Kolefniseiningar úr endurheimt votlendis og nýskógrækt
Kolefnismarkaðir eru af tvennum toga; lögbundnir og valkvæðir. Á lögbundnum mörkuðum, svo sem í viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir (ETS), eru stunduð viðskipti með heimildir til losunar gróðurhúsalofttegunda. Á valkvæðum mörkuðum ganga hins vegar kolefniseiningar kaupum og sölum sem verða til vegna loftslagsaðgerðaverkefna, svo sem endurheimtar votlendis og skógræktar.
Land og skógur vinnur nú að því að fá Mýrkol aðferðafræðina alþjóðlega vottaða, en með því skapast forsendur fyrir því að gefa út vottaðar kolefniseiningar úr endurheimt votlendis til sölu á valkvæðum kolefnismörkuðum.
Mýrkol-aðferðafræði við endurheimt votlendis
Land og skógur hefur þróað Mýrkol aðferðafræðina fyrir endurheimt votlendis í samstarfi við International Carbon Registry (ICR) og KPMG. Hún tekur mið af íslenskum aðstæðum og byggir á verklagi og rannsóknum Lands og skógar. Búist er við að vottunarferlinu ljúki á árinu 2027.
Samkvæmt upplýsingum frá Landi og skógi verður með Mýrkols-vottuninni unnt að staðfesta árangur endurheimtar votlendis og gefa út kolefniseiningar fyrir þann samdrátt í losun sem verkefnið skilar.
Hver kolefniseining samsvarar einu tonni af CO2ígildum sem komið er í veg fyrir að losni. Einingarnar eru þá reiknaðar út frá mældri hækkun á grunnvatnshæð eftir endurheimt en bæði erlendar og innlendar rannsóknir hafa sýnt fram á marktækt samband á milli grunnvatnsstöðu og koltvísýringslosunar frá lífrænum jarðvegi. Hjá Landi og skógi er einmitt unnið að útreikningum á því sambandi úr eigin gagnasafni.
Takist endurheimtin vel – og verkefnið uppfylli settar kröfur – geta tekjur skapast af kolefniseiningum í allt að 40 ár fyrir landeiganda. Hversu miklar tekjurnar verða fer eftir framboði og eftirspurn eftir slíkum kolefniseiningum á frjálsum markaði.
Árangurinn staðfestur
Til að tryggja að árangurinn sé raunverulegur og mælanlegur þarf að skrá stöðu svæðisins fyrir endurheimt og fylgjast með því eftir framkvæmd. Einnig þarf að sýna fram á að samdráttur í losun hefði ekki orðið án verkefnisins, að verkefnið hafi ekki skaðleg áhrif á umhverfið og stangist ekki á við gildandi lög og reglur.
Faggild vottunarstofa metur hvort verkefnið uppfylli kröfurnar. Að því loknu eru kolefniseiningarnar vottaðar, gefnar út og skráðar hjá loftslagsskrá ICR, sem heldur utan um skráningu vottaðra eininga til að tryggja gagnsæi og koma í veg fyrir að sömu einingarnar séu nýttar oftar en einu sinni.
Land og skógur þróar aðferðafræðina og óháðar vottunarstofur annast vottun verkefna. Viðskipti með þær fara fram á frjálsum kolefnismarkaði.
Skógarkolefni fyrir nýskógrækt
Land og skógur er með sambærilega aðferðafræði fyrir nýskógrækt sem kallast Skógarkolefni. Þar eru kolefniseiningar búnar til úr nýskógræktarverkefnum sem uppfylla kröfur. Skógarkolefni hefur þó ekki farið í gegnum jafn ítarlegt vottunarferli hjá óháðum þriðja aðila og nú stendur yfir vegna Mýrkols.
Skógarkolefni stuðlar að aukinni bindingu koltvísýrings í skógi og Mýrkol stuðlar að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda með endurheimt votlendis.
Skógarkolefni myndar ramma fyrir undirbúning, framkvæmdir, vöktun og vottun nýskógræktarverkefna. Kolefnisbindingaráætlun verkefnis er staðfest af vottunaraðila og síðan endurskoðuð reglulega. Hvati verkefnanna er framleiðsla og sala kolefniseininga, sem drifin er áfram af þörf atvinnulífsins og samfélagsins fyrir kolefnisjöfnun á Í tilefni af bleikum október erum við með til sölu þrjár bleikar vörur frá DeLaval: uppþvottabursta, handbursta og kúabursta en allur ágóði af sölu þeirra rennur til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis. valkvæðum kolefnismarkaði.
Kolefniseiningarnar sem myndast eru sömuleiðis skráðar í loftslagsskrá ICR og eru nú á þriðja tug Skógarkolefnisverkefna á Íslandi skráð hjá ICR – og svipaður fjöldi verkefna er í undirbúningi. Verkefnin ná til þúsunda hektara lands.
