Stærsti jólamatarmarkaður Norðurlands
Árlegur jólamatarmarkaður verður haldinn á Stórhóli í Skagafirði laugardaginn 21. nóvember og gestir boðnir velkomnir frá 12-17. „Það að maður er manns gaman er ekki gripið úr lausu lofti,“ segir gestgjafinn, Sigrún Helga Indriðadóttir. Hún segir góða stemningu alltaf myndast á markaðsdögum.
Búið á Stórhóli í Skagafirði lætur lítið yfir sér en búskapurinn er fjölbreyttur. Sigrún Helga er garðyrkjufræðingur og bóndinn á bænum. Hún er með litla geitahjörð, andahóp og verslunina Rúnalist, þar sem hún selur eigið ullarband, handverk og matvöru auk handverks fjölskyldumeðlima og matvöru frá um fimmtán smáframleiðendum. Eftir að hún og elsti sonur hennar sameinuðu sauðfjárhjarðir sínar fór hún að halda markaði á bænum. Sigrún segir fjölgun í hópi smáframleiðenda eftirtektarverða og neytendur í síauknum mæli sækjast eftir að kaupa beint frá býli.
Matarmarkaður í hverjum landshluta
Árið 2023 varð Beint frá býli, félag heimavinnsluaðila, 15 ára og ákveðið var að halda veglegan matarmarkað í hverjum landshluta. Árið áður höfðu Sigrún og sonur hennar, Sverrir, og tengdadóttirin, Karen í Gilhaga, sameinað sauðfjárhjarðir sínar. Í Gilhaga, sem er aðeins 7 km frá Stórhóli, eru nú yfir þúsund fjár.
Andrými skapaðist fyrir Sigrúnu til að sinna öðrum verkefnum sem hún brennur fyrir og einnig tækifæri til að gefa gömlu hlöðunni nýtt hlutverk. Hún er handverkskona og hefur sótt ótal námskeið í vinnslu heimaafurða, leðurvinnu, pappírsgerð, tálgun, vinnslu úr hornum og beinum, körfugerð og fleiru.
Úr varð að fyrsti Beint frá býli dagurinn á Norðurlandi vestra, afmælismatarmarkaður Beint frá býli, var haldinn að Stórhóli. Tíu aðilar seldu afurðir sínar og gestir voru um 500. Sigrún kunni vel við sig í þessu hlutverki og ákvað að halda jólamarkað. Þar myndaðist góð stemning og sú hefð hefur skapast að halda jólamarkað síðustu helgina í nóvember.
„Ég var alveg gapandi yfir gestafjöldanum,“ segir Sigrún. Hún segir markaðinn stærsta matarmarkaðinn fyrir jól á Norðurlandinu öllu. „Ég hef líka boðið 10. bekk í Varmahlíðarskóla að koma og vera með kökubasar til fjáröflunar en þau fara til Danmerkur á hverju ári í skólaferðalag.“
Kaffi, kjöt, æðardúnn og góðgæti
Þátttakendur í ár koma víða að og færa með sér ýmsar kræsingar til jólahaldsins eða í jólapakkana. Austan vatna verður með mat til að borða á staðnum, Áskaffi góðgæti, bændur í Birkihlið kjöt, Mathias í Böggvisbrauði kruðerí, Geitagott og Háafell með geitaafurðir, Huldubúð sultur og pestó Karólína með Hvammshlíðarost, Korg kaffibrennslan jólakaffið, Merete í Hrauni á Skaga kjöt og æðardún, Sölvanes sem eru í næsta nágrenni lífrænt lambakjöt og Sveifla og Einar Ernir verða einnig með sínar vörur. Ekki má gleyma kökubasar tíundu bekkinganna og þeim sem þegar selja vörur sínar í búðinni. Ekki er loku fyrir það skotið að listinn eigi eftir að lengjast.
Sveita-jólastemning
„Gestir munu ganga inn í sveitajólastemningu, boðið verður upp á jólate og glögg, varðeld á hlaðinu og börnin geta grillað sér sykurpúða.“ Sigrún segir gesti hafa lýst ánægju með hve nærandi það sé fyrir samfélagið í sveitinni og héraðinu að koma saman á markaði. „Það að maður er manns gaman er ekki gripið úr lausu lofti,“ fólki finnist gott að hittast og jafnvel þeir sem síður eru félagslyndir ílengjast.
