða um málefni landsbyggðarinnar. Sameiningar stofnana og breytingar á fyrirkomulagi Loftbrúar hafa sætt gagnrýni. Ég skil þær áhyggjur sem komið hafa fram. Þegar teknar eru ákvarðanir sem snerta daglegt líf fólks er eðlilegt að spurt sé um rökstuðning og heildarmynd.
Ég tel mikilvægt að upplýsa betur um þessi mál og veita innsýn í vegferð ríkisstjórnarinnar þegar kemur að landsbyggðinni. Þegar rýnt er í tölurnar og þær aðgerðir sem eru í farvatninu blasir við að ekki er verið að draga saman seglin á landsbyggðinni. Þvert á móti er verið að blása til sóknar í samgöngumálum og grunnþjónustu um land allt.
Erfiðar ákvarðanir – en skýr forgangsröðun í þágu landsbyggðarinnar
Til að skýra ýmsar erfiðar ákvarðanir þarf fyrst að horfa á stöðu ríkisfjármála. Ríkissjóður hefur verið rekinn með halla samfleytt frá árinu 2019. Afleiðingin er sú að vaxtakostnaður ríkissjóðs hefur aukist úr 59 milljörðum króna árið 2021 í um 168 milljarða á þessu ári. Það nemur um 460 milljónum króna á degi hverjum. Til að setja þá tölu í samhengi fer jafnmikið fé í vaxtagreiðslur á rúmum mánuði og varið er í allt viðhald þjóðvegakerfisins á heilu ári.
Hátt vaxtastig bitnar ekki einungis á ríkissjóði heldur einnig á íbúum og heimilisbókhaldinu. Hver króna sem brennur upp í vexti fer ekki í vegi, heilbrigðisþjónustu eða skóla. Þess vegna er stefnt að hallalausum fjárlögum árið 2027, sem krefst þess að öll ráðuneyti fari gaumgæfilega yfir sína útgjaldaliði.
Á sama tíma og hagrætt er í ríkisrekstrinum almennt er ríkisstjórnin að forgangsraða mun meira fjármagni en áður hefur þekkst í viðhald vega, vetrarþjónustu og innviði á landsbyggðinni, enda brýn nauðsyn á að bregðast við uppsafnaðri innviðaskuld. Það er skýr forgangsröðun.
Sögulegt fjármagn í vegaviðhald og vetrarþjónustu um land allt
Þjóðvegakerfið telur nærri 13 þúsund kílómetra, 1.200 brýr og 11 jarðgöng. Álagið á kerfið hefur vaxið hratt vegna fjölgunar ferðamanna og stóraukinna þungaflutninga í tengslum við atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni.
Árið 2024 fóru einungis 12,8 milljarðar króna í viðhald vega og í áætlunum fyrri ríkisstjórnar var aðeins gert ráð fyrir 13,8 milljörðum árið 2027. Fæstir hafa gleymt því ástandi sem þá blasti við, þegar innan við 40% vega voru metin í góðu ástandi.
Þessari þróun var snúið við strax í upphafi kjörtímabilsins þegar þremur milljörðum króna var bætt við vegaviðhald sumarið 2025. Síðan höfum við hækkað heildarframlagið í 17,5 milljarða króna á ári og stefnum enn hærra. Jafnframt var tekið á miklum vanda í vetrarþjónustu sem hafði verið verulega vanfjármögnuð um árabil. Á næstu fimm árum verður tæpum 14 milljörðum króna meira varið í snjómokstur og hálkuvarnir en áður var áætlað, sem skiptir sköpum fyrir öryggi íbúa og rekstrarforsendur atvinnulífs í dreifðari byggðum.
Ný samgönguáætlun – 65% nýframkvæmda í vegakerfinu til landsbyggðarinnar
Forgangsröðun stjórnvalda í þágu landsbyggðarinnar birtist í nýrri samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040. Á fyrstu fimm árum áætlunarinnar rennur 361 milljarður króna til samgöngumála, sem er um 100 milljörðum króna meira en í tillögu fyrri ríkisstjórnar. Þar vegur þungt að yfir 65% fjármuna til nýframkvæmda í vegáætlun Vegagerðarinnar renna til verkefna á landsbyggðinni.
Við höfum stofnað innviðafélagið Göng og brú sem tryggir fjármögnun stórverkefna, hraðar framkvæmdum og rýfur langa kyrrstöðu í jarðgangagerð á Íslandi. Framkvæmdir við Fljótagöng hefjast á næsta ári og undirbúningur að gerð Fjarðaganga og Súðavíkurganga er hafinn. Markmiðið er samfelld jarðgangagerð þar sem nýtt verkefni tekur við af öðru til að rjúfa einangrun og stækka atvinnu- og þjónustusvæði á landsbyggðinni.
Breyting á Loftbrú – til að stuðningurinn skili sér til íbúa
Stuðningur stjórnvalda við samgöngur á landsbyggðinni einskorðast ekki við vegakerfið. Þegar markaðsforsendur fyrir áætlunarflugi til Ísafjarðar brustu á árinu steig ríkið inn og tryggði þá lífæð Vestfjarða til næstu fjögurra ára með samningi upp á rúmar 420 milljónir króna á ári.
Sama áhersla á traustar flugsamgöngur liggur að baki breytingum á Loftbrú. Úrræðið tók gildi haustið 2020 með 600 milljóna króna árlegri fjárheimild. Kostnaðurinn hefur hins vegar farið fram úr áætlun undanfarin fjögur ár, þótt fjöldi flugleggja hafi haldist nær óbreyttur frá 2023, fyrsta heila ári Loftbrúar eftir Covid. Ástæðan er sú að flugfargjöld hafa hækkað um 55,9% frá september 2020 á móti 43,2% hækkun almenns verðlags og sýna gögn Vegagerðarinnar að dýrustu miðarnir hafa hækkað mest.
Þegar ríkið niðurgreiðir fasta prósentu á markaði þar sem skortur er á samkeppni tekur ríkissjóður sjálfkrafa þátt í hverri einustu verðhækkun. Erlend reynsla sýnir sama mynstur. Þegar stjórnvöld á Spáni hækkuðu hlutfallslega niðurgreiðslu flugfargjalda fyrir íbúa Kanarí- og Baleareyja úr 50% í 75% árið 2018 hækkuðu fargjöld flugfélaganna um 11–14% í kjölfarið.
Hér á landi kostaði dýrasti flugmiðinn á fullu verði um 30 þúsund krónur árið 2020 en var kominn í 58 þúsund krónur árið 2024. Jafnvel með 40% afslætti Loftbrúar greiddi farþeginn þá 35 þúsund krónur úr eigin vasa, eða meira en miðinn kostaði á fullu verði fjórum árum áður. Kerfið var farið að vinna gegn tilgangi sínum og niðurgreiðslan rann í auknum mæli í verðhækkanir í stað þess að lækka ferðakostnað íbúa á landsbyggðinni.
Metframlag í Loftbrú – 800 milljónir króna
Með fastri krónutölu í stað prósentu stöðvum við verðbólguhvata og veitum verðlagningu í innanlandsflugi skynsamlegt aðhald. Þegar rök komu fram um að fyrsta tillagan um 7.000 króna afslátt gengi of nærri notendum hlustuðum við og bættum 200 milljónum króna við verkefnið á örfáum dögum. Árlegt heildarframlag verður því 800 milljónir króna sem er það hæsta frá upphafi.
Samkvæmt greiningu Austurbrúar tengjast um 71% ferða með Loftbrú heimsóknum til vina og ættingja, en næstalgengasta ástæðan er heilbrigðisþjónusta. Lífið gerir þó ekki alltaf boð á undan sér. Þegar kemur að veikindum er mikilvægt að muna að Loftbrú var aldrei hugsuð sem sjúkratryggingakerfi, enda njóta íbúar þegar ríkra réttinda hjá Sjúkratryggingum Íslands. Þegar fljúga þarf að læknisráði vegna nauðsynlegrar heilbrigðisþjónustu utan heimabyggðar greiðir sjúklingur aldrei meira en 1.500 krónur fyrir hverja ferð fram og til baka. Það gildir jafnt um almennar ferðir, ítrekaðar ferðir vegna alvarlegra veikinda og þegar fljúga þarf með stuttum fyrirvara vegna bráðatilvika. Í alvarlegustu tilvikunum tekur sjúkraflug við.
Breytingin á Loftbrú tekur gildi um áramótin og fylgst verður náið með framkvæmdinni til að meta árangurinn og hvernig kerfið kemur út fyrir mismunandi svæði. Samhliða er nú þegar til skoðunar í ráðuneytinu hvernig megi þróa Loftbrú enn frekar til framtíðar og sníða kerfið betur að daglegum þörfum íbúa.
Sókn í heilbrigðis-, orku-, mennta- og byggðamálum
Samhliða sókn í samgöngum er unnið að stórum verkefnum í öðrum ráðuneytum sem snúa beint að lífsgæðum á landsbyggðinni. Um 600 ný og endurbætt hjúkrunarrými verða tekin í notkun utan höfuðborgarsvæðisins fram til ársins 2030, framkvæmdir eru hafnar við nýja legudeild á Akureyri og undirbúningur að stækkun sjúkrahússins á Selfossi er langt kominn. Dreifikostnaður raforku í dreifbýli hefur verið lækkaður, flutningskerfi raforku á Norðurlandi eystra styrkt, unnið er að auknu orkuöryggi Vestfjarða og ráðist hefur verið í átak í uppbyggingu hleðslustöðva um land allt. Þá hefur uppbyggingu ofanflóðavarna verið flýtt og undirbúningur er hafinn að framkvæmdum við verknámsskóla í fjórum sveitarfélögum á landsbyggðinni.
Næsta stóra skrefið verður stigið í komandi viku þegar ég mæli fyrir nýrri byggðaáætlun 2027–2041 á Alþingi. Áætluninni fylgja 30 nýjar aðgerðir til næstu fimm ára og er gert ráð fyrir tæpum 4 milljörðum króna til hennar á tímabilinu, en alls rúmum 9 milljörðum til byggðamála. Meðal helstu áherslna má nefna:
- Loftbrú verður nú í fyrsta sinn fest í sessi sem formleg aðgerð í byggðaáætlun til að jafna aðstöðumun og styðja við búsetufrelsi. Ábyrgðaraðili er innviðaráðuneytið en framkvæmdaraðili er Vegagerðin í samstarfi við Byggðastofnun, ásamt flugrekendum og landshlutasamtökum.
- Hönnunarstaðlar Vegagerðarinnar verða endurskoðaðir með það að markmiði að flýta lagningu bundins slitlags á umferðarminni tengivegum á ódýrari og einfaldari hátt.
- Ráðist verður gegn markaðsbresti í húsnæðismálum í minni byggðarlögum.
- Óstaðbundnum störfum verður fjölgað með 340 milljóna króna framlagi og fylgt eftir markmiðum um að hið minnsta 65% stöðugilda hjá embættum sýslumanna verði á landsbyggðinni.
- Loks verður svokölluð byggðalinsa tekin í notkun við stefnumótun og lagasetningu sem tryggir að áhrif opinberra ákvarðana á ólík byggðarlög séu metin strax í upphafi ferlisins.
Verkin tala – landsbyggðin í forgangi
Þegar öllu er á botninn hvolft eru fjárfestingar á landsbyggðinni ekki sérhagsmunamál heldur þjóðarhagsmunamál. Öruggar samgöngur, öflugir innviðir og sterk sveitarfélög eru forsenda verðmætasköpunar og samkeppnishæfni Íslands.
Þegar horft er á stóru myndina fer ekki á milli mála hvar áherslan liggur. Á sama tíma og tekist er á um útfærslu á 800 milljóna króna metframlagi til Loftbrúar er ríkisstjórnin að verja 361 milljarði króna í samgöngumál á næstu fimm árum – um 100 milljörðum meira en fyrri stjórn áætlaði. Sá samanburður sýnir betur en nokkuð annað hver forgangsröðunin er.
Stjórnarflokkunum er umhugað um landsbyggðina. Þeir eiga sterka fulltrúa á Alþingi úr öllum landsbyggðarkjördæmunum og aðgerðir ríkisstjórnarinnar spegla það í hvívetna. Þótt við þurfum að sýna aðhald alls staðar í ríkisrekstrinum til að ná tökum á ríkisfjármálunum er engu að síður verið að forgangsraða fjármunum af miklum þunga til landsbyggðarinnar. Þar liggur okkar áhersla – í verki.
Höfundur er innviðaráðherra, og fer með byggðamál.