Mýrkol tilbúið á árinu 2027
Gangi vonir Lands og skógar eftir verður Mýrkol aðferðafræðin tilbúin á árinu 2027.
Til að fá vottun á verkefni, hvort sem er í skógrækt eða við endurheimt votlendis, verða landeigendur að undirgangast strangar kröfur um skráningu, utanumhald, eftirfylgni og aðkomu sérfræðinga. Því verklagi fylgir ákveðinn viðbótarkostnaður sem leggst ofan á kostnað við sjálfa vottunina.
Við endurheimt votlendis þarf fyrst að kortleggja svæðið sem á að endurheimta votlendi á, með tilliti til vistgerða eins og þær eru skilgreindar af Náttúrufræðistofnun.
Síritandi grunnvatnshæðarmælum er komið fyrir á svæðinu í samræmi við vistgerðakortlagninguna. Vatnshæðargögnum er safnað yfir að minnsta kosti tvö vaxtartímabil áður en endurheimtin á sér stað og áfram er fylgst með vatnshæð allt verkefnatímabilið. Mismunurinn á meðalvatnshæð fyrir endurheimt og hvers árs eftir endurheimt er notaður til þess að reikna út kolefniseiningar. Til að halda utan um vottunarferlið getur verið æskilegt að hafa verkefnastjóra eða umsjónaraðila. Faggild vottunarstofa metur síðan hvort verkefnið uppfylli kröfurnar samkvæmt Mýrkol-aðferðafræðinni og eftir það er hægt að gefa út kolefniseiningar.
Hættan á grænþvotti
Valkvæðum kolefnismörkuðum fylgir hætta á grænþvotti þegar aðilar nýta keyptar kolefniseiningar til að gefa villandi mynd af árangri í að draga úr loftslagsáhrifum starfsemi sinnar. Það að kaupa kolefniseiningar til að lýsa yfir kolefnishlutleysi, án þess að draga úr eigin losun, getur verið dæmi um slíkt. Talið er mikilvægt að fyrirtæki, stofnanir og aðrir aðilar leitist við að draga eins mikið úr sinni losun og hægt er, áður en farið er í kaup á kolefniseiningum á valkvæðum kolefnismarkaði.
Árangurinn ræðst meðal annars af því hvort kaupendur eininganna draga jafnframt úr eigin losun eða nýta kaupin til að fresta slíkum aðgerðum.
Viðskipti með kolefniseiningar leiða því ekki sjálfkrafa til þess loftslagsávinnings sem þeim er ætlað að standa fyrir.
Mikilvægt er að um fullgildar „gæðakolefniseiningar“ sé að ræða til að raunverulegur ávinningur náist, en það eru einingar sem standa fyrir raunverulegum, mælanlegum loftslagsávinningi sem hefði ekki orðið til án hvata frá sölu eininganna.
Gera verður greinarmun á annars vegar kolefniseiningum í bið og hins vegar fullgildum kolefniseiningum þar sem binding eða samdráttur hefur orðið. Í Skógarkolefni er leyfilegt að selja allt að helming áætlaðra eininga sem einingar í bið en þær má ekki nýta til kolefnisjöfnunar fyrr en þær hafa raungerst og verið vottaðar af til þess bærum vottunaraðila. Í Mýrkol aðferðarfræðinni verða einungis til fullgildar kolefniseiningar.
Sala gæðakolefniseininga á valkvæðum kolefnismörkuðum getur fjármagnað loftslagsaðgerðir sem annars hefðu ekki orðið að veruleika, flýtt fyrir samdrætti í losun og stutt við loftslagsmarkmið ríkja.
Bæði Skógarkolefni og Mýrkol eiga að stuðla að sjálfbærri landnýtingu og færa Ísland nær lögfestum markmiðum í loftslagsmálum.
Ekki liggur enn fyrir hversu margar kolefniseiningar á hektara á ári geta orðið til við endurheimt votlendis á Íslandi. Fjöldinn mun ráðast meðal annars af eðli verkefna, árangri endurheimtar og gæðum mæligagna. Nánari upplýsingar um það munu liggja fyrir þegar vottunarferlinu er lokið og tilraunaverkefni komin vel á veg.
Ekki liggur heldur fyrir hvert mögulegt verð gæti orðið fyrir íslensku kolefniseiningarnar. Samkvæmt yfirliti Peatland Programme um valkvæðan kolefnismarkað í Bretlandi var meðalverð kolefniseininga úr endurheimt votlendis rúm 39 pund á síðasta ári (um 6.400 krónur) samanborið við rúm 25 pund árið áður. Meðalverð eininga úr nýskógrækt var rúm 28 pund (um 4.600 krónur) árið 2025, en var í tæpum 27 pundum fyrir 2024.
Þessar tölur miðast nær eingöngu við einingar sem byggjast á áætluðum framtíðarávinningi.
