Eitt stærsta landeldi heims í Vestmannaeyjum
Uppbygging fiskeldisstöðvarinnar Laxeyjar í Vestmannaeyjum er komin langt á veg, en fyrirtækið er þegar byrjað að selja lax á markaði erlendis og seiði sem önnur fiskeldisfyrirtæki hérlendis ala upp í sláturstærð. Laxey er búin að þróa aðferð til að þurrka seyru og vonast til þess að geta afhent bændum hana sem túnáburð á næsta ári.
„Fiskeldi á landi er í mínum huga áþekkara húsdýrarækt á landi en sjókvíaeldi,“ segir Hallgrímur Steinsson rekstrarstjóri í samtali. „Fiskeldi í sjó stjórnast mikið af náttúrunni á meðan við erum með stýrðar aðstæður og lokuð kerfi í landeldi.
Ísland er að verða þungamiðjan á heimsvísu í uppbyggingu á fiskeldi á landi. Ef þú raðar upp fimm stærstu landeldisverkefnunum í heiminum þá væru sennilega þrjú af þeim hérna á Íslandi og tvö í Noregi. Eins eru stór landeldisverkefni í uppbyggingu í Japan, Kína og Bandaríkjunum. Ástæðan fyrir þessum árangri Íslendinga eru nokkrir samverkandi þættir. Náttúrulegar aðstæður eru mjög góðar með góðu aðgengi að vatni og orku, en við höfum tryggt okkur raforku til langs tíma með hagstæðum samningi við Landsvirkjun, sem skapar mikilvægan grunn fyrir áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækisins. Hérna er góður brunnur af fólki sem hefur reynslu úr sjávarútvegi og iðnaði með kunnáttu og hæfileika sem nýtast vel í landeldi.
Stærstu markaðirnir okkar eru Bretland, meginland Evrópu og Bandaríkin. Við seljum laxinn slægðan með haus og pökkum með ís í frauðkassa. Slægður fiskur þolir flutninga vel en roðið ver holdið fyrir bakteríum og skemmdum. Matvælavinnslur taka við laxinum nær endanlegum neytanda, en hjá okkur er mikill áhugi fyrir því að vinna afurðirnar meira hérna í Eyjum. Hjá okkur er vinna í gangi við að skoða hvaða vöruflokkar koma til greina og hvernig vinnslan gæti litið út. Þetta gæti verið flakavinnsla, en með því fæst sá ávinningur að þú flytur aðeins út þann hluta af fiskinum sem er borðaður og getur breikkað kúnnahópinn.
Stærsti hlutinn er fluttur héðan með skipum og er staðsetning Íslands mikill styrkleiki. Ólíkt Noregi er raunhæft að vera með skipaflutninga héðan til Bandaríkjanna að auki við Evrópu. Kanadískt fiskeldi er í mjög góðri stöðu varðandi flutning til Bandaríkjanna, en á milli þeirra eru tollamál sem við höfum sloppið við. Eins höfum við ákveðið forskot þegar kemur að útflutningi til Kína. Ég tel það skynsamlega ráðstöfun að reyna að ná fótfestu á sem flestum mörkuðum, en við höfum séð undanfarin ár hvernig tollamál eru að breytast og það er ákveðin áhætta að vera að fullu inni á einum markaði.“
Lax er góð söluvara
„Ég sé gríðarleg tækifæri í fiskeldi á Íslandi og tel að við getum með því skapað mikil verðmæti, sem eru ákveðin undirstaða okkar lifnaðarhátta,“ segir Hallgrímur. „Ríkinu ber því skylda til að setja upp sanngjarna og rökstudda lagaumgjörð sem styður þessa atvinnugrein í því að byggjast upp á sjálfbæran hátt. Fiskeldið leiðir af sér atvinnusköpun og tekjurnar skila af sér velmegun.
Það er gríðarlegur markaður fyrir lax og við njótum góðs af áralöngu markaðsstarfi Norðmanna. Fyrir þrjátíu árum var komið á fót opinberu útflutningsráði sem sér um markaðssetningu á norskum laxi. Þeir hafa náð góðum árangri og erum við í kjölsoginu þeirra. Heildarframleiðslan á laxi í heiminum er af gríðarlegu magni og ef Íslendingar ná að framleiða 200.000 tonn á ári eins og allt stefnir í mun það ekki hreyfa nálina.
