Heimir Árni datt í lukkupottinn í sumarbridds.
Heimir Árni datt í lukkupottinn í sumarbridds.
Líf og starf 23. september 2026

Græðgin er óseðjandi púki

Höfundur: Björn Þorláksson

Veðrið var gott og sumarið enn ekki búið. Sviðið er sumarbridds í Síðumúlanum. Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands, sest við hlið ungs briddsspilara, Heimis Árna Erlendssonar, sem nýtur góðs af því að vera í þjálfun hjá stórstjörnunni Hemma Friðriks. Á móti Matthíasi sest svo lítillræðið sem skrifar þennan pistil.

Við Matti erum ákveðnir í að skora. Höfðum rætt að reyna að skora alveg ógurlega. Matthías vekur á tígli. Ungi briddsarinn honum á vinstri hönd doblar í stað þess að melda einn spaða eða reyna að koma tveggja lita hendi til skila. Það er óvænt en stórkostleg ákvörðun. Ég passa. Hermann stekkur í 3 grönd.

Matthías doblar og loft verður æði sprennuþrungið. Matthías telur ólíklegt að sagnhafi skrapi saman níu slögum með tígli út og það er alveg rétt hjá honum. Fátt sem bendir til að AV eigi flóttaleið.

En unga leynivopnið, hann Heimir Árni, hefur ekki sagt sitt síðasta orð. Nú er rétti tíminn til að kynna spaðann til sögunnar. Hann meldar því spaða. Lítilræðið í suður man að ákveðið hafði verið að skora og græðgisdoblar nú með ekkert. Hermann hefur séð það svartara og hendir bláa miðanum á borðið með leikrænum tilþrifum. 4 spaðar redoblaðir, takk fyrir.

Auðvitað kemur út tígull. En sagnhafi er sjónarmun á undan vörninni að særa fram tvo efstu í trompi og missa ekki vald á spilinu. Fimm slagir á lauf koma sér vel! Ófrýnilegasta tala kvöldsins er skrifuð í dálk AV – gulltoppur í alheiminum.

Græðgin er óseðjandi púki, hugsa ég, og læt lítið fyrir mér fara um stund.

Uns ég átta mig á því að besta leiðin til að komast yfir áfall er að skrifa sig frá því þangað til brosviprurnar láta aftur á sér kræla. Enda er bridds skemmtilegasta spil í heimi!

Umsjón: Björn Þorláksson

bjornthorlaksson[hjá]gmail.com

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 8. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin má eiga von á, nú með nýju tungli, að reynt verði á samskipta- og/eða sams...

Ungir vinna Haustmótið
Líf og starf 7. október 2026

Ungir vinna Haustmótið

Haustmót Taflfélags Reykjavíkur kláraðist í síðustu viku með öruggum sigri Jósef...

Ásaspurning – en hvað er tromp?
Líf og starf 7. október 2026

Ásaspurning – en hvað er tromp?

Þegar ég lærði bridds fyrir hálfri öld voru ásarnir í spilinu bara fjórir. Og of...

Vönduð óþekkt
Líf og starf 6. október 2026

Vönduð óþekkt

Haustið er mætt og það þýðir að nú er kominn tími til að stokka aðeins upp í fat...

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.
Líf og starf 6. október 2026

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.

Hér er lausnin á vísnagátunni sem birtisti í 17. tölublaði Bændablaðsins.

Hugrekki persónulegrar tjáningar
Líf og starf 6. október 2026

Hugrekki persónulegrar tjáningar

Safnasafnið, vel kynnt höfuðsafn íslenskrar alþýðulistar, hefur um áraraðir unni...

Horfinn er séra Oddur
Líf og starf 6. október 2026

Horfinn er séra Oddur

Sveinn Pálsson, náttúrufræðingur og læknir, hélt dagbók öll sín fullorðinsár og ...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 24. september 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin blómstrar í vinnu eða skóla og finnur fyrir mikilli hvatningu til að klára...

Stjörnuspá vikunnar
8. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Margrét Þóra
7. október 2026

Margrét Þóra

Ungir vinna Haustmótið
7. október 2026

Ungir vinna Haustmótið

Vönduð óþekkt
6. október 2026

Vönduð óþekkt

Skjóllundir – fyrir hvað?
7. október 2026

Skjóllundir – fyrir hvað?

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f