Rjómarækjupestópasta
Rækjur eru besta próteinið þegar hakk og spagettí-þreytan leggst yfir mannskapinn við matarborðið. Hitt sjávarpróteinið, fiskurinn, er ekki allra og kjúklingur er svo mikill kjúklingur eitthvað. Sérstaklega með pasta.
Risarækjur eru ekki dýr matur miðað við allt og allt þessa dagana. Lítið fer líka langt í rækjunni. Einn pakki, tæpt hálft kíló yfirleitt, dugir fyrir fjóra á pastabeði. Ef það er góð sósa.
Pasta fer í pott. Gott að nota penne-rör en auðvitað má nota hvað sem er. Yfir það fer sjóðandi vatn. Þannig að rétt fljóti yfir. Þar sem við ætlum að nota slatta af pastavatninu í réttinn þarf að huga að því að salta það ekki um of. Sjóða með lok á pottinum. Hræra reglulega því pastað mun tútna út af vatninu og svo gufar það líka aðeins upp. Ástæðan fyrir því að við fyllum ekki bara pottinn af vatni er til að metta það af sterkju. Hún mun hjálpa til við að þykkja sósuna og gera hana áferðarbetri. Þegar pastað er klárt eða rétt að verða það veiðum við pastað upp úr.
Hita sterkjuríkt pastavatnið aftur upp að suðu og skutla rækjunum út í. Við það kólnar vatnið örlítið og það er gott því við viljum elda rækjurnar við mátulegan hita. Ekki bullsjóða. Tekur bara smá stund.
Rækjur sem eru bláar hráar (hei, þetta rímaði) eru tilbúnar þegar þær eru ekki lengur bláar heldur rauðleitar. Rækjur sem eru rauðleitar hráar, eins og t.d. argentískar rækjur, eru tilbúnar þegar þær eru orðnar sæmilega C-laga. Ef rækjurnar eru alveg orðnar að O-i eru þær kannski fulltilbúnar. En rækjur eru vel ætar þótt þær eldist aðeins of mikið. Pastað og rækjurnar er hægt að elda fyrir fram og kæla. Hita svo bara aftur í sósunni.
Já, og ef þetta er ekki rækjuréttur í matarboð eða til að taka mynd af í Bændablaðið, heldur bara matur á miðvikudegi, þá er ákjósanlegt að saxa rækjurnar í minni bita eftir eldun til að þær dreifist betur í sósunni.
Tómatar og pestó
Smátt saxaður laukur fer, ásamt matskeið eða svo af olíu, á miðlungsheita djúpa pönnu eða í þykkbotna pott. Svita hann í nokkrar mínútur. Þegar laukurinn er orðinn mjúkur og glær, mögulega með örlítið af brúningu í köntunum, fer hvítlaukur, líka saxaður eða rifinn á míkrórifjárni, út í með lauknum. Gott að setja smá olíu með eða smjörklípu. Velta hvítlauknum um þangað til hann byrjar að ilma örlítið. Þá fer tómatpúrra út í og fær sömu meðferð og hvítlaukurinn. Næst fer út í allt þurrkað krydd og piparinn. Leyfa kryddinu að taka sig í nokkrar sekúndur.
Heilir tómatar úr einni dós eru næstir, bara tómatarnir, ekki vökvinn. Ef það eru ekki til heilir tómatar, bara kramdir, þarf bara að sigta mesta vökvann frá og skutla þeim úti í. Þeir kremjast hvort eða er í hamaganginum.
Eldað pastað fer þá út í og svo pestó, kjúklingakraftur og rækjuvatn. Magn af rækjuvatni fer svolítið eftir tilfinningu og sjávarbragðsóskum.
Síðasta fyrir utan rækjurnar sjálfar er rjómi. Það á tæknilega ekki að vera mikil umfram sósa en alls ekki þurrt heldur. Setja rjóma og rækjuvatn þannig að sósan sé rétt rúmlega það sem festist á pastanu. Þegar rjóminn er svo aðeins búinn að taka sig, pastað er orðið heitt og allir sestir við borðið fara rækjurnar út í. Rétt til að ná upp fyrir stofuhita.
Bera fram með gommu af parmesan og stórkostlegu brauði til að svoleiðis skafa sósurestina upp í lokin.
