Fyrsti innflutningur á frjóvguðum laxahrognum í áratugi
Nokkur fiskeldisfyrirtæki hafa óskað eftir leyfi til innflutnings á frjóvguðum laxahrognum frá kynbótastöðinni AquaGen Profunda í Noregi. Laxey í Vestmannaeyjum reið á vaðið og hafa nokkur laxeldisfyrirtæki fylgt í kjölfarið. Þeir sem gagnrýna þennan innflutning segja hann fela í sér áhættu á innflutningi sjúkdóma í eldislaxi.
Fyrirtækið Benchmark Genetics, sem áður hét Stofnfiskur, framleiðir öll hrogn fyrir eldislax á Íslandi og er mjög stór aðili á heimsvísu. Ef laxeldisfyrirtæki nýta sér heimild til innflutnings á hrognum frá AquaGen Profunda verður það í fyrsta skipti sem frjóvguð laxahrogn verða flutt til landsins frá árinu 1985.
Helstu rökin fyrir því að laxeldisfyrirtæki hafa sóst eftir viðskiptum við AquaGen Profunda er möguleikinn á því að vera með minnst tvo birgja ef eitthvað skyldi koma í veg fyrir afhendingu frá öðrum. Þeir sem gagnrýna þennan innflutning segja hann fela í sér áhættu á innflutningi sjúkdóma í eldislaxi, þó svo að kynbótastöðin AquaGen Profunda hafi verið vottuð sjúkdómafrí samkvæmt ströngum stöðlum. Íslenskt stofnfiskeldi er laust við smitsjúkdóma sem greinast reglulega í Noregi. AquaGen og Benchmark Genetics rækta bæði Atlantshafslax sem á uppruna sinn í norskum ám.
Öryggismál að hafa leyfið
„Forsagan er sú að þegar landeldis- fyrirtækið Laxey í Vestmannaeyjum var stofnað og undirbúningur fjármögnunar hófst, bæði í gegnum hlutafé og lánsfjármögnun, komu snemma fram athugasemdir að það væri eingöngu einn birgir af frjóvguðum laxahrognum,“ segir Lárus Ásgeirsson, stjórnarformaður Laxeyjar. „Við höfum haft aðgengi að hrognum frá Benchmark Genetics, sem er góður framleiðandi á hrognum og með öflugt kynbótastarf. Síðan hófust eldsumbrot í nágrenni við hrognaræktunina á Suðurnesjunum og áhyggjur manna urðu stöðugt meiri og meiri út af stöðu mála.
Við erum fyrst og fremst að sækja um til þess að vera með í höndunum leyfi til innflutnings á hrognum, sem er öryggismál fyrir okkur. Stór verkefni eins og Laxey eru skoðuð ofan í kjölinn og í áreiðanleikakönnun hjá okkur hefur verið bent á að það er nauðsynlegt að vera með aðgengi að að minnsta kosti tveimur birgjum af laxahrognum.“
Hrogn gætu komið á næsta ári
„Við settum okkur í samband við AquaGen í Noregi og þeir eru með eina stöð sem uppfyllir skilyrði er varðar innflutning á hrognum til Íslands, en hún þarf meðal annars að vera sjúkdómafrí í tiltekinn árafjölda,“ segir Lárus. „Þegar það lá fyrir sóttum við um heimild til innflutnings á hrognum þaðan og okkur líður vel með að geta fengið hrogn frá tveimur birgjum.“
Aðspurður svarar Lárus að fræðilega séð væri hægt að fá send hrogn frá AquaGen í fyrsta lagi á næsta ári, en viðskipti af þessu tagi krefjast ákveðins fyrirvara. „Við erum komnir með þennan möguleika núna, en það á eftir að koma í ljós hvort og hvernig við nýtum okkur hann. Núna erum við með samning við Benchmark og þeir hafa reynst okkur vel og við munum örugglega vera áfram í viðskiptasambandi við þá.“
Seiðastöðin vel einangruð
„Við beitum ýtrustu sjúkdómavörnum í seiðastöðinni okkar í Vestmannaeyjum, en hún endurnýtir allt vatn,“ segir Lárus. „Eins er hún brotin upp í sjúkdómsvarnarhólf, þannig að ef eitthvað kemur upp á getum við gripið inn í og erum vel varðir ef svo ólíklega vill til að einhver óværa kæmi upp. Á milli hólfanna er enginn samgangur, vatnið aðgreint og það kemst enginn inn í stöðina nema starfsfólk sem hefur fengið þjálfun í réttri umgengni.