„Mig langar að halda markað í hverjum mánuði. Ég hef haldið sumarmarkað, diskósúpu í apríl og jólamarkaðinn og jólaról síðustu helgina fyrir jól. Eftir því sem smáframleiðendum fjölgar eru meiri líkur á að það sé hægt.“ Hún segir að eitt árið hafi hún haldið markað í mars og þá mættu á þriðja hundrað gesta. Fólk sé farið að kalla eftir reglulegum mörkuðum, „sem styrkir trúna á að ég sé að gera eitthvað rétt“.
Baðstofustemning
Þegar blaðamann bar að garði á Stórhóli í sumar voru þrjár kynslóðir saman komnar í versluninni Rúnalist. Stemningin var hlýleg og stutt í bros, hver að sýsla í sínu.
„Við eigum fimm börn og þrjú barnabörn og erum svo lánsöm að hafa barnabörnin í næsta nágrenni í Gilhaga. Elsti sonurinn, Sverrir, er bóndinn í Gilhaga, Gunnar er kennari í Mosfellsbæ, Álfrún á Liljugaldur og býr á Akureyri, Indriði er smiður og er hérna heima og Bergrún sú yngsta er í 10. bekk.“
Sigrún sér alfarið um búskapinn á Stórhóli. Eiginmaður hennar, Þórarinn Sverrisson, „léttadrengur“ vinnur alfarið utan bús, hann var enda fjarri góðu gamni þetta síðdegið.
„Ég opnaði Rúnalist Gallerí 2014 en hafði selt að heiman fyrir það. Upphaflega seldi ég bara mínar matvörur en smátt og smátt tók ég inn matvörur frá fleirum. Nú er ég með vörur frá um 15 aðilum. Þegar ég er á ferðinni hef ég auga með vörum smáframleiðenda sem væri gaman að hafa í búðinni.“
Andar- og pekinghænuegg
„Við erum með um 20 geitur núna, 30 endur og eitthvað af hrossum. Í Skagafirði segir maður aldrei hvað hrossin eru mörg,“ segir Sigrún og hlær. Hún segir þau ganga á milli bæjanna Gilhaga og Stórhóls eftir því hvað hentar best. Hrossin þeirra séu aðallega notuð á haustin í smölun, en að öðru leyti séu þau til heimilisbrúks.
Blaðamaður greip með sér andaregg á ferð sinni og gæddi sér á með silfurskeið í góðum selskap. Þau reyndust einhver þau gómsætustu sem hann hafði smakkað.
„Mér finnst endurnar voðalega skemmtilegar. Þær eru þægileg dýr. Þær eru ekkert að fljúga í burtu, þær geta ekki flogið en eru ekki vængstýfðar. Þær verpa alveg eins og klukka. Það er auðveldur búskapur að vera með endur.
Ég geri það viljandi að hafa svæðið sem þær valsa um takmarkað, þeim til verndar. Hrafninn getur verið skæður, hann verpir hér beggja vegna við mig og maður getur lent í vandræðum með hann, sérstaklega með unga. Eins með hunda, sem geta tekið upp á að leika við þær. Endurnar eru einu dýrin sem ég á sem elska rigningu og bleytu, polla og drullumall,“ segir Sigrún og hugsar greinilega glaðbeitt til flokksins.
„Núna er ég með andaregg allt árið. Þegar maður er með unga byrja þeir oft að verpa rétt fyrir jól. Þær tóku sér áður pásu frá október og fram í mars, en það fer eftir hitastiginu í húsinu. Ef það er ekki kalt á þær halda þær áfram að verpa. Ég á viðskiptavini sem ganga fyrir andareggjum.“ Hún segir alveg geta komið til þess að selja eggin víðar.
Ærgæti og Smalabiti
Sigrún vinnur allt geitakjötið sjálf, „þá veit ég nákvæmlega hvað ég er að bjóða upp á. Ég þróaði vörur úr ærkjöti sem ég hef haldið áfram, þær eru góðar og vinsælar.“ Sigrún vinnur allar sínar matvörur í BioPol á Skagaströnd, aðstöðu sem smáframleiðendur og frumkvöðlar geta leigt sig inn í.
