Búist við talsverðum verðhækkunum
Áburðarsalar búast við talsverðum áburðarverðshækkunum á tilbúnum áburði fyrir næsta ár.
Vísbendingar eru um að köfnunarefnisáburður gæti hækkað um 25–30% og NPK-áburður um 15–20%. Slíkar verðhækkanir gætu orðið íþyngjandi fyrir búrekstur íslenskra nautgripa- og sauðfjárbænda, þar sem áburðarkaup eru einn stærsti einstaki útgjaldaliðurinn.
Stór hluti framleiddur við Persaflóa
Áhrif stríðsátaka við Persaflóann hafa þar mest áhrif á heimsmarkaðsverð á jarðgasi, sem er grunnhráefni og orkugjafi í framleiðslu flestra tegunda köfnunarefnisáburðar. Bæði er þar um að ræða röskun á framleiðslu á jarðgasi og útflutningi áburðar frá svæðinu – en ríki við Persaflóa standa fyrir verulegum hluta útflutnings köfnunarefnisáburðar á heimsmarkað.
„Við erum í reglulegu samtali við okkar birgja og þær verðvísbendingar sem við fáum nú benda til þess að köfnunarefnisáburður gæti verið á bilinu 25–30% dýrari en á síðasta sölutímabili. Fyrir dæmigerðan NPK-áburð er einnig rætt um hækkanir á bilinu 15–20%. Þetta er þó háð áframhaldandi markaðsþróun sem ekki er útséð með hver verður,“ segir Jóhannes Baldvin Jónsson hjá Líflandi.
Jóhannes segir að hátt orkuverð hafi líka þrýst upp framleiðslukostnaði í Evrópu. „Það eru einhver dæmi um að evrópskir framleiðendur hafi dregið úr framleiðslu vegna þessa og óvissa ríkir um verð og framboð næstu vikur.
Þessi óvissa veldur því að bæði kaupendur og seljendur fara varlega í að skuldbinda sig til lengri tíma, enda getur þetta snúist nokkuð hratt ef aðstæður breytast. Við fylgjumst því áfram með stöðunni og metum þróunina.“ Hann bætir við að þrátt fyrir ástandið sé ekki fyrirsjáanlegur vöruskortur, heldur fyrst og fremst óróleiki á mörkuðum og óvissa með endanlegt verð.
Vetni unnið úr jarðgasi
Að sögn Jóhannesar er vetni unnið úr jarðgasi í hefðbundinni áburðarframleiðslu og það síðan látið hvarfast við köfnunarefni úr andrúmsloftinu í svokölluðu Haber-Boschferli til að framleiða ammóníak. „Okkar vörur innihalda mest ammóníumnítrat, gjarnan líka kalkbundið ammóníumnítrat, auk þess sem ammóníak er notað við framleiðslu á díammóníumfosfati sem er einnig algengt í okkar vörum.
Jarðgasið sem notað er í Evrópu kemur úr ýmsum áttum, ekki síst frá Noregi og Bandaríkjunum og í raun bara lítill hluti frá Persaflóasvæðinu, miðað við þær tölur sem ég hef nýlega séð. Ástandið þar hefur hins vegar áhrif á alþjóðlegt gasverð og framboð, auk þess sem verulegt magn áburðar er framleitt á svæðinu og flutt þaðan á heimsmarkað. Truflanir á framleiðslu og siglingum hafa því áhrif á bæði orkuverð og áburðarframboð, óháð því hvar einstakar áburðarverksmiðjur eru staðsettar.“
