Arnar Stefánsson er hvatning fyrir þá sem eiga eftir að láta drauma sína rætast.
Arnar Stefánsson er hvatning fyrir þá sem eiga eftir að láta drauma sína rætast.
Mynd / sp
Viðtal 5. nóvember 2026

Glæstur ferill límmiðasala

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

– Saumakallinn Arnar Stefánsson tekinn tali

Hér verður rakin saga manns í blóma lífsins, sem án efa verður öðrum til hugljómunar. Titill greinarinnar má þó ekki blekkja lesendur, því einmitt þessi nafngift er upphaf þess sem í dag er staðgengill virðingu og dugs.

Sagan hefst á unglingsárum Arnars sem lengi hefur haft áhuga á öllu sem viðkemur textíl, en þá starfaði hann á tímabili á Elliheimilinu Grund þar sem oft mátti nýta áður notaðan fatnað.

„Já, saumaskapurinn á vel við mig, þar hef ég skarað fram úr frá unga aldri,“ segir Arnar. „Allt sem ég saumaði þarna fyrst var í höndunum. Mér fannst ég góður í því og um leið og ég lagaði eitthvað átti fólk það til að súpa hveljur af hrifningu. Sem kom skemmtilega á óvart, því mér þótti eðlilegt að lagfæra það sem þurfti og gerði það af lagni greinilega.

Á þessum tíma var ég að dunda mér við að vera í framhaldsskóla, leyfði einingunum að hlaðast upp svona í rólegheitunum, þar til foreldrar mínir voru farnir að velta fyrir sér því að nú liði að útskrift hjá mörgum, en ég átti eftir um 100 einingar á sama tíma? Ég a.m.k. vaknaði upp við þá staðreynd að það var ekki að stefna í neina útskrift og ákvað að drífa mig, þá árið 2013, í Fjölbrautaskólann í Breiðholti að læra saumaskap.

Það er mikið handverksfólk í ættinni, sérstaklega móðurmegin – úr Svarfaðardalnum. Einn frænda minna, sem reyndar hefur sjálfur smíðað sér flugvél, var sérstaklega ánægður þegar hann frétti að ég hefði ákveðið að læra að vinna með höndunum, enda handverkið í blóðinu frekar en bókhneigðin. Það gaf mér byr undir báða vængi og ég flaug áfram fullur sjálfstrausts með iðnina sem ég hafði valið mér að starfsvettvangi.

Ég kynntist saumavélinni í skólanum, naut góðrar aðstöðu og leið eins og blóma í eggi. Smá sjokk að fara úr þeim aðstæðum út í blákaldan raunveruleikann saumavélalaus og án þess að vita hvað tæki við, en ég útskrifaðist 2015. Ákvað þó í kjölfarið að flytjast til Kaupmannahafnar, kynntist þar stelpu, verslunarstjóra í vintagebúðinni Wasteland, sem margir þekkja hérlendis. Henni gafst kostur á að kaupa sig inn í bisnessinn og opna útibú í Reykjavík og ég fylgi þá með aftur heim, sem hnakkaskraut.

Þetta var skemmtilegur tími, tengslin við Wasteland gerðu það að verkum að ég gerði við heilmikið af fatnaði sem kom í búðina í miður góðu ástandi. Hins vegar þarfnaðist ég þess, saumaóður maðurinn, að geta setið við sauma daginn út og inn en ekki einungis í hlutastarfi eins og staðan var þarna.“

Svettsjopp í Asíu

Lítið var um störf hérlendis við viðgerðir sem slíkar og leitaði hugur Arnars á framandi slóðir, en aðspurður segist hann alveg hafa verið til í að flytjast til Asíu og sitja þar í „svettsjoppi“. Íslenska fánasaumastofan á Hofsósi var einnig eitthvað sem heillaði, en enga vinnu var þar að fá og að lokum fékk Arnar starf hjá Seglagerðinni Ægi.

Það er ýmislegt sem gleður augað í hinu víðfræga glerbúri Glæsibæjar.