Ég held að það sé ólíklegt að með þessum innflutningi komi sjúkdómar frá Noregi, og í versta falli ef eitthvað kemur upp á erum við með alla aðstöðu til þess að taka á því. AquaGen Profunda kynbótastöðin er ein af nýjustu og fullkomnustu kynbótastöðvunum í Noregi. Hún er vottuð sjúkdómafrí og við munum að sjálfsögðu ekki flytja inn hrogn ef einhver grunur er um annað.“
Ekki stjórnað af eignartengslum
„Móðurfélag AquaGen hefur fjárfest í Laxey, en þeir eiga tíu prósent hlut í gegnum þýska félagið EW Group. Aðrir hluthafar eru 90 prósent og við erum ekki að hygla einum hluthafa á kostnað annarra,“ segir Lárus. Hann bendir á að engin skilyrði hafi fylgt hlutafjárkaupum EW Group um að Laxey myndi kaupa hrogn af AquaGen. „Við sjáum viðskiptin við þá fyrst og fremst sem rekstraröryggismál og þar sem þeir voru að fá vottun um sjúkdómsfría stöð lá það fyrir að leita þangað. Hluthafahópurinn er fjölbreyttur og ég tel það mikinn styrk að fyrirtæki sem er hluti af virðiskeðjunni fjárfesti í Laxey.
Núna er gríðarleg uppbygging í laxeldi á Íslandi og allur iðnaðurinn fær hrogn frá einu kynbótafyrirtæki sem er staðsett á miklu umbrotasvæði. Því fylgir meiri áhætta fyrir iðnaðinn en möguleg orðsporsáhætta á íslenskan lax út af fræðilegum möguleika á sjúkdómi úr innfluttum hrognum sem við erum ekki einu sinni byrjuð að nota.“
Fleiri fyrirtæki sækja um leyfi
Seiðastöðin vel einangruð „Ég er formaður búgreinadeildar landeldisfyrirtækja hjá Bænda- samtökum Íslands og í vetur var samþykkt ályktun í deildinni þar sem hvatt var til þess að opnað yrði á innflutning á hrognum af sömu sjónarmiðum og Laxey hefur verið að halda fram,“ segir Lárus. „Líklegast munu fleiri fyrirtæki sækja um þetta leyfi, en svo verður að koma í ljós hvernig þau nýta það.
Íslendingar flytja meira en 99,9 prósent af laxinum til útlanda og við þurfum að vera samkeppnisfærir við það besta sem er til í heiminum. Við erum að keppa við Noreg sem er með mun fleiri áratugi í reynslu umfram okkur. Norðmenn framleiða 1,5 milljón tonna af laxi í sjó en undir tíu þúsund tonnum af laxi á landi. Íslendingar munu í ár sennilega stíga upp fyrir tíu þúsund tonna framleiðslu á laxi á landi. Miðað við þau verkefni sem eru í uppbyggingu núna gæti heildarframleiðsla á ári í landeldi á Íslandi farið upp í 150 til 170 þúsund tonn og Ísland verður þá stærsta framleiðsluland á laxi á landi í heiminum. Framleiðslan á laxi í sjókvíaeldi nálgast um 60 þúsund tonn í ár,“ segir Lárus.
Metur smitvarnir meira en samkeppni
Gísli Jónsson, dýralæknir fisksjúkdóma, starfaði í faginu í 40 ár bæði í Noregi og á Íslandi. Hann hóf störf sem sérgreinalæknir fisksjúkdóma á Íslandi á tíunda áratugnum, fyrst hjá embætti yfirdýralæknis vorið 1991 sem síðar sameinaðist undir öðrum hatti MAST árið 2006. Þar starfaði Gísli þangað til hann fór á eftirlaun undir lok ársins 2025. „Ég var sjálfur við stýrið 2011 þegar AquaGen í Noregi sótti áður um innflutningsheimild,“ segir Gísli. „Þá var mjög mikil umfjöllun og áhættugreining, meðal annars innan fisksjúkdómanefndar og fleiri komu þar að. Á endanum var umsókninni hafnað vorið 2012 út af áhættu í sambandi við smitsjúkdóma. AquaGen hótaði málsókn en þeir guggnuðu á því þar sem við vorum með mjög vel rökstudda höfnun.
