Nýtt varnarlínukort
–Engar tengingar við lit eyrnamerkja
Matvælastofnun hefur gefið út nýtt og endurskoðað varnarlínukort. Kortið tekur mið af nýrri reglugerð um merkingar og skráningar dýra þar sem kveðið er á um að litur á eyrnamerkjum sauðfjár sé ekki lengur bundinn við varnarhólf landsins, sem eru 22.
Að sögn Sigurbjargar Ólafar Bergsdóttur, sérgreinadýralæknis jórturdýrasjúkdóma hjá Matvælastofnun (MAST), er meginbreytingin að eyrnamerkja- litirnir hafa verið fjarlægðir, engar breytingar séu á línunum sjálfum. „Svo var ákveðið, til glöggvunar, að draga rauða línu umhverfis áhættuhólfin og grænar línur til þess að afmarka líflambasölusvæðin, þannig að fólk eigi auðveldara með að átta sig á staðsetningunum á þessum svæðum,“ segir hún.
Innfluttir sauðfjársjúkdómar
Í umfjöllun um varnarhólfin á vef MAST segir að varnarlínurnar séu ýmist girðingar eða náttúrulegar hindranir. Upphaflegur tilgangur fyrirkomulagsins hafi verið að varna útbreiðslu sauðfjársjúkdóma sem borist höfðu með innflutningi á karakúlfé frá Þýskalandi árið 1933.
„Um var að ræða sjúkdómana garnaveiki og mæðiveiki (votamæði og þurramæði). Varnarhólfin voru liður í aðgerðum sem ráðist var í til útrýmingar á sjúkdómunum. Fé var fargað á sýktum svæðum og nýtt tekið í staðinn frá ósýktum svæðum. Votamæði var útrýmt árið 1952 en þurramæði árið 1965. Ekki tókst jafn vel til með garnaveiki og er hún enn til staðar. Eftir að bólusetning var tekin upp hefur tíðni garnaveiki þó minnkað mikið og hefur henni verið útrýmt á nokkrum svæðum,“ segir á vef MAST.
Breytt hlutverk gagnvart riðu
Þótt varnarlínur hólfanna séu óbreyttar hefur sú breyting orðið á hlutverki þeirra gagnvart riðu, sem er einn skæðasti sauðfjársjúkdómurinn, að með útgáfu á reglugerð um riðuveiki í lok síðasta árs er nú breytt nálgun við útrýmingu á riðu í fé. Þannig verða samkvæmt reglugerðinni aðgerðir vegna staðfestra riðusmita áhættumiðaðar og beint að tilteknum áhættuflokkuðum bæjum en ekki jafnt að öllum bæjum í viðkomandi varnarhólfi líkt og verið hefur.
Þótt litur eyrnamerkja hafi verið gefinn frjáls er þar ein undantekning. Rauðan lit má aðeins nota með leyfi yfirdýralæknis.
