Ingvar Hersir Sveinsson og Melissa Boehme í Reykjahlíð á Skeiðum, með börnin Iðunni Sögu, sjö ára og Diljá Frigg, eins og hálfs árs.
Ingvar Hersir Sveinsson og Melissa Boehme í Reykjahlíð á Skeiðum, með börnin Iðunni Sögu, sjö ára og Diljá Frigg, eins og hálfs árs.
Mynd / Aðsend
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

– Heimafengið fóður án eitur- og varnarefna

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetningu sinna afurða að hvorki eitur- né varnarefni séu notuð við öflun eigin fóðurs fyrir gripi sína. Það er þó raunin í Reykjahlíð á Skeiðum, þar sem bændurnir segja stoltir frá hugsjónum sínum um að neytendur verði að geta treyst vörugæðum þeirra – líkt og þau sjálf geri.

Þau heita Ingvar Hersir Sveinsson og Melissa Boehme og tóku alfarið við búrekstrinum í Reykjahlíð á síðasta ári. Ingvar á rætur í Reykjahlíð, sonur Katrínar Helgu Andrésdóttur og Sveins Ingvarssonar.

Mikilvægt að geta treyst gæðunum

Aðalbúgrein þeirra er mjólkur- framleiðsla en það er í uxaeldinu, en það eru geld naut, sem þau geta notað þessar staðreyndir til markaðssetningar og hafa gert til að mynda á Matlandi. „Okkar nálgun er aðallega sú að reyna að búa til eins hreina vöru og við getum. Við reynum sjálf að velja okkar eigin matvörur eftir árstíðum og því sem er í boði hverju sinni. Þannig getum við verslað sem mest í nærumhverfi okkar, enda erum við ótrúlega vel staðsett í uppsveitum Suðurlands þar sem nóg úrval er af íslensku grænmeti allt árið um kring.

Við neytum sjálf þeirra matvæla sem við framleiðum, því skiptir okkur miklu máli að geta treyst gæðum þeirra og vita að við getum með góðri samvisku gefið börnunum okkar þau að borða,“ segir Melissa.

Lítil umræða um eiturefni

Að sögn Melissu fer ekki mikið fyrir umræðu um notkun eitur- og varnarefna í landbúnaði – hún sé umdeild, meðal annars vegna mögulegra umhverfis- og heilsufarsáhrifa. „Okkar afstaða er því sú að nota eins lítið af ólífrænum efnum og við komumst upp með til að ná uppskerumarkmiðum okkar. Eitur- og varnarefni viljum við ekki nota til að auka uppskeruna, við þurfum þau einfaldlega ekki.

Skiptiræktun hefur virkað vel í okkar ræktun, við ræktum bygg að hámarki í þrjú ár samfleytt á sama akri og reynum eftir bestu getu að hafa akurinn opinn eins stutt og mögulegt er frá plægingu að sáningu, til að sporna gegn útskolun á næringarefnum og til að minnka líkur á spírun arfa.“

Geðgóðir uxar

Þau eru eingöngu með uxa í eldi til slátrunar. „Fyrir nokkrum árum tókum við ákvörðun um að hætta nautaeldi með graðnautum og gelda öll nautin, að undanskildum einum til tveimur á ári sem eru notuð sem þarfanaut. Ástæður fyrir því eru nokkrar, til að mynda eru uxar mun rólegri í umgengni, við getum látið þá alast upp með kvígunum og þurfa þeir þá ekki sér stíur. Þá getum við tryggt þeim útiveru sem við reynum að hafa sem lengsta á hverju ári. Þeir fara út í apríl eða maí og eru teknir inn í desember eða janúar.

Að vísu verða uxarnir ekki jafn stórir og naut og vaxtarhraðinn er hægari, en á móti er kjötið gjarnan vel fitusprengt og meyrt þó að bitinn sé kannski aðeins minni. Uxunum er slátrað við 24–28 mánaða aldur og er meðalfallþungi um 240 kíló,“ segir Ingvar og bætir við að útivera þeirra geri þeim líka kleift að halda eldiskostnaðinum í lágmarki og vegi upp á móti þessu „tapi“ af minni fallþyngd.

Hann segir að uxarnir fái óerfðabreytt kjarnfóður til um sex mánaða aldurs og eftir það séu þeir úti stærstan part ársins og borði einungis gras og hey. „Fyrir slátrun fá þeir aukalega bygg eða stundum heilfóðurblöndu frá mjólkurkúnum sem er blanda af heyi, grænfóðri og heimaræktuðu byggi í sirka 4–6 vikur fyrir slátrun.“

Uxahjörð í Reykjahlíð.

Úrvalsvörur úr héraði

Spurð um markaðssetninguna segir Melissa að þau hafi byrjað á að selja beint frá býli, í gegnum Facebook og Instagram-síðurnar þeirra og fundið mjög fljótlega fyrir mikilli eftirspurn. „Hún var eiginlega orðin það mikil að utanumhaldið var orðið ansi tímafrekt og þar kemur Matland að sjálfsögðu sterkt inn. Þannig þurfum við ekki að sjá um endursöluna sjálf en náum samt að koma vörunum okkar sérmerktum á markaðinn.

Að auki höfum við selt vörurnar okkar í Sólskinsbúðinni á Flúðum í um þrjú ár og fæst kjötið okkar þar allan ársins hring.

Það er algjör lukka enda hefur búðin stækkað og dafnað mikið á síðustu árum og metnaðurinn hjá Sólskinsteyminu að bjóða upp á úrvalsvörur úr héraði algjörlega til fyrirmyndar. Eins og er eru þetta einu leiðirnar okkar til að koma kjötinu okkar sérmerktu á markaðinn en það má að sjálfsögðu alltaf hafa beint samband við okkur ef áhugi er fyrir því að kaupa beint frá okkur,“ segir hún.

Pálmafitan varasöm

Þegar þau eru spurð hvort ekki væri æskilegt að geta einnig markaðssett mjólkina með svipuðum hætti, segir Melissa að það væri auðvitað frábært að geta merkt hana sem „Non GMO“ – eins og algengt sé í mörgum löndum Evrópu. „Eins og staðan er í dag þá hefur neytandinn ekki möguleika á að velja Non GMO-mjólk á Íslandi nema lífrænt vottaða mjólk.“

Ingvar segir að pálmafita sé annað sem ekki sé notuð í þeirra kjarnfóðri, mikil notkun á henni skili sér í mjólkinni þar sem hún breyti samsetningu á fitusýrum mjólkurinnar. „Hún eykur hlutfall harðra fitusýra sem getur skilað sér í harðara smjöri og að einhverju leyti óhollari vöru. Auk þess sem pálmafitan sjálf er ekki hollasti kosturinn, er framleiðsla hefðbundinnar pálmafitu mjög umdeild og að okkar mati iðnaður sem við viljum ekki styðja, hvorki umhverfislega né siðferðislega.

Til að auka fituna í mjólkinni erum við að reyna að fara okkar eigin leiðir, en það er að nota grænfóðurblöndu úr einærri fóðurlúpínu og hveiti sem við ræktum sjálf, sláum og gefum í heilfóðurblandarann.“

Þau segjast finna fyrir áhuga hjá neytendum, í gegnum kjötsöluna, á að vilja fá mjólkurvörur merktar sem óerfðabreyttar. „Þannig að auðvitað væri frábært að geta selt mjólkina líka þannig. En þangað til fögnum við því bara að hafa möguleikann á að koma allavega kjötinu okkar sem slíkum vörum á markað,“ segir Melissa.

Skylt efni: nautgriparækt

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f