Svo líður og bíður og þeir koma aftur núna og hefur heimildin verið veitt. Auðvitað er ekkert hollt út frá samkeppnissjónarmiðum að það sé bara eitt kynbótafyrirtæki sem er með allan markaðinn hérna heima. Ég get hins vegar ekki annað en lyft mér upp fyrir það og verð að segja beint út að mér líst ekkert á þennan innflutning. Við höfum staðið vörð um þessa góðu og einstöku sjúkdómastöðu sem er í íslensku kynbótaeldi á laxi. Það er engin tilviljun að síðan 1996 hefur Stofnfiskur, nú Benchmark Genetics, getað flutt hrogn til næstum 40 landa í öllum heimsálfum,“ segir Gísli.
Lítið þarf til að trufla útflutning
„Í Noregi finnast veirusjúkdómar í laxi sem geta verið ansi duldir. Má í því sambandi nefna veiru sem veldur svokölluðu hjartarofi, Cardiomyopathy Syndrome (CMS), en aðrir koma einnig við sögu. Segja má að CMS veiran sé mjög útbreidd bæði í áframeldi og í kynbótastöðvunum í Noregi. Þessa veiru höfum við aldrei fundið á Íslandi,“ segir Gísli. „Ef við fáum þessar veirur hingað inn verður það ekki aftur tekið. Orðspor hreinleikans sem Benchmark og íslenskt fiskeldi almennt býr við í dag myndi þá eyðileggjast og þar með yrði í uppnámi útflutningur á hrognum til fjölda landa sem leita hingað eftir smitfríu erfðaefni.
Þó svo að Benchmark sé með mjög lokað og öruggt kerfi, þá vitum við að það má ekkert út af bera í viðskiptum við mörg þessara landa. Þegar upp kom alvarlegur veirusjúkdómur í fiskeldi á Austfjörðum árið 2021, sem kallast blóðþorri, mörg hundruð kílómetrum frá Benchmark, var samdægurs lokað á allan útflutning til mikilvægra viðskiptalanda sem vildu athuga fyrst hvort um einhver tengsl væri að ræða. Í Evrópu var opnað á útflutning eftir nokkra daga, en sums staðar tók það einhverja mánuði. Útflutningur til Síle hefur ekki náð sér aftur á strik síðan og það eru liðin fimm ár.
Árið 2015 kom upp veirusjúkdómur í hrognkelsum í tilraunastöð Hafró í Grindavík, sem var í algjörlega lokuðu kerfi uppi á landi. Þetta var veira sem er sérhæfð fyrir hrognkelsi og kemur laxi ekkert við, en samt voru sum lönd sem lokuðu tímabundið á útflutning á laxahrognum frá Íslandi.
Fulltrúar þessara fiskeldisfyrirtækja eru reglulega hérlendis til þess að taka út aðstæður. Þeir spyrja alltaf að því hvort eitthvað hafi verið flutt inn af laxahrognum eða laxaseiðum, sem við getum alltaf svarað neitandi. Þá segjast þessir fulltrúar ótrauðir geta mælt áfram með Íslandi sem útflutningslandi. Bara það að flytja hrogn frá Noregi setur mikinn skjálfta í allt kerfið,“ segir Gísli.
Lokað mengi á Íslandi
Laxastofninn sem ræktaður er í Benchmark Genetics er að uppruna til norskur lax sem er búið að kynbæta. Gísli bendir á að síðast hafi laxahrogn verið flutt inn til landsins á árunum 1984 og 1985. „Þá var flutt inn talsvert magn úr vestanverðum Noregi og þessu var haldið í einangrun í eitt og hálft ár í Hafnarfirði og í Kelduhverfi. Fiskurinn fékk ekkert að fara fyrr en búið var að rannsaka hann í bak og fyrir og vorum við svo heppin að þessu fylgdu engir sjúkdómar. Síðan hefur þetta verið algjörlega lokað mengi þangað til 2016 þegar Matvælastofnun heimilaði innflutning á djúpfrystum sviljum [sæði karlkyns fisks] frá Salmo Breed sem er systurfyrirtæki Benchmark í Noregi. Þetta nýja blóð var fengið inn til þess að koma í veg fyrir mögulega úrkynjun til framtíðar.
Djúpfrystu svilin voru flutt inn þrjú ár í röð og hver árgangur seiða undan þeim var í einangrun í rúmlega ár áður en við hjá Matvælastofnun heimiluðum að þau yrðu færð í kynbótastöð Benchmark. Í millitíðinni voru tekin heil ógrynni af sýnum til þess að ganga úr skugga um að allt væri í lagi. Innflutningur á djúpfrystum sviljum er talin einhver sú öruggasta sem þú getur farið í sambandi við sjúkdómavarnir. Af sömu ástæðu er til dæmis heimilt að flytja inn djúpfryst sæði í svín og nautgripi á Íslandi,“ segir Gísli.