Lax er á morgunverðarhlaðborðum, á matseðlum veitingastaða í hádegismat og kvöldmat. Seldur reyktur, ferskur, grafinn og eldaður. Því er minni áhætta að framleiða svona vinsæla og fjölhæfa vöru en þær þar sem þú þarft að berjast um að komast inn á matseðilinn. Ég er alveg sannfærður um að þessi mikla uppbygging sem er í landeldi á Íslandi muni ganga upp, og fiskeldi muni verða ein af stóru stoðunum í hagkerfinu.“
Svigrúm komið til markaðsstarfs
„Þróunarfélag vegna Laxeyjar var stofnað árið 2019, en við byrjuðum uppbyggingu af fullum þunga árið 2022,“ segir Hallgrímur. „Seiðastöðin í Friðarhöfn var sett í gang árið 2023 og fyrsta eldið hérna í Viðlagafjöru var sett af stað árið 2024. Fyrstu átta tankarnir voru tilbúnir árið 2025 og næstu átta tankar verða klárir á þessu ári. Þegar þeir verða komnir í gang verðum við komnir með yfir 10.000 tonna framleiðslugetu. Þegar áfangi þrjú kemur verður framleiðslugetan komin vel yfir 15.000 tonn.
Laxey er búin að fjármagna þrjá áfanga af sex í uppbyggingunni og er annar áfanginn við það að klárast á meðan það er ríflega ár í að við klárum að byggja áfanga þrjú. Í áfanga tvö eru tveir af átta tönkum komnir með fisk og aðrir tveir verða klárir á allra næstu vikum. Í hina fjóra fer fiskur öðrum hvorum megin við jól.
Á síðustu árum hefur þetta verið gríðarlega mikil framkvæmd og hefur okkur tekist að byggja upp öflugan kjarna af starfsfólki í fiskeldinu og er það komið í nokkuð stöðugan fasa. Uppbygging sölu- og markaðsmála eru efst á baugi núna og erum við að reyna að ná fótfestu á nýjum mörkuðum sem greiða gott verð. Einn hluti af því er að við fengum í heimsókn konu frá Kína sem kallar sig Laxadrottninguna og selur fisk á TikTok.
Á undanförnum tveimur árum hefur verið þrýstingur á verðið á laxi út af gríðarlegri framleiðslu í Noregi. Það er samt með ólíkindum að þegar framleiðslan hefur vaxið um meira en fimmtán prósent á ári í tvö ár hefur verðið á laxi haldist. Neysla vörunnar virðist aukast jöfnum höndum þar sem gæðin eru mjög góð miðað við verðið. Laxey er ekki enn þá farin að skila hagnaði, en það er stutt í það þar sem okkar framleiðslukostnaður er góður í samanburði við iðnaðinn í heild og allt bendir til þess að verð á laxi muni hækka.“
Búa til köfnunarefni og fosfór
„Ég held að það gæti alveg gengið að vera með ein lög um allt fiskeldi, en það þarf að taka tillit til sérstöðu fiskeldis á landi samanborið við sjókvíaeldi,“ segir Hallgrímur. „Ég held að það væri líka þjálla fyrir greinarnar að fá að vaxa sitt í hvoru lagi. Þær eiga það sameiginlegt að snúast um eldi á laxi, en aðstæðurnar eru gjörólíkar og auðvitað ætti lagaumgjörðin að taka tillit til þess.
Lagaumgjörðin varðandi meðhöndlun og ráðstöfun á seyru í landeldi er mjög skammt á veg komin. Þegar við erum búnir að sýna fram á að við þurrkunina sé meðhöndlunin jafngild gerilsneyðingu finnst okkur ekki að það ætti að líta á hana sem hættulegan úrgang. Við erum búnir að óvirkja öll smitefni með því að hita efnið í 100 gráður í meira en klukkutíma og seyran ætti að teljast fullkomlega örugg sem áburður á hvers kyns ræktarlönd.