„Þráin var það heit að ég hefði verið tilbúinn að leggja land undir fót til að verða mér úti um vinnu við að sauma,“ segir hann, en það fór nú svo að ég landaði vinnu hjá Seglagerðinni, sat þar einbeittur í saumasalnum ásamt fjölda annarra sem voru þegar nokkuð framar á þessari braut. Meðalaldurinn í kringum fimmtugt. Og ég elskaði þetta! Að sitja og sauma allan daginn, ég hefði ekki getað verið sáttari.“

Upphaf límmiðaferlisins

„Þegar þarna er komið, er ég í hlutastarfi í Wasteland, hlutastarfi í Seglagerðinni og datt svo í hug að fara að selja límmiða ásamt Brynjari bróður mínum. Sú hugmynd kom til þegar ég tók eftir því að límmiðaskreytingar mínar innan dyra verslunarinnar Wasteland hurfu allfljótt af veggjunum, fólk greinilega spennt fyrir þessu. Þannig ég ákvað að brjótast svolítið bakdyramegin inn á markaðinn með því að fylgja öllum þeim sem fylgdu Wasteland á Instagram sem nýstofnaðaður límmiðabisness, Klístur Reykjavík.

Fylgjendurnir hrönnuðust inn og eftir að hafa verið að taka á móti límmiðaóðu fólki heim til mín, fólk sem sagt pantaði og mætti á vissum tímum, stóð í röðum í garðinum ... og þáverandi kærastan mín kasólétt ... þá færðum við Brynjar út kvíarnar og leigðum bás í Kolaportinu einu sinni í mánuði.

Þetta sló í gegn og áður en varði vorum við farnir að vinna þar allar helgar, alveg þangað til að kom í ljós að bróðir minn sá ekki beinlínis framtíðarstarfsheitið límmiðasali í hillingum. Hann vildi verða smiður. Þetta fyllti mig stolti og ég keypti hann út úr starfseminni,“ segir Arnar hugsi.

Í kjölfarið sat Arnar þá gjarnan með saumavélina sína hjá sér í Kolaportinu. Það fór ekki fram hjá gestum Kolaportsins og fljótlega fæddist fyrirtækið Saumakallinn, saumastofa fyrir almenning. „Mér fannst skemmtilegra að hafa saumavélina með mér, það myndaðist þarna rými fyrir hana og þá mig til viðgerða – enda ekkert verra en að sitja og stara viðskiptavini niður sem ætla sér að skoða límmiða. Til viðbótar er í rauninni ekkert hægt að selja límmiða ... „vá, þessi límmiði er svo mikið þú“ ... virkar illa. Þannig ég fór að sauma með annað augað á límmiðunum. Tíminn hjá Kolaportinu var mér mjög dýrmætur og aðstandendur þar og aðstæður til fyrirmyndar.“

Fagleg og jarðbundin þjónusta

„Í dag er ég menntaður fatatæknir frá Tækniskólanum, fór þangað eftir heimkomu frá Kaupmannahöfn og útskrifaðist árið 2022. Iðnaðarmaður í raun.

Menn kannski fatta ekki að ég er iðnaðarmaður þar sem ég sit við saumavél, en þetta getur ekki verið skýrara, ég er iðnaðarmaður. Félagsmaður í Samtökum iðnaðarins meira að segja, drekk gallharður kaffi á Þorláksmessu með hinum iðnaðarmönnunum, nánast prjónandi úti í horni.“

Í dag hefur Arnar aðsetur í verslanamiðstöðinni Glæsibæ í Reykjavík, miðsvæðis á fyrstu hæð og býður þar upp á „faglega, persónulega og jarðbundna þjónustu“ hverslags saumaskapar.

Fer verkstæðið Saumakallinn ekki fram hjá neinum, en auk þess að þar sé boðið upp á viðgerðir á fatnaði eru til sölu alls lags fatabætur, lyklakippur og jú límmiðar, í kringum 200.000 talsins sem er fagurlega uppstillt.

„Ég kom mér hérna vel fyrir 1. mars 2025, hentuglega staðsettur miðsvæðis og stíla á að fólk taki eftir mér á leið sinni um húsið,“ segir Arnar glaðhlakkalega og bætir því við að aðeins 10 mínútur hafi liðið frá því að hann kom sér fyrir í sætinu við saumavélina þar til að fyrsti kúnninn mætti inn fyrir dyrnar.

Arnar er þekktur fyrir bæði natni og faglega þjónustu. Mynd / aðsend

Orðsporið mikilvægt

Límmiðarnir vekja mikinn áhuga, ekki síst hjá ungviðinu sem hefur gaman af að fá að skoða og enn meiri skemmtan af að fá gefins nokkra útvalda hjá Arnari. Lítið er um að verið sé að hnupla miðunum sem þekja allstórt svæði saumaverkstæðisins og hefur Arnar skýringu á reiðum höndum hvers vegna svo sé.