Sjúkdómastaðan á Íslandi einstök
„Um það leyti sem ný kynbótastöð AquaGen Profunda var formlega opnuð í september 2023 barst tilkynning til MAST um að vilji væri til þess að endurnýja umsókn um innflutningsleyfi til Íslands,“ segir Gísli. Á því hafi hins vegar hvílt einn skuggi, en árið 2022 fannst blóðþorri í klakfiski sem hafði skömmu áður verið fluttur úr Profunda yfir í aðra kynbótastöð AquaGen. Þetta leiddi af sér dreifingarbann af norskum yfirvöldum og EFTA á meðan sýnatökur fóru fram reglulega. Það var ekki fyrr en í september 2025 sem kynbótastöðin fékk formlega heimild frá þar til bærum yfirvöldum til útflutnings frá Noregi,“ segir Gísli. Blóðþorri hefur ekki fundist í stöðinni síðan.
„Formleg umsókn AquaGen um innflutningsheimild barst MAST í lok apríl 2024, en úrvinnslan tók langan tíma í kerfinu, ekki síst vegna þess að Profunda kynbótastöð AquaGen hafði ekki enn hlotið formlega viðurkenningu norskra yfirvalda um heimild til útflutnings hrogna. AquaGen Profunda á að vera sú öruggasta í Noregi, en er ekki öruggari en svo að blóðþorri greindist. Ég hef ekki séð neina útskýringu á því hvernig sjúkdómurinn barst inn í þessa stöð, en hún er ekki eins örugg og stöðvar Benchmark þar sem sjórinn kemur úr 250 til 300 metra djúpum borholum uppi á landi.
AquaGen Profunda kynbótastöðin er við sjávarkamb og er sjórinn síaður í gegnum sand og malarkamb og því erfitt að koma alveg í veg fyrir tengsl við villta náttúru. Þar sem slík tengsl eru er voðinn vís, því að allar þessar örverur og smitefnin eru í umhverfinu og gera síðan vart við sig þegar þær komast í eldi þar sem þéttleikinn býður hættunni heim,“ segir Gísli.
Hjartarof veldur víða tjóni
„Veiran sem veldur hjartarofi er landlæg í nánast öllum kynbótastöðvum í Noregi sem ég hef fengið upplýsingar um,“ segir Gísli. „Þegar tekin eru sýni úr hrygnum eða hængum má reikna með í einhverjum tilfellum að hluti foreldrafisksins sé jákvæður. Ekki hefur verið sýnt fram á með óyggjandi hætti að frjóvguð hrogn undan slíkum foreldrum séu 100 prósent laus við veiruna. Þetta er sjúkdómur sem gerir svo yfirleitt ekki vart við sig fyrr en fiskurinn er langleiðina að nálgast sláturstærð. Sjúkdómurinn leggst á blóðæðakerfið og þá sérstaklega á hjartað. Það endar með því að hjartavöðvinn rýrnar og verður svo lélegur að hann hreinlega springur og fiskurinn steindrepst við minnsta stress, eins og við fóðrun. Tjónið sem hlýst af þessu er gríðarlegt, bæði í Noregi, Færeyjum, Skotlandi og Kanada, og hefur verið að vinda upp á sig á liðnum árum. Við höfum verið laus við þennan sjúkdóm á Íslandi.
Smitefni fyrir fisksjúkdóma eru úti í villtu umhverfi, en umhverfisaðstæður eru þannig að langfæstar örverur ná sér á strik í villtum fiski. Við getum fundið smitefni með því að taka sýni, en villtur fiskur sýnir ekki sjúkdómseinkenni. Það er því ekki reyndin að það sé mikil hætta að smitsjúkdómar berist úr fiskeldi í villtan fisk. Með gífurlega markvissri skimun á stofnfiskeldinu í áratugi höfum við gríðarlega sterk gögn í höndunum um að þessir sjúkdómar finnast ekki á Íslandi. Ef þessir sjúkdómar berast til landsins geta þeir valdið óafturkræfu tjóni á orðspori íslenskrar stofnfiskræktunar,“ segir Gísli.
Benchmark fagnar samkeppni
„Við fögnum samkeppni og teljum hana mikilvæga fyrir framþróun greinarinnar. Samkeppni má hins vegar ekki verða til þess að dregið sé úr þeim kröfum sem gerðar eru til smitvarna og líföryggis. Þar þarf Ísland að halda áfram að vera leiðandi,“ segir Benedikt Hálfdanarson, framkvæmdastjóri hjá Benchmark Genetics Iceland, í skriflegri yfirlýsingu vegna málsins.
Þar kemur fram að fyrirtækið telji sérstaklega mikilvægt að við innflutning hrogna sé framkvæmd víðtæk og reglubundin skimun fyrir veirum og sjúkdómsvaldandi smitefnum sem ekki hafa greinst í íslenskum eldislaxi. Þar má nefna hjartarof, eða Cardiomyopathy Syndrome (CMS), sem veldur hjartavöðvasjúkdómi í laxi; brisdrep eða Infectious Pancreatic Necrosis (IPN), sem getur haft veruleg áhrif á afkomu og velferð fisk; og brisveiki eða Pancreas Disease (PD), sem er einn alvarlegasti veirusjúkdómur laxeldis í mörgum framleiðslulöndum.
Benchmark Genetics rekur þrjár landeldisstöðvar á Reykjanesskaga. Allar stöðvarnar hafa haft WOAHhólfaviðurkenningu (compartment status) frá árinu 2016, með samþykki Matvælastofnunar. Þetta er hæsti alþjóðlega viðurkenndi staðall fyrir smitvarnir í fiskeldi og gerir fyrirtækinu kleift að flytja út hrogn af atlantshafslaxi allt árið um kring til hátt í 40 landa. Benchmark Genetics er með höfuðstöðvar í Bergen í Noregi og er í einkaeigu Novo Holdings, eins fremsta alþjóðlega fjárfestis á sviði lífvísinda.
Kynbótafiskurinn áður í opnu eldi í Noregi
Í skriflegu svari frá MAST varðandi ástæður þess að fyrri umsókn AquaGen til innflutnings var synjað segir að það hafi fyrst og fremst verið vegna sjúkdómaáhættu, en klakfiskurinn sem hrognin áttu að koma frá var alinn í opnum sjókvíum í 18-24 mánuði og talin var hætta á að á þeim tíma kæmist fiskurinn í snertingu við sjúkdómavalda í umhverfinu. Heimildin sem sótt var um núna miðast við nýja kynbótastöð þar sem allur lífsferill fisksins er á landi.
Fyrir hverja sendingu á hrognum frá AquaGen Profunda þurfa að liggja fyrir fullnægjandi heilbrigðisvottorð og önnur lögboðin fylgigögn. MAST gerir ekki kröfu um sýnatöku úr hrognunum fyrir innflutning. „Eftir komu getur stofnunin hins vegar framkvæmt eða krafist móttökueftirlits, sýnatöku, markvissrar skimunar fyrir tilteknum sjúkdómsvöldum og, eftir atvikum, tímabundinnar sóttkvíar þar til niðurstöður liggja fyrir,“ segir í svari MAST. Umfang eftirlitsins yrði metið hverju sinni með hliðsjón af heilbrigðisvottorðum og uppruna sendingarinnar, sjúkdómastöðu AquaGen Profunda og Noregs, nýjum upplýsingum um smithættu og niðurstöðum úr mögulegri forskimun innflytjanda. MAST getur óskað eftir frekari gögnum eða stöðvað innflutning ef nýjar upplýsingar koma fram um sjúkdómastöðu eða smithættu.
Veiðifélög vara við flóknari rekjanleika
Jóhann Helgi Stefánsson, framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga, segir sambandið vera á móti innflutningi á frjóum laxahrognum til Íslands frá Noregi rétt eins og þau setja sig upp á móti opnu sjókvíaeldi með frjóum fiski. „Þarna er verið að koma með nýtt erfðaefni inn í íslenska laxeldið sem þýðir flóknari rekjanleika þegar eldisfiskar sleppa. Við vitum að það hefur verið einhver losarabragur á því að stofnanir og eldisfyrirtæki haldi utan um hvaða fiskar eru í hverri kví, en þegar strokufiskar eru fangaðir á að vera hægt að rekja uppruna þeirra nákvæmlega út frá erfðaefni,“ segir Jóhann.
„Eins er alltaf hætta á því þegar lifandi verur eru fluttar milli landa að með þeim fylgi einhverjar óværur,“ heldur Jóhann áfram. „Blessunarlega er Ísland nokkuð laust við sjúkdóma í dýrum, en með öllu svona erum við að skapa óþarfa áhættu. Í fiskeldi í Noregi og á Austfjörðum hafa komið upp alvarleg vandamál þegar kemur að sjúkdómum og þó svo að þetta tiltekna stofnfiskeldi sé vottað sjúkdómalaust, þá er hættan til staðar þó svo að hún sé lítil. Ég spyr því af hverju þessi fyrirtæki vilji taka aukna áhættu,“ segir Jóhann.
