Lausn á vísnagátunni úr 20 tölublaði
Hér er lausnin á vísnagátunni sem birtist í 20. tölublaði Bændablaðsins.
Gátan hljómaði svo:
Höfuðból í Hreppum er
hetjunni tengist grísku
svar á reiðum höndum hér
háir voru í tísku.
Lausnin er eitt nafnorð með fjórar mismunandi merkingar.
Lausnin er: Hæll
Umsjón: Guðbjörn Sigurmundsson
Gudbjorn.Sigurmundsson[hjá]mk.is