Við erum búnir að gera efnarannsóknir á þurrkuðu seyrunni sem gefa góða raun. Í sambandi við áburð er alltaf talað um gildi NPK, eða köfnunarefni, fosfór og kalíum. N og P eru í ágætu horfi í seyrunni, en það vantar eitthvað upp á K. Hefðbundinn húsdýraáburður er ríkur af kalíum, sem er það sem bændur eiga sjálfir. Ef við getum skaffað köfnunarefni og fosfór með tiltölulega litlum kostnaði geta bændur verið sjálfum sér nógir með kalíum.
Við erum núna á síðustu dögunum við að koma þurrkaranum upp, en undanfarna tvo mánuði höfum við verið að gera prófanir til þess að komast í gegnum ákveðna barnasjúkdóma. Kerfið virkar þannig að við fiskeldistankana eru síur. Þegar þær eru skolaðar hreinsast í burtu skítur og skolvatn með 0,5 prósent þurrefni. Í forskiljukerfinu náum við þurrefninu upp í átta prósent. Skilvindan, eða svokallaður „decanter“, nær þurrefninu upp í 30 prósent. Þaðan fer þetta í þurrkarann sem hitar efnið upp með svipaðri tækni og er í spanhellum og þaðan kemur seyra með 93 prósent þurrefni samkvæmt fyrstu mælingum. Seyran verður þá eins og þurrt moldarduft og er nánast lyktarlaus.
Við erum þegar í sambandi við bændur hérna hinum megin við álinn sem eru að bíða eftir að fá fyrstu pokana, en fyrst þurfum við að fá endanlegt svar frá MAST um hvort áburðurinn uppfylli staðla um gerilsneyðingu. Opinberi geirinn hefur ekki enn þá treyst sér til þess að svara svona einföldum spurningum, en ég trúi ekki öðru en að þetta leysist í vetur.
Áburðarframleiðslan er mikið framfaramál, ekki bara af því að það gerir okkur kleift að uppfylla okkar skyldur, heldur gagnast þetta bændum með því að minnka þörfina á innflutningi á tilbúnum áburði. Ég vona að það myndist góður farvegur fyrir seyruna hérna innanlands, en til vara erum við líka að skoða lífgasverksmiðjur í Evrópu sem gætu tekið við þessu. Ég tel að Laxey sé í fremstu röð í heiminum við að fullnýta allan úrgang sem kemur frá framleiðslunni.“
Framleiða sitt eigið ferskvatn
„Vestmannaeyjar eru einn af fáum stöðum á landinu þar sem ekki er neitt vatnsból með ferskvatni,“ segir Hallgrímur. „Eyjamenn hafa því lengi reitt sig á vatnslögn ofan af landi, en eins og hefur verið í fréttum hefur hún skemmst. Þegar við vorum að stofna fyrirtækið var skert aðgengi að ferskvatni fyrir seiðaframleiðsluna eitt af áhyggjuefnunum.
Við útbjuggum seiðastöðina á tvennan hátt til þess að bregðast við því. Annars vegar tókum við í notkun bestu tækni sem völ er á í vatnssparnaði til þess að við kæmumst af með eins lítið vatn og hægt er. Hitt er að við gerðum borholu við seiðastöðina og búum til ferskvatn úr borholusjó með svokölluðu „reverse osmosis“ eða RO (þrýstisíun yfir himnu). Við ákváðum að fara þessa leið af því að það er svo mikil fjárfesting í því að leggja vatnslögn ofan af landi.
Í vélinni verður meira en 20 bara þrýstingur sem ýtir saltvatni yfir himnurnar á meðan öll sölt og jónir verða eftir. Það sem úr þessu kemur er annars vegar nánast algjörlega hreint vatn og hins vegar saltpækill. Þú finnur engan mun á bragði vatnsins miðað við kranavatn, það er jafnvel bragðlausara ef eitthvað er. Þegar við uppgötvuðum þessa RO tækni í þróunarferlinu sáum við að við gætum verið með allt fyrirtækið á sama stað. Þannig getum við samþætt alla framleiðsluna, verið með skrifstofuna, seiðaeldið og áframeldið á sama stað,“ segir Hallgrímur.