„Ég veit að þetta er glannalega uppsett hjá mér, en þetta eru nú bara límmiðar og svo er það nú þannig að ef þú rænir frá mér, þá ertu bara ekki kúl. Út af því að ég er svo kúl,“ bendir Arnar kurteislega á. „Ef fólk er að stæra sig af því að vera með nokkra límmiða sem þau stálu úr Klístri, þá ert þú bara glataður. Af því að þú ert að stela frá gaur sem er mjög næs við þig. Ég sé það alla vega þannig að ef ég kem vel fram við viðskiptavininn þá er ekki verið að stela frá mér. Orðsporið, sjáðu til. Það þýðir samt ekki að ég sé ekki að fylgjast með þó ég sitji hérna og saumi, ég sé allt! Og myndavélarnar líka.“

Í glerbúri í Glæsibæ

Saumasjoppan, eða verkstæði iðnaðarmannsins Arnars, er í 37 fermetra plássi, settu saman úr glerveggjum, enda bendir hann á að hann sé hvorki klæðskeri né kjólameistari, hér sé saumað og unnið við viðgerðir sem þurfi ekki meira pláss.

Góður rómur fer af Saumakallinum sem þykir natinn og sérstaklega laginn við viðgerðir rennilása og myndi sjálfur, ef og þegar kemur að því að hanna fatalínu, gæta þess að rennilásar séu á sem aðgengilegustu stöðum.

„Þetta púslaðist svona vel saman að lokum. Límmiðarnir undu upp á sig allsvakalega á meðan ég óskaði þess heitast að vinna við að sauma. En nú er þetta komið, ég er einn í þessari hljómsveit, fyrir utan harðduglegt ungt fólk sem tekur vaktir um helgar.

Ég fæ mjög iðulega spurninguna, hvernig geturðu þetta?, en ég hef gaman af þessu og er búinn að koma mér á einhvern stað sem ég get seinna sett í ferilskrána mína. Framtíðin er ekki eitthvað sem ég velti fyrir mér því ég er á góðum stað, skulda ekkert og gæti þess vegna gengið út á morgun. Bara meira fokkitt, er það lánsamur að vera í núinu og starfa hérna í 37 fm glerbúri í Glæsibæ þar sem innvolsið er eins og heilinn á mér á röngunni. Glerbúrið í Glæsibæ, opið hverjum sem vill á líta.“

Fyrirtækið Saumakallinn er svo sannarlega hugsjón ungs manns sem varð að veruleika og nú jafnvel fyrirmynd allra þeirra sem hafa hug á að láta drauma sína rætast.

Skylt efni: viðtal | saumakall

Enn þá jafn gaman og þegar ég var sextán ára
Viðtal 26. apríl 2022

Enn þá jafn gaman og þegar ég var sextán ára

Baldur Sæmundsson, áfanga­stjóri í Menntaskólanum í Kópa­vogi, þar sem Hótel- og...

Mikilvægt að mennta fólk fyrir stækkandi atvinnugrein
Viðtal 8. apríl 2022

Mikilvægt að mennta fólk fyrir stækkandi atvinnugrein

Garðyrkjunám sem starfrækt er á Reykjum í Ölfusi mun tilheyra Fjölbrautaskóla Su...

Fann mína ástríðu í þessu starfi
Viðtal 8. desember 2021

Fann mína ástríðu í þessu starfi

„Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst öllu þessu fólki í sveitunum, notið gestri...

„Það eiga allir að gera erfðaskrá“
Viðtal 8. nóvember 2021

„Það eiga allir að gera erfðaskrá“

„Erfðaskrá er til þess fallin að leysa úr mörgum málum sem annars tæki tíma og o...

„Fyrst og fremst er það hljómurinn sem heillar mig“
Viðtal 13. júní 2021

„Fyrst og fremst er það hljómurinn sem heillar mig“

Talið er að harmonikkur hafi fyrst komið til Íslands með frönskum sjómönnum sem ...

Ný Oddakirkja verður byggð og Sæmundarstofa verður menningar- og fræðasetur
Viðtal 19. mars 2021

Ný Oddakirkja verður byggð og Sæmundarstofa verður menningar- og fræðasetur

Landbúnaður á Íslandi stendur frammi fyrir mörgum og ólíkum áskorunum
Viðtal 12. febrúar 2021

Landbúnaður á Íslandi stendur frammi fyrir mörgum og ólíkum áskorunum

Vigdís Häsler lögfræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Bændasamtaka Ísla...

Þjónusta verði snögg, fagleg og aðgengileg og eftirlitið einfalt, málefnaleg og skilvirkt
Viðtal 12. janúar 2021

Þjónusta verði snögg, fagleg og aðgengileg og eftirlitið einfalt, málefnaleg og skilvirkt