Frá vinstri: Ingi Kristján Sigurmarsson, klippari og hönnuður hreyfigrafíkur, Adrian Freyr Rodriguez og Einar Kári Jóhannsson. Auk þeirra samdi Guðlaugur Hörðdal tónlist fyrir myndina.
Frá vinstri: Ingi Kristján Sigurmarsson, klippari og hönnuður hreyfigrafíkur, Adrian Freyr Rodriguez og Einar Kári Jóhannsson. Auk þeirra samdi Guðlaugur Hörðdal tónlist fyrir myndina.
Viðtal 9. nóvember 2026

Framfarir, hugvit og trúin á tæknina

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Trúin á tæknina – svipmyndir úr sögu verkfræði og tækniframfara á Íslandi er heimildarmynd í tveimur hlutum sem skoðar nútímavæðingu Íslands frá því um aldamótin 1900 fram á okkar daga.

Myndin er sýnd á RÚV þann 10. nóvember og verður aðgengileg fólki um land allt. Adrian Freyr Rodriguez verkfræðingur og Einar Kári Jóhannsson, ritstjóri og bókmenntafræðingur, eru höfundar og leikstjórar myndarinnar. Trúin á tæknina var gerð fyrir Verkfræðingafélag Íslands í tilefni af 110 ára afmæli félagsins.

Frá vanefnum til velfarnaðar 

Myndin tekur fyrir nútímavæðingu Íslands með áherslu á tæknina sjálfa og verkfræðiþekkingu sem Íslendingar hafa öðlast. Fyrstu íslensku verkfræðingarnir komu heim úr námi um aldamótin 1900 og hófu víðtæka uppbyggingu, en þar með hófst eitt mesta umbreytingaskeið Íslandssögunnar, „þegar þjóðin fer frá vanefnum til velfarnaðar á nær öllum sviðum mannlífs“, eins og kemur fram í lýsingu myndarinnar. Fjölbreytt viðfangsefni eru tekin fyrir líkt og vegagerð, virkjanir, byggingarframkvæmdir, hitaveita, íslenskur iðnaður og hugbúnaðargerð. Einnig skoðar myndin samfélagslegt samhengi breytinganna og viðbrögð almennings við framförunum.

Ekið með rafmagnsstaura.

Verkefni sem vatt upp á sig

Adrian Freyr og Einar Kári settust niður með blaðamanni. „Við vorum beðnir um að gera myndband um sögu verkfræði sem átti að vera korter en svo lengdist það alltaf og lengdist og við sáum fljótt að þetta yrði að vera lengra verk,“ segir Adrian. Einar sammælist og segir að verkefnið hafi vaxið í höndum þeirra. „Málið er að saga verkfræðinnar er saga nútímavæðingar á Íslandi. Þessi saga hefur eitthvað verið rannsökuð en það var engin ein bók sem við gátum

Fnjóskárbrú 1908.

opnað og sagt: þetta er saga verkfræði frá A til Ö. Þegar við byrjuðum að grúska vatt þetta alltaf upp á sig.“ Adrian bætir við að þeir hafi í raun verið heppnir að gera þetta á Íslandi þar sem hægt er að ná utan um söguna. „Þetta eru margar stórar sögur sem við erum að niðurnjörva í eina setningu eða málsgrein til að koma sem flestu fyrir.“

Hér gerast hlutir seint en hratt

„Það er áhugavert þegar maður fer að skoða sögu verkfræði að í upphafi eru engir innviðir á Íslandi. Ólíkt öðrum löndum þar sem búið er að byggja alls konar byggingar og félagslega innviði og leggja vegi, þá á eftir að gera allt þegar fyrstu verkfræðingarnir eru að koma til Íslands,“ segir Einar. „Það er ekki nóg með að það verði til embætti sem heitir landsverkfræðingur heldur leita verkfræðingarnir líka í stjórnunarstöður í samfélaginu. Það er eins og þessir menn sæju að það þurfti að gera ákveðna hluti og til þess að hrinda þeim í framkvæmd þurftu þeir að stjórna.“

Fjarðarselsvirkjun á Seyðisfirði 1913.

„Það er magnað hvað þetta gerist allt seint en hratt á Íslandi,“ segir Adrian. „Margt sem er augljóst í dag var það ekki þá. Eins og að nota jarðvarmann, það var ekki komin nein reynsla á þetta. Þeir fyrstu sem voru að predika fyrir því að virkja og nota rafmagn voru álitnir algjörir rugludallar.“ 

Innflutt tæki fyrir landbúnað

„Það var ekki alveg jafnmikil nýsköpun í landbúnaðinum og í öðrum greinum á þessum tíma en tækniþróunin er samt sýnileg, til dæmis í sláturhúsunum eða á mjólkurbúum,“ segir Einar. Á meðan að tæknivæðing fór mjög hratt af stað í arðbærum greinum líkt og fiskveiðum sat hún á sér í landbúnaði framan af. „En aftur á móti voru fundnar leiðir til þess að vinna úr landbúnaðarvörum. Við nefnum til dæmis íslenskar spunavélar, til að vinna ull, sem knúnar voru með vatns- eða gufuafli.“ Adrian útskýrir að innflutningur á tækjum til landbúnaðarnota breytti miklu og jókst til muna eftir seinni heimsstyrjöldina. Þeir fundu bæði skemmtilegar myndir og myndskeið af vélum og tækjum í sveitum sem líta má í heimildarmyndinni, meðal annars myndskeið af fyrsta þúfnabananum frá árinu 1921. 

Malbikað í Reykjavík 1923.

Hugvit og heimatilbúnar lausnir

„Við erum þó minna að skoða innflutt tæki og frekar að skoða íslenskt hugvit í myndinni, finna hvar sérstaðan er hér,“ útskýrir Adrian. „Hér voru til dæmis gerðar tilraunir með íslenska steypu, allir af ákveðinni kynslóð þekkja alkalískemmdir sem var mikið um á 8. áratugnum,“ bendir Einar á. Adrian útskýrir að íslenska steypan hafi verið framleidd í yfir áratug og að skemmdirnar hafi verið áberandi þar til steypunni var breytt. „Lausnin var að blanda kísilryki í steypuna og koma þannig í veg fyrir alkalískemmdirnar. Þetta var séríslensk lausn því það var verið að nota íslensk hráefni,“ segir Adrian.

„Hugsunarhátturinn var oft að finna einhverja íslenska leið til að leysa svona verkefni vegna þess að það voru líka rosaleg höft á innflutningi. Við leituðum að auglýsingum um íslenskan iðnað og það er eiginlega ótrúlegt hvað það var mikið framleitt á Íslandi á þessum tíma, Rafha var til dæmis að að búa til eldavélar hérlendis og í landbúnaði var verið að búa til margt heima við,“ segir Einar.

Allir vildu veðurfréttir

„Annað sem var mjög mikilvægt landbúnaði og stólaði á heimatilbúnar lausnir var útvarpið í sveitum,“ segir Einar. „Það er svo mikilvægt fyrir bændur að hafa veðurfréttir og þegar Rás 1 fer í loftið 1930 þá dreifist útvarpið mjög hratt um landsbyggðina svo fólk geti séð hvort hægt sé að heyja á fimmtudaginn eða hvort veðrið verði slæmt. Þá þurftu bændur sem voru ekki komnir með neinar raflínur úr landsnetinu sjálfu að finna sér aðrar leiðir og fóru þá til dæmis að virkja bæjarlæki eða setja upp litlar vindrafstöðvar á bæjunum til að geta hlustað á útvarpið.“

„Tilraunir með ylrækt hefjast líka ótrúlega snemma á Íslandi miðað við annars staðar í heiminum. Vð fjöllum meðal annars um þegar er byrjað að bora í Mosfellssveit, á Suðurreykjum og þeir byrja með tilraunir að rækta grænmeti og ávexti með jarðvarma,“ segir Einar. „Á seinni hluta 20. aldar eru Íslendingar síðan orðnir einhvers konar sérfræðingar í jarðhita og byrja að flytja út þessa þekkingu.“ Adrian bendir á að margt hafi byrjað svona, sem tilraun heima á bæ og þess vegna erfitt að finna nákvæmar heimildir um fyrstu tilraunir eða tæki.

Tæknin er alls staðar

„Við sjáum endurtekið í gegnum söguna að það er góð framtakssemi á landinu og trú á eigið ágæti,“ segir Adrian. „Oft er verið að byggja ýmislegt hér og engin þekking er til staðar vegna þess að Ísland er öðruvísi en aðrir staðir á plánetunni og verið er að vinna í aðstæðum sem enginn hefur unnið í áður,“ segir Einar. „Eins og við byggingu Kröfluvirkjunar, þá hefst eldgos á meðan verið er að byggja og það kemur nær allt upp á sem gæti, á einhverjum tímapunkti rann kvika inn í borholur.“ „Og samt er alltaf haldið áfram,“ bætir Adrian við.

Seinni hluti myndarinnar skoðar samspil náttúruverndar og tækniþróunar. „Við reyndum að fá heildarsamhengi og skoðuðum gamlar fréttir til að sjá hvernig umræðan er í samfélaginu hverju sinni,“ útskýrir Adrian. „Það eru eiginlega átök um allt. Það eru alltaf einhverjir sem setja sig upp á móti tækninni,“ segir Einar. „Tækniframfarirnar eru alltaf átakapunktar.“ „Það var svolítið magnað að sjá hvað samfélagsumræðan var svipuð þá og hún er í dag,“ bætir Adrian við. „Fólk er með svipaðar áhyggjur og spurningar, sérstaklega kannski um virkjanirnar, ef þú lest blað frá þessum tíma, 1930 eða 1940, þá gæti það jafnvel verið pistill sem myndi birtast í dag um Hvammsvirkjun.“ 

Myndin rekur tækniframfarir og þróun landsins alla 20. öldina. „Síðasti punkturinn í myndinni er Kárahnjúkavirkjun og við segjum í lokin að nú sé í raun ekkert sem viðkemur ekki verkfræði, tæknin er allsráðandi,“ útskýrir Einar og Adrian bætir við að það sé varla hægt að rekja söguna áfram því að nú sé tæknin í öllu. „Kárahnjúkavirkjun er líka einhver hápunktur í baráttunni um það hvort náttúran eigi að njóta vafans eða hvort tæknin eigi að ráða för og setur upp sviðið fyrir átökin um tæknina á 21. öldinni,“ segir Einar að lokum. 

Skylt efni: heimildarmynd

Enn þá jafn gaman og þegar ég var sextán ára
Viðtal 26. apríl 2022

Enn þá jafn gaman og þegar ég var sextán ára

Baldur Sæmundsson, áfanga­stjóri í Menntaskólanum í Kópa­vogi, þar sem Hótel- og...

Mikilvægt að mennta fólk fyrir stækkandi atvinnugrein
Viðtal 8. apríl 2022

Mikilvægt að mennta fólk fyrir stækkandi atvinnugrein

Garðyrkjunám sem starfrækt er á Reykjum í Ölfusi mun tilheyra Fjölbrautaskóla Su...

Fann mína ástríðu í þessu starfi
Viðtal 8. desember 2021

Fann mína ástríðu í þessu starfi

„Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst öllu þessu fólki í sveitunum, notið gestri...

„Það eiga allir að gera erfðaskrá“
Viðtal 8. nóvember 2021

„Það eiga allir að gera erfðaskrá“

„Erfðaskrá er til þess fallin að leysa úr mörgum málum sem annars tæki tíma og o...

„Fyrst og fremst er það hljómurinn sem heillar mig“
Viðtal 13. júní 2021

„Fyrst og fremst er það hljómurinn sem heillar mig“

Talið er að harmonikkur hafi fyrst komið til Íslands með frönskum sjómönnum sem ...

Ný Oddakirkja verður byggð og Sæmundarstofa verður menningar- og fræðasetur
Viðtal 19. mars 2021

Ný Oddakirkja verður byggð og Sæmundarstofa verður menningar- og fræðasetur

Landbúnaður á Íslandi stendur frammi fyrir mörgum og ólíkum áskorunum
Viðtal 12. febrúar 2021

Landbúnaður á Íslandi stendur frammi fyrir mörgum og ólíkum áskorunum

Vigdís Häsler lögfræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Bændasamtaka Ísla...

Þjónusta verði snögg, fagleg og aðgengileg og eftirlitið einfalt, málefnaleg og skilvirkt
Viðtal 12. janúar 2021

Þjónusta verði snögg, fagleg og aðgengileg og eftirlitið einfalt, málefnaleg og skilvirkt