Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar aðferðir við mat og vöktun á rusli í vatni.
Sophie Jensen stýrir verkefninu fyrir hönd Matís sem heitir CLEAR-WATER og aðrir tveir íslenskir starfsmenn eru með henni í teyminu. Hún segir að verkefnið hafi byrjað núna 1. september en gert sé ráð fyrir að því ljúki í ágúst 2030. Afar brýnt sé að hafa góðar og samræmdar aðferðir við vöktun á rusli sem geta gefið okkur heildarmynd af ástandi vatnasvæða á ólíkum svæðum víðs vegar í Evrópu.
Plast er 80% af öllu rusli
Sophie segir að vandamálið sé víða mjög alvarlegt, vötn séu mörg orðin talsvert menguð af rusli. Örplast sé víða sem erfitt sé að meta heildstætt nema með betri og samræmdum aðferðum. „Það eru nú þegar til rannsóknir sem sýna að plast er um 80% af öllu rusli sem finnst í náttúrunni og hefur því mikil áhersla verið á plast og plastrannsóknir. Rusl í vatnsumhverfi finnst víðs vegar um Evrópu – í grunnvatni, ám, vötnum, við strendur og úti á hafi – en það er hvorki mælt, greint né skrásett með samræmdum hætti. Þetta leiðir til ósamræmdra gagna sem erfitt er að bera saman, sameina og nýta til að öðlast skilning á því hvar ruslið er að finna, hvernig það berst um og hvaða hættu það veldur.
Það er akkúrat það sem þetta verkefni á að leiða af sér, nefnilega samræmingu í aðferðum og skráningum.
Þegar verkefninu lýkur verður á grundvelli okkar verkefnis bæði auðveldara að finna staði þar sem vandamálið er hvað mest, þar sem safnast mest af rusli, og fara í markvissar hreinsunaraðgerðir. En þær eru ekki hluti af okkar verkefni.“
Vatnsumhverfi allrar Evrópu
Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu með sex milljóna evra heildarframlagi en það er unnið í samvinnu við 19 samstarfsaðila frá 13 löndum. Þar af renna 600 þúsund evrur til íslenska hluta verkefnisins. „Þetta er mjög umfangsmikið heildarverkefni og nær bæði yfir að þróa aðferðir við samræmingu á vöktun og eftirliti – og beinar aðferðir við mælingar á rusli og mat í vatnsumhverfi,“ útskýrir Sophie enn fremur.
„Verkefnið byggir á núverandi vöktunaráætlunum og skilgreinir sameiginlegan viðmiðunargrundvöll sem lönd og svæði geta nýtt sér, um leið og skapaðar eru skýrar leiðir til að bæta aðferðir og samanburðarhæfni gagna með tímanum.
Kjarninn í CLEAR-WATER felst í því að sameina staðfestar aðferðir, gögn, líkön, upplýsingar um vistfræðilega áhættu og leiðbeiningar um stjórnun í eitt sameiginlegt evrópskt rammaskipulag (CLEARMAP), þar sem hagnýtar nálganir mæta leiðum að þróaðri vöktun. CLEARMAP er aðalútkoma verkefnisins og er heildstætt evrópskt rammaskipulag fyrir samræmda vöktun og mat á rusli í vatnsumhverfi.“
Mælikvarðar til að meta heilbrigði vatna
„En innan rammans á líka að þróa og staðfesta samræmdar aðferðir og tækni varðandi mat á rusli í öllum stærðarflokkum – allt frá stóru rusli niður í ör- og nanóplast. Þetta felur í sér staðlaðar verklagsreglur fyrir sýnatöku og greiningu, viðmiðunarefni og staðla, gæðatryggingu og gæðaeftirlit, samanburð milli rannsóknastofa og nýjar lausnir á borð við sjálfvirka sýnatöku, fjarvöktun, drónaeftirlit og greiningu með gervigreind,“ heldur Sophie áfram.
Hún segir að ýmsir mælikvarðar verði notaðir til að meta hvort vatnasvæði séu heilbrigð. „Einn slíkur er ástand vistkerfa, til dæmis hvort nægt súrefni sé í vatni eða hvort eiturefni mælist, en þar undir er líka ruslmagn.
Umfangið er gríðarlega mikið þegar kemur að rusli því það þarf að vakta svo ólíkar tegundir af rusli sem er svo misjafnt að stærð. Til marks um það má nefna að minnsta mælanlega rusleiningin er tveimur milljón sinnum minni en stærsta ruslið sem mælikvarðar okkar ná yfir.“
