Spurningar um vernd og vind
Fyrsta vindorkuver Íslands, Vaðölduver, var gangsett 15. september síðastliðinn. Í sumar var frumvarp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra sem snéri að breytingum á lögum um vindorku auk þess samþykkt. Umræðan um vindorku hefur mikið snúist um í hvað orkan á að fara og hvaða áhrif vindorkuver hafa á nærsamfélög sín og náttúru.
Frumvarp Jóhanns Páls Jóhannssonar umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, sem var samþykkt á þinginu í júní um breytingar á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun snýr að takmörkun vindorkunýtingar og styrkingu verndarflokks rammaáætlunar. Fjórtán vindmyllur hafa risið í Vaðölduveri og verða fjórtán reistar til viðbótar á næsta ári. Vindorkuverið er staðsett austan Þjórsár, sunnan Sultartangastíflu og á að vinna samhliða vatnsaflsvirkjunum á svæðinu. Verið var gangsett við hátíðlega athöfn í blíðviðri og logni.
Hvar mega vindmyllur vera?
Með lögunum verða vindorkuver útilokuð á friðlýstum svæðum og svæðum sem njóta sérstakrar verndar, líkt og á Ramsarsvæðum, en það eru svæði sem eru skilgreind sem mikilvæg votlendissvæði alþjóðlega. Á Íslandi eru sex friðlýst svæði skráð sem Ramsarsvæði en það eru Andakíll, Grunnafjörður, Guðlaugstungur, Mývatn og Laxá, Snæfells- og Eyjabakkasvæðið og Þjórsárver.
Einnig er bannað að reisa vindorkuver á svæðum á heimsminjaskrá UNESCO og þeim sem eru í B-hluta náttúruminjaskrár, þeirri skrá yfir náttúruminjar sem Alþingi hefur sett í forgang um friðlýsingu eða friðun næstu fimm árin.
Vindorka felld undir rammaáætlun
Með nýju löggjöfinni verða allar vindmyllur yfir 30 metra hæð eða yfir 10 MW uppsettu afli að fara í gegnum rammaáætlun. Fallið var frá fyrri hugmyndum um flýtimeðferð vindorkugarða fram hjá rammaáætlun. Í lögunum er einnig gerð grundvallarbreyting á verndarflokki rammaáætlunar. Svæði sem eru talin verðmæt verða því friðlýst á grundvelli almennra friðlýsingarflokka, ekki einungis gegn orkuvinnslu. Þeir kostir sem Alþingi samþykkir í verndarflokk verða því sendir Náttúruverndarstofnun. Þá verður afstaða sveitarfélaga grundvallarbreyta við mat á vindorkukostum sem fara í gegnum rammaáætlun.
Skiptar skoðanir
Frumvarpið hlaut gagnrýni er það var lagt fram, bæði fyrir það að veita ekki nægilegt aðhald og að það þrengdi reglur um of. Samtök iðnaðarins og Samtök atvinnulífsins voru gagnrýnin á að stór svæði yrðu fyrir fram útilokuð frá vindorkunýtingu og að fella vindorku undir rammaáætlun þyngdi regluálag og myndi auka tafir. Alþýðusamband Íslands var á öðru máli en í umsögn ASÍ var kallað eftir því að öll vindorkuverkefni ættu að fara í gegnum rammaáætlun, óháð stærð og afli.
Samtök ferðaþjónustunnar, Náttúrufræðistofnun og Landvernd voru meðal þeirra sem lögðu áherslu á betri skilgreiningar á röskuðum svæðum og bentu á áhrif sjónmengunar í náttúrunni í umsögnum sínum um frumvarpið. Öll kölluðu þau eftir skýrari umgjörð verkefna en Landvernd og þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa einnig varpað fram áhyggjum um að frumvarpið skapi verkefnamiðaða nálgun, að allir vindorkukostir, óháð því hversu raunhæfir þeir reynast, séu teknir til umfjöllunar.
Á vef Stjórnarráðsins kemur fram að fram undan séu reglugerðarbreytingar til þess að skýra kröfur um gagnaskil vegna vindorkukosta og með því tryggja skilvirkari meðferð í rammaáætlunarkerfinu.
Skoðanir sveitarfélaga hafa einnig verið skiptar. Nýlega fjallaði sveitarstjórn Borgarbyggðar um þau áform að byggja upp vindorkuver við Alviðru og lýsti efasemdum sínum. Sveitarstjórnin segir óvissu um hvert raunverulegt framlag vindorkuvers við Alviðru til orkuöryggis landsins yrði. Sömuleiðis bentu þau á að stórar vindmyllur myndu breyta ásýnd landslagsins til muna og að svo miklar framkvæmdir líkt og fylgja uppbyggingu vindorkuvera geti skapað ágreining milli ólíkra hagsmuna og haft áhrif á samfélagslega sátt á svæðinu.
