Samtök sveitarfélaga í landbúnaði stofnuð
Formaður stjórnar SLS var kjörinn Jón Björn Hákonarson, sveitarstjóri í Eyjafjarðarsveit. Hann segir að stofnfundurinn hafi gengið mjög vel, 26 sveitarfélög séu stofnaðilar samtakanna og fulltrúar fjögurra annarra áttu áheyrnarfulltrúa á stofnfundinum.
„Sveitarfélögin hafa til áramóta til að staðfesta aðild á sveitarstjórnarfundi og við gerum því ráð fyrir að stofnaðilar verði líklega 26–30 sveitarfélög og sýnir sá fjöldi vel að eftirspurn er eftir vettvangi sem þessum meðal sveitarfélaganna,“ segir Jón Björn.
Þátttaka í umræðu og mótun stefnu
Í samþykktum segir að sveitarfélögin innan SLS hafi beinna hagsmuna að gæta af landbúnaði, matvælaframleiðslu, landnýtingu og byggðaþróun. Þar segir einnig að tilgangurinn sé að standa vörð um hagsmuni aðildarsveitar- félaga og íbúa þeirra í öllum málum sem tengjast landbúnaði, matvælaframleiðslu, nýtingu lands og annarra náttúruauðlinda, sem og atvinnuuppbyggingu í dreifbýli.
Tilgangurinn er einnig samkvæmt samþykktum að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum aðildarsveitarfélaga, svo sem við mótun laga, reglugerða og opinberrar stefnu sem varðar landbúnað, landnýtingu, umhverfismál, matvælaframleiðslu og byggðaþróun, auk þess að stuðla að fræðslu og kynningu á þeim málaflokkum.
SLS er ætlað að taka þátt í umræðu og mótun opinberrar stefnu um rekstrarskilyrði landbúnaðar, nýtingu náttúruauðlinda, innviðamál í dreifbýli, byggðaþróun og aðra þætti sem hafa áhrif á afkomu og framtíð aðildarsveitarfélaga. Einnig að efla samstarf, upplýsingamiðlun og miðlun reynslu meðal aðildarsveitarfélaga um málefni landbúnaðar, byggðaþróunar og sjálfbærrar nýtingar lands og auðlinda. Þá mun SLS stuðla að öflugri matvælaframleiðslu, verðmætasköpun og atvinnu- uppbyggingu til hagsbóta fyrir aðildarsveitarfélög og íbúa þeirra.
Áhyggjur af tollflokkun á osti
Jón Björn segir að önnur helstu áherslumál verði í samræmi við tilgang samtakanna og muni stjórn vinna að þeim í framhaldi af stofnfundi. En mikilvægt sé í ljósi þjóðhagslegs mikilvægis landbúnaðar að sveitarfélögin taki þátt í umræðunni um stöðu hans, hvort sem litið er til atvinnulífs eða fæðuöryggis þjóðarinnar. Ekki síst sé mikilvægt að fara að umgangast fæðuöryggið og vinna að útfærslu þess en ekki bara ræða það.
Á stofnfundinum var samþykkt eftirfarandi ályktun: „Stofnfundur Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga lýsir yfir miklum áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum á tollflokkun osts með viðbættri jurtaolíu. Samtökin telja óeðlilegt að málið sé enn á ný tekið upp enda hefur það verið til umfjöllunar hjá stjórnvöldum og á dómstólum um árabil og gildandi framkvæmd verið við lýði þann tíma.
Samtökin leggja áherslu á að breytingin snúist ekki einungis um tollflokkun einstakrar vöru heldur geti haft víðtæk áhrif á samkeppnisstöðu innlendrar mjólkurframleiðslu og þá virðiskeðju sem byggir á störfum bænda, afurðavinnslu, flutningum og fjölbreyttri þjónustustarfsemi um land allt. Verulegur hluti íslenskrar mjólkurframleiðslu fer til ostagerðar og geta breytingarnar því haft áhrif langt út fyrir einstök bú og náð til fjölmargra sveitarfélaga þar sem landbúnaður er ein helsta undirstaða atvinnulífs. Að ógleymdu því að bændur hafa farið í miklar fjárfestingar í sinni framleiðslu á síðustu árum til að efla samkeppnishæfni sína og áðurnefndar breytingar geta því haft mikil áhrif á rekstrarhæfni þeirra búa. Rétt er að hafa í huga að um 12% af mjólkurframleiðslu hérlendis fara í framleiðslu á rifnum osti og mjólkursamlag á Egilsstöðum hefur sérhæft sig í framleiðslu á mozzarellaosti eingöngu þannig að um er að ræða mikil áhrif einnig á störf víða um land.
Samtökin minna jafnframt á að öflug innlend matvælaframleiðsla er ein af grunnforsendum fæðuöryggis þjóðarinnar. Á tímum aukinnar óvissu í alþjóðamálum er mikilvægt að stjórnvöld taki ákvarðanir sem styðja við innlenda framleiðslugetu og tryggja að landið búi áfram yfir sterkum innviðum til matvælaframleiðslu.
„Stofnfundur Samtaka land- búnaðarsveitarfélaga skorar því á Alþingi og ríkisstjórn að falla frá fyrirhuguðum breytingum og tryggja að við mat á málinu verði tekið fullt tillit til áhrifa þess á fæðuöryggi, verðmætasköpun í landbúnaði og byggðafestu í landinu,“ segir í ályktuninni.
Ásamt Jóni Birni eru í aðalstjórn SLS þau Anton Kári Halldórsson, Rangárþingi eystra, Dagmar Ýr Stefánsdóttir, Múlaþingi, Högni Elfar Gylfason, Skagafirði og Unnur Brá Konráðsdóttir, Borgarbyggð.