„Ég geri Huðnubita sem eru grafið geitakjöt, Geitabita léttreykt og grafið geitafille, Kiðla er vel reykt kiðlingalæri, kæfu, hangirúllur, rúllupylsur, hakk og borgara, hryggi, læri, sneiðar og þess lags. Ærgæti og Smalabiti eru afurðir úr ærkjötinu sem eru vinsælir og fólk þarf að fá fyrir jólin!“ Innt eftir útskýringu segir hún Ærgæti vera grafið ærlæri og Smalabita léttreykt og grafið ærfillet.
„Ef ég hefði sest niður og reiknað dæmið til enda fyrst þá hefði ég vafalaust ekki gert neitt. Ég byrjaði að vinna ærkjötið þegar við vorum að fækka kindunum og við fengum ekkert fyrir að leggja þær inn. Ég ákvað að gera mér pening úr ærkjötinu og selja og kynna það fyrir fólki. Þetta er frábær matur.“
Hagleikin fjölskylda
Bróðir Sigrúnar, Jón Egill, og mágkona eru með pekinghænur og landnámshænur og selja eggin í búðinni. „Hann er mjög hagur, þau súta gærur, smálambaskinn og eru með vörur úr hornum og beinum í búðinni.
Eldri dóttir mín er að svífa inn í handverkið og það gleður mig ósegjanlega. Það er ástæða fyrir því að búðin heitir Rúnalist, eldri dóttirin heitir Álfrún og sú yngri Bergrún. Það var ósagður draumur að sjá fyrir mér að Rúnalist gæti orðið vettvangur fyrir okkur allar.“ Sigrún segir Álfrúnu hekla búálfa og hún sé heppin að fá að selja vörurnar hennar í búðinni. „Búálfarnir heita eftir gömlu mánuðunum svo gestir geta fundið sinn afmælisálf. Hún heklar þá úr bandi af fjölskyldukindunum, sem ég lita fyrir hana.“
Sendir ullina í Uppspuna
„Þegar við sonur minn vorum að sameina hjarðirnar þá komu nokkrar vöflur á mig, það var svo fallegt að sjá kindurnar í túnfætinum.“ Hún segir soninn hafa tekið af sér loforð um að hjálpa sér við rúning og hún skyldi fá alla þá ull sem hún vildi.
Ullina sendir Sigrún í smáspunaverksmiðju Uppspuna og vindur bandið sjálf upp. „Ég læt fylgja með af hvaða kind ullin er, bandið er því merkt með ullargjafanum. Ég hanna og sel líka uppskriftir.“ Geitafiðan er líka spunnin í Uppspuna og blaðamaður getur vottað að hún er dúnmjúk og dásamleg.
Sigrún segir mikilvægt að varðveita og miðla vinnubrögðum ríkulega til komandi kynslóða, svo sem matarhandverki og tóvinnu. Hún harmar þróun sútunar á Íslandi og segir mikilvægt að passa upp á starfsemi eins og ullarvinnslu Ístex, hún sé dýrmætari en flestir geri sér grein fyrir.
Geiturnar eldklárar og fyndnar
„Það hafa verið tvö skipti sem við Íslendingar höfum næstum tapað geitastofninum. Þegar ég byrjaði með geitur 2012 voru rétt innan við 1.000 dýr í landinu. Þau eru að skríða yfir 2.000 núna, en eru í raun enn í útrýmingarhættu. 2.000 geitur er enginn fjöldi. En það eru býli sem eru farin að mjólka og vinna osta. Það er vakning, breyting.
Fólk saup hveljur í sveitinni þegar ég fékk mér geitur, sagði þær óalandi, óferjandi og kjötið óætt. Þær fara kannski eitthvert sem þú vilt ekki hafa þær, en það er alveg hægt að girða fyrir þær. Það eru líka til túnrollur,“ segir Sigrún og hlær.
„Geiturnar eru gæfar, þú getur kallað á þær og þær koma. Ég set þær sem hafa fjallaleyfi upp á fjall, þær sem eru hér heima eru gæfar og þegar það koma gestir eru þær fljótar að átta sig á því og koma og fá brauðmola og heilsa upp á gestina. Þetta eru fyndin dýr, eldklár.“
Hún segir fyndið að sjá hvað geitunum finnst sauðféð heimskt. „Þær reka rollur miskunnarlaust af garðanum ef maður ætlar að láta þær éta saman.“
Hreinleiki skiptir máli
Sigrúnu er umhugað um hreinleika afurða og hefur hugleitt að skipta alveg yfir í lífræna ræktun. „Ég held það skipti miklu máli hvað við leggjum okkur til munns. Hreinleikinn er mikill, lömbin okkar ganga stærstan hluta ævinnar á fjalli og það hlýtur að skipta máli.“
Sonurinn sér um að heyja og hún fær það hey sem hún þarf til skepnuhaldsins. „Maður hefur séð úti í heimi að hluti af túnum getur verið í lífrænni ræktun. Mér hefur alla tíð fundist þetta spennandi, að nýta það sem landið gefur okkur.“
Endurnýjun í sveitinni
„Það er stutt á milli bæja í þessari sveit og búskapur fjölbreyttur. Við eigum tvo lífræna bændur hér í grenndinni, Breiðargerði og Sölvanes, það er margt sem er hægt að sjá og gera í þessari sveit.
Sveitin er dálítið að endurnýjast. Það er ungt fólk að taka við víða og það er dásamlegt að sjá það og finna hvað samheldnin í unga fólkinu er mikil. Þau eru mikið að hjálpast að og vinna saman.“
Sigrún segir stemninguna í nágrannasamfélaginu góða. „Við sem erum í ferðaþjónustu erum dugleg að vinna saman og auglýsa viðburði. Við erum mjög meðvituð um að hjálpast að við að koma okkur á framfæri.“
Búskapur mikilvægur fyrir heildina
„Mér finnst neytendur alltaf vera að vakna meira og vilja versla beint frá býli, bæði ungir og gamlir. Kannski vantar að það sé betra aðgengi fyrir fólk til að gera það. Við vorum að selja lambakjöt beint frá okkur, en það er gríðarleg vinna og við ákváðum að hætta því þegar Blönduós hætti, þeir þjónuðu okkur smáframleiðendum mjög vel. KS er að reyna en þeir geta ekki veitt sömu þjónustu. Þetta var skemmtileg bilun, en það var skynsamlegt að hætta þessu.“
Innt eftir skoðun á stöðunni í starfsumhverfi smáframleiðenda berst talið að slátrun. „Það er eins og það vanti meiri velvilja. Það er eins og það sé búist við að fólk sé með einbeittan brotavilja, þú sækir ekki um leyfi nema þú viljir gera hlutina rétt og vanda þig.
Sumt af regluverkinu er þungt og erfitt. Í litlu sláturhúsunum má til dæmis ekki slátra fleiri en 30 kindum/ geitum á dag sem er galið. Frekar en að geta slátrað til dæmis 100 á dag, það myndi breyta gríðarlega miklu. Svona atriði virðast ekki stór, en á gólfinu þegar kemur að framkvæmd þá skiptir þetta verulegu máli.“
Sigrún segir ákvörðun bænda um að vera bændur hafa víðtæk áhrif. „Mér finnst eins og það vanti að fólk skilji hvað búskapur á Íslandi er mikilvægur fyrir heildina. Það eru svo mörg störf sem verða til út af landbúnaði, það vantar að meta það að verðleikum.“
Innblástur frá útlöndum
Sigrún hefur reglulega farið í ferðir erlendis og skoðað býli smáframleiðenda sem framleiða ýmsar vörur. „Þessar ferðir hafa veitt mér gríðarlegan innblástur. Ég máta mig inn í aðstæður. Við sjáum oft eitthvað sem er ekki leyfilegt á Íslandi.“
Hún segir slíkar ferðir efla mann sem frumkvöðul og vera hvatningu til að gefast ekki upp, þær gefi byr undir báða vængi.
Í nýlegri matarhandverksferð til Austurríkis, átti Sigrún samtal við smáframleiðanda í lítilli verslun sinni. Sá sagði um 200 hjólreiðamenn fara hjá á góðum degi sem gjarnan stöldruðu við og fengju sér ís eða annan bita. „Að halda úti svona hér getur verið erfiðara. Við erum að berjast við hvað við erum fámenn.“
Þegar BioPol byrjaði árið 2017 var ég eini smáframleiðandinn í Skagafirði sem var að framleiða vörur og selja beint frá býli. Nú hafa fleiri bæst í hópinn sem framleiða sjálfir. Það er stórkostlegt. Ég gæti ekki haldið þessa markaði ef það væri ekki svona mikil gróska og margir smáframleiðendur sem ég get boðið að koma og selja vörurnar sínar,“ segir Sigrún kampakát að lokum og kveðst hlakka til jólamarkaðarins.
