Áfram stutt við orkusparnað
Fjárfestingaátak stjórnvalda sem miðar að orkusparnaði í gróðurhúsum garðyrkjubænda heldur áfram og hefur Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, tilkynnt um þriðja áfanga verkefnisins.
Því hefur verið opnað fyrir umsóknir um styrki í þriðja skiptið, en heildarfjárhæð til úthlutunar nú er allt að 150 milljónir króna. Hafa garðyrkjubændur nýtt styrkina meðal annars til að setja upp LED-ljós sem eru mun sparneytnari en HPS-ljósin. Einnig geta bændur notað styrkinn meðal annars til uppsetningar á tölvu- og stýribúnaði og gardínukerfum.
Getur hver styrkur numið að hámarki 40% af heildarkostnaði hvers verkefnis eða 20 milljónir króna fyrir hvern framleiðanda.
