Lilja Björg Ágústsdóttir, sveitarstjóri Dalabyggðar.
Lilja Björg Ágústsdóttir, sveitarstjóri Dalabyggðar.
Mynd / Aðsend
Fréttir 9. nóvember 2026

Stefnt á mikla skógrækt

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Fyrirtækið Yggdrasill Carbon ehf., hyggst ráðast í skógrækt í landi Ljárskóga í Dalabyggð í samstarfi við landeigendur á svæði sem nær yfir alls um 5.500 ha.

Einungis verður þó plantað í að hámarki 2.780 hektara, eða 51% svæðisins. Það er vegna þess að ekki verður plantað í votlendi og 15 metra svæði umhverfis það. Það verður ekki heldur plantað í 20 metra svæði umhverfis fornminjar. Kynning á verkefninu var sett í skipulagsgátt vegna umhverfismatsskýrslu vegna verkefnisins en opið var fyrir athugasemdir til 13. október. Lilja Björg Ágústsdóttir er sveitarstjóri Dalabyggðar. Hún svaraði nokkrum spurningum vegna verkefnisins.

Hvernig líst þér á þessi miklu áform um skógrækt í landi Ljárskóga?

„Áformin eru umfangsmikil og hafa vakið bæði áhuga og umræður í nærumhverfinu. Á þessu stigi liggur fyrir umhverfismatsskýrsla framkvæmdaraðila sem hefur verið kynnt og umsagnir og athugasemdir hafa borist frá ýmsum aðilum. Sveitarfélagið hefur ekki tekið afstöðu til sjálfrar framkvæmdarinnar heldur leggur áherslu á að málið fari í gegnum lögbundið skipulags- og matsferli þar sem áhrif á umhverfi, landnotkun og aðra hagsmuni verða metin og vegast hvert á móti öðru áður en ákvörðun verður tekin um framhaldið,“ segir Lilja Björg.

Er búið á jörðinni og er skógrækt á henni í dag eða hvað?

„Það hefur ekki verið búskapur á Ljárskógum síðan um 1980. Íbúðarhúsið hefur verið nýtt sem veiðihús í seinni tíð og á jörðinni hafa verið skipulögð frístundasvæði ásamt því að uppbygging er á ferðaþjónustu með ströndinni. Heiðarhluti jarðarinnar er landmikill og stór hluti beitarlands sauðfjárbænda á svæðinu.“

Er mikið um skógrækt í sveitarfélaginu og hvernig dafnar gróðurinn, er gott að rækta upp tré í Dalabyggð?

„Það er töluvert um minni skógræktarsvæði víða í sveitarfélaginu og á nokkrum stöðum eru villtir birkiskógar. Mest er þó um skógrækt á Skógarströndinni þar sem margar jarðir eru orðnar svokallaðar skógræktarjarðir,“ segir Lilja Björg.

Hvað er jákvæðast við verkefnið í Ljárskógum að þínu mati?

„Framkvæmdaraðilinn sér fyrir gott tækifæri til kolefnisbindingar með beitarskógrækt þar sem votlendi sé þó hlíft. Verkefnið er aðeins á fyrstu stigum í skipulagsferlinu og er umhverfismatið með fyrstu skrefunum í því. Það liggur svo til grundvallar komi til breytinga á aðalskipulagi og afgreiðslu á framkvæmdarleyfi fyrir skógræktinni. En ítreka að sveitarfélagið hefur ekki tekið afstöðu til áformanna.“

Er eitthvað neikvætt við það, ef já, hvað þá helst?

„Það eru ýmsar skoðanir á lofti varðandi fuglalíf, vistkerfi og aðgengi sauðfjár að beitarlandi, svo dæmi séu tekin úr þeim umsögnum og athugasemdum sem hafa borist við umhverfisskýrsluna í skipulagsgáttinni,“ segir Lilja Björg.

Er eitthvað meira sem þú vilt segja eða láta koma fram?

„Skipulagsferlið er í raun ekki formlega hafið. Nú er búið að kynna umhverfismatsskýrslu framkvæmdaraðilans og afla umsagna en svo mun HMS yfirfara málið og gefa út álit sitt á umhverfismatinu og niðurstöðum þess,“ segir Lilja Björg og bætir við: „Dalabyggð benti á það í sinni umsögn um umhverfismatsskýrsluna að svona umfangsmikil skógrækt kallaði á aðalskipulagsbreytingu þar sem skilgreina þyrfti skógræktar- og landgræðslusvæði og setja skipulagsákvæði um skógræktarframkvæmdina. Þegar sótt verður um framkvæmdaleyfi fyrir skógræktinni þá þarf að liggja fyrir staðfest stefna um hana í gildandi aðalskipulagi Dalabyggðar.“

Skylt efni: Skógrækt | Dalabyggð

Stefnt á mikla skógrækt
Fréttir 9. nóvember 2026

Stefnt á mikla skógrækt

Fyrirtækið Yggdrasill Carbon ehf., hyggst ráðast í skógrækt í landi Ljárskóga í ...

Áfram hægt að  kaupa hamsatólg
Fréttir 9. nóvember 2026

Áfram hægt að kaupa hamsatólg

Framleiðsla hamsatólgar heldur áfram. Í byrjun hausts leit út fyrir að Stóruvell...

Betri yfirsýn yfir ástand votlendissvæða
Fréttir 9. nóvember 2026

Betri yfirsýn yfir ástand votlendissvæða

„Verkefnið Mýrarlíf er sjálfstætt en fer vel með aðgerðum stjórnvalda um endurhe...

Áfram stutt við orkusparnað
Fréttir 9. nóvember 2026

Áfram stutt við orkusparnað

Fjárfestingaátak stjórnvalda sem miðar að orkusparnaði í gróðurhúsum garðyrkjubæ...

Kvóti verðlaunanaut
Fréttir 9. nóvember 2026

Kvóti verðlaunanaut

Hjónin Baldur Helgi Benjamínsson og Elin Nolsøe Grethardsdóttir fengu viðurkenni...

Rjúpnastofninn stór og sterkur í ár
Fréttir 9. nóvember 2026

Rjúpnastofninn stór og sterkur í ár

Rjúpnastofninn er stór í ár og einkum sterkur á Norðaustur- og Austurlandi. Nátt...

Aukin framleiðsla í september
Fréttir 6. nóvember 2026

Aukin framleiðsla í september

Framleiðsla á kindakjöti jókst um þrjú prósent í septembermánuði miðað við í fyr...

Sértækur byggðakvóti hefur jákvæðari ávinning
Fréttir 6. nóvember 2026

Sértækur byggðakvóti hefur jákvæðari ávinning

Íslenskur sjávarútvegur hefur tekið stórkostlegum breytingum á síðustu áratugum,...