Landvernd vill staldra við
Þó að fegurðarskyn vindorkuvera megi ræða til lengdar þarf að fylgjast grannt með áhrifum þess á umhverfið. Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, segir í skriflegu svari til blaðsins að Landvernd hvetji stjórnvöld til þess að staldra við og meta reynslu af Vaðölduvirkjun þar sem ekki sé sátt um vindorkuiðnað í landinu. „Af hverju eru Garpsdalur, Hnotasteinn, Langanesbyggð, Mosfellsheiði, Grjótháls, Hrútmúlavirkjun, auk Blöndu og fleiri, öll í ferli ef aðeins á að leyfa vindorku á örfáum stöðum? Hvað eru örfáir staðir í huga stjórnvalda?“
Björg bendir á að áhrif 200 metra hárra túrbína og stærri hafi allt að 45 km sjónmengunaráhrif. Í Vaðöldu eru túrbínurnar 150 metra háar og sjást víða af hálendinu þegar helmingur er risinn. „Útfærsla á vindorku innan við 10 MW virðist nokkuð valfrjáls meðal sveitarfélaga, hvað verður þá um örfáu staðina, en vindorka undir 10 MW virðist eiga að leyfa í allt að 100 m hæð. Það þarf mótvægisorku með nýjum vatnsaflsvirkjunum, hver er framtíðarsýnin um það? Á Landsvirkjun að útvega hana alla?“ spyr Björg.
„Byggja þarf á varúðarsjónarmiðum, skýrum og gagnsæjum forsendum um áhrif á náttúru og raforkukerfi. Landvernd vill herða kröfur um gögn og kerfisgreiningu (jafnvægisafl, flutningskerfi og kostnað), tryggja skýrari vernd lykilbúsvæða, skilgreina „raskað svæði“ og skýra vernd allra þeirra svæða sem ekki á að leggja undir vindorku“.
Á vef Stjórnarráðsins kemur fram að með þessum lögum séu í fyrsta sinn settar heildstæðar reglur um vindorkunýtingu á Íslandi í þeim tilgangi að stuðla að umhverfisvernd, hlusta á vilja nærsamfélaga og tryggja hagkvæma uppbyggingu raforkuflutningskerfisins.
Björg spyr hvar það sé sýnt fram á að það sé umhverfisaðgerð fyrir Ísland, sem hefur nú þegar úr tveimur stöðugum orkugjöfum að velja, þ.e. vatnsafli og jarðvarma, að fórna íslenskri náttúru undir vindorkuver víða um land. „Aukin orkunotkun fyrir gagnaver og aðra stóriðju er ekki umhverfisaðgerð og á ekki að rugla saman við útfösun jarðefnaeldsneytis.“
Hvernig er fylgst með áhrifum á fuglalíf?
Í nýrri grein laganna, 10. gr., sem bættist við með frumvarpinu, er tekið fram að horfa skal sérstaklega til þess „hvort virkjunarhugmynd hafi áhrif á alþjóðlega mikilvæg fuglasvæði, farleiðir fugla og búsvæði, íbúa nærumhverfis, óbyggð víðerni og ásýnd lands og landslag“.
Í svari ráðuneytisins við fyrirspurn blaðsins hvernig áhrif á fuglalíf verði metin kemur fram að Náttúrustofa Norðausturlands hafi gert rannsókn árið 2019 til að meta áflugsáhættu og möguleg afföll fugla. Þar kemur m.a. fram að áhrifin hafi verið metin með því að kanna umferð fugla við Sultartangastíflu og gert hafi verið nýtt mat á áflugshættu miðað við endurhönnun virkjunarsvæðisins. Ratsjá var keyrð í lóðréttri stöðu og tölva safnaði sjálfvirkt gögnum um umferðartíðni og flughæð fugla á átta mánaða tímabili.
Í rannsókninni, sem var gerð yfir 7 mánaða tímabil, var áætlað að mest afföll yrðu af heiðagæs en minnst af álft. Þó yrðu afföll ekki í svo miklu magni að það teljist hafa áhrif á stofnstærð. Á þessu tímabili voru afföllin mest í júní en reikna má með því að þau yrði mismikil eftir mánuðum. Í lok rannsóknarinnar er tekið fram að mikilvægt sé að áhættumatið sem hún dragi upp verði sannreynt með vel útfærðum vöktunarrannsóknum.
Í svari Landsvirkjunar til blaðsins kemur fram að starfsleyfi Vaðölduvers fylgi krafa um að fylgst verði með hugsanlegum fugladauða á svæðinu. Utanaðkomandi ráðgjafi mun sinna eftirlitinu. Talning og leit látinna fugla mun fara fram með þeim hætti að gengið er eftir fyrir fram ákveðnum sniðum í kringum hverja vindmyllu. Í svari Landsvirkjunar kemur einnig fram að fyrr á árinu styrkti fyrirtækið þróunarverkefni hundaþjálfara þar sem kannað er hvort hægt sé að nota hunda til að finna hugsanleg fuglahræ við vindmyllur.
Vöktuninni verður skipt í tvö tímabil. Fyrra tímabilið næði til far- og umferðarflugs að vori og umferðarflugs á varptíma, frá mars til júlí, á meðan að seinna tímabilið væri yfir aðaltíma far- og umferðarflugs að hausti, frá ágúst til október. Vöktunin mun hefjast í mars á næsta ári.
