Ágangur álfta töluverður
Fréttir 22. október 2026

Ágangur álfta töluverður

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Íslenskir kornbændur glíma við sívaxandi álag vegna ágangs álfta sem setjast á akrana og éta kornið. Petrína Þórunn Jónsdóttir, bóndi á Þjórsárbrú í Árnessýslu, hefur kallað eftir raunhæfum lausnum við vandamálinu. Álftin hefur verið alfriðuð fuglategund síðan 1913.

Í gær birti Petrína bréf sem hún sendi Fuglavernd í síðustu viku og óskaði eftir því að Fuglavernd komi með beinum og raunhæfum hætti að lausn vandans. Í bréfinu segir jafnframt: „Við ræktum korn á um 400 hekturum og á hverjum tíma eru áætlaðar um 5.000 álftir á ræktunarsvæðinu.“ Þær gangi á óþreskta akrana og éti kornið. Vegna mikilla rigninga hefur ekki tekist að þreskja kornið. Hún spyr hversu mikið tap sé of mikið.

Hefðbundnar fælingaraðferðir ekki virkað

Petrína segir að bændur hafi reynt margar aðferðir til að fæla álftirnar af ökrunum. Þar má nefna hljóðfælur, flugdreka, laserfælur, dróna, reglulegan akstur meðfram ökrunum, fána og geisladiska sem endurkasta ljósi, hefðbundnar fuglahræður og tálbeitu akra. En ekkert hafi virkað með viðunandi hætti.

Petrína leggur til í bréfinu til Fuglaverndar að Fuglavernd útvegi 40 sjálfboðaliða til að sinna samfelldri fuglagæslu allan sólarhringinn á meðan uppskeran sé í hættu. „Við teljum að um 40 manna hópur, sem skiptist á vöktum, sé raunhæf leið til að halda uppi stöðugri viðveru á svo stóru svæði. Þessi aðstoð þyrfti að standa yfir þar til okkur gefst færi á að ljúka þreskingu.“

Fuglavernd hefur lagst gegn því að skotveiðar verði heimilaðar á álftum og lagt áherslu á að nota fremur fælingaraðferðir. Petrína segir fælingaraðferðirnar ekki virka og tjón kornbænda sé töluvert.

Hversu mikið tap er of mikið?

Í færslu á Facebook spyr Petrína einnig hversu mikið megi taka af afrakstri vinnu annarra áður en það verði vandamál. „Þarf bóndi að vera kominn á hausinn áður en það telst alvarlegt að friðaðir fuglar éti uppskeruna hans?“ spyr Petrína. Hún bendir á að flestum þætti það óásættanlegt að búa við 10-15% tap á launum sínum mánaðarlega.

„Við sáum í akrana, berum á þá, sinnum þeim, fjárfestum í vélum og tækjum og leggjum á okkur ómælda vinnu í von um að uppskera afraksturinn. Svo koma þúsundir friðaðra fugla og éta það sem við höfum ræktað.“ Fælingaraðferðir hafi ekki virkað og fuglarnir færi sig einfaldlega yfir á næsta akur og valdi tjóni þar. „Við höfum sannarlega ekki efni á að missa neitt af uppskerunni. Hver einasti hektari kostar peninga, hver einasta vinnustund kostar og hvert einasta kíló af korni skiptir máli. Þetta er ekki einhver afgangur sem við getum látið af hendi án afleiðinga. Þetta er afrakstur vinnunnar okkar, fjárfestingarinnar og afkoma búanna. Ég geri mér fulla grein fyrir mikilvægi fuglaverndar. En verndun einnar tegundar getur ekki þýtt að einhver annar eigi skilyrðislaust að bera allan kostnaðinn af henni.“

Petrína kallar eftir svörum frá Fuglavernd. „Það hlýtur að mega ræða þessi mál án þess að gera lítið úr áhyggjum þeirra sem verða fyrir tjóninu.“ Þetta sé ekki spurning um hvort bændur hafi efni á að missa uppskeruna. Tjónið sé ekki réttlætanlegt. „Spurningin er ekki bara hversu mikið við þolum að missa. Spurningin er hvers vegna við eigum yfirhöfuð að þurfa að sætta okkur við að missa það sem við höfum sjálf unnið fyrir.“

Geymdu korn í jarðgöngum
Fréttir 22. október 2026

Geymdu korn í jarðