Kvóti 19042 var besta nautið í sínum árgangi.
Kvóti 19042 var besta nautið í sínum árgangi.
Mynd / Nautastöð BÍ
Fréttir 9. nóvember 2026

Kvóti verðlaunanaut

Höfundur: Ástvaldur Lárusson
Baldur Helgi Benjamínsson og Elin Nolsøe Grethardsdóttir frá Ytri-Tjörnum í Eyjafirði. Mynd / Guðrún Björg Egilsdóttir

Hjónin Baldur Helgi Benjamínsson og Elin Nolsøe Grethardsdóttir fengu viðurkenningu fyrir nautið Kvóta 19042 sem var besta naut Nautastöðvar BÍ úr árgangi 2019.

„Þessi verðlaun eru heilmikil viðurkenning fyrir okkur bæði hjónin,“ segir Baldur í samtali. „Það er gaman að geta lagt sitt af mörkum í þetta sameiginlega kynbótastarf kúabænda. Ég myndi segja að konan mín beri ábyrgð á því að þessi gripur varð til. Þann 8. janúar 2019 sendi ég Elinu skilaboð og segi henni að kvígan Angela, sem við höfðum mikla trú á, væri yxna og spurði hvort hún væri ekki með tillögu að nauti sem við ættum að nota á hana. Elin lagði til að við notuðum Sjarma 12090 frá Hrepphólum og Angela hélt við fyrstu sæðingu. Kálfurinn fæddist svo þann 8. október og við tilkynntum hann til Guðmundar Jóhannessonar, ábyrgðarmanns í nautgriparækt hjá RML (Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins), og í kjölfarið var ákveðið að senda hann á Nautastöð Bændasamtaka Íslands.

Erfðamengisúrvalið var svo innleitt þarna árið 2022 og kom þá skýrt í ljós að Kvóti væri með bestu gripunum og var ákveðið strax að hefja almenna notkun á sæðinu úr Kvóta. Ef við hefðum verið enn þá í gamla afkvæmaprófunarkerfinu hefði ekki verið búið að taka ákvörðun um hvort ætti að senda sæði úr Kvóta í almenna dreifingu fyrr en í fyrra. Núna er kominn slatti af kúm undan Kvóta og er búið að staðfesta að hann stendur undir þeirri einkunn sem hann fékk í erfðamengjaúrvalinu.“

Kýrnar undan Kvóta þykja mjólkurlagnar, með gott hlutfall verðefna, góða júgurgerð, netta spena, góðar mjaltir og ákaflega gott skap. Kynbótamat Kvóta er 113 og Baldur útskýrir að meðalgripurinn á hverjum tíma sé með einkunnina 100. „Lægstu einkunnirnar í einstökum eiginleikum sem við sjáum eru í kringum 70 hjá alslökustu gripunum og svo upp í 130 fyrir einstaka eiginleika. Það er nánast útilokað að gripur fái heildareinkunn yfir 120, en það eru þá yngstu gripirnir sem eru í notkun núna. Kvóti er orðinn sjö ára gamall og hann var með hærra kynbótamat, en þar sem kúastofninn er í framför lækkar kynbótamat eldri gripa samhliða því sem meðalgripurinn verður betri. Ef maður flettir upp í nautaskránni má sjá að Kvóti er efstur í sínum árgangi með 113 og sá sem er næstur þar á eftir er Nafni 19009 frá Brúsastöðum með einkunnina 111. Þá eru tvö naut með 110 í kynbótamat. Núna er búið að taka Kvóta úr notkun, en ég held að það sé enn þá til sæði úr honum.“

Baldur bendir á að það taki alltaf ákveðinn tíma að fá úr því skorið hvort naut séu sannarlega góð eða ekki. „Þú þarft fyrst að bíða eftir því að nautið verði kynþroska í kringum eins árs aldur. Svo þarf að taka sæðið og bíða eftir að kýrnar haldi og beri. Kvígurnar þurfa svo að vaxa úr grasi og byrja að mjólka. Þetta er ferill sem tekur fimm til sex ár og þá er loksins hægt að segja með fullri vissu að naut standi undir sínu kynbótamati. Þess vegna naut naut fætt árið 2019 verðlaunað árið 2026.“ 

Nautum á Nautastöðinni er slátrað þegar þau eru búin að gefa sæði. Baldur bendir á að Angela móðir Kvóta sé enn þá á lífi og sé búin að mjólka tæplega 60 þúsund kílóum frá upphafi. „Hún er farsæll gæðagripur og einhver sú skapbesta kýr sem ég hef nokkurn tímann kynnst. Kvóti átti sammæðra hálfsystur og einkunn hennar fyrir skapgerð var 150. Því miður voru lélegir í henni eggjastokkarnir þannig að hún bar aldrei sem voru mér ólýsanlega mikil vonbrigði. Angela, móðir Kvóta er kolótt einlit, á meðan Kvóti var dökkkolóttur með gráar yrjur. Kálfarnir undan honum hafa sumir hverjir verið mjög skrautlegir á litinn og hefur hann gefið af sér gráa gripi sem margir bændur kunna að meta.“ Á Ytri-Tjörnum hefur sama fjölskyldan búið síðan 1899. Benjamín Baldursson, faðir Baldurs Helga, fékk viðurkenningu fyrir besta nautið í árgangi 2005. Samkvæmt upplýsingum frá RML er þetta í fyrsta sinn sem tveir ættliðir ræktenda hafa hlotið þessa viðurkenningu. 

Stefnt á mikla skógrækt
Fréttir 9. nóvember 2026

Stefnt á mikla skógrækt

Fyrirtækið Yggdrasill Carbon ehf., hyggst ráðast í skógrækt í landi Ljárskóga í ...

Áfram hægt að  kaupa hamsatólg
Fréttir 9. nóvember 2026

Áfram hægt að kaupa hamsatólg

Framleiðsla hamsatólgar heldur áfram. Í byrjun hausts leit út fyrir að Stóruvell...

Betri yfirsýn yfir ástand votlendissvæða
Fréttir 9. nóvember 2026

Betri yfirsýn yfir ástand votlendissvæða

„Verkefnið Mýrarlíf er sjálfstætt en fer vel með aðgerðum stjórnvalda um endurhe...

Áfram stutt við orkusparnað
Fréttir 9. nóvember 2026

Áfram stutt við orkusparnað

Fjárfestingaátak stjórnvalda sem miðar að orkusparnaði í gróðurhúsum garðyrkjubæ...

Kvóti verðlaunanaut
Fréttir 9. nóvember 2026

Kvóti verðlaunanaut

Hjónin Baldur Helgi Benjamínsson og Elin Nolsøe Grethardsdóttir fengu viðurkenni...

Rjúpnastofninn stór og sterkur í ár
Fréttir 9. nóvember 2026

Rjúpnastofninn stór og sterkur í ár

Rjúpnastofninn er stór í ár og einkum sterkur á Norðaustur- og Austurlandi. Nátt...

Aukin framleiðsla í september
Fréttir 6. nóvember 2026

Aukin framleiðsla í september

Framleiðsla á kindakjöti jókst um þrjú prósent í septembermánuði miðað við í fyr...

Sértækur byggðakvóti hefur jákvæðari ávinning
Fréttir 6. nóvember 2026

Sértækur byggðakvóti hefur jákvæðari ávinning

Íslenskur sjávarútvegur hefur tekið stórkostlegum breytingum á síðustu áratugum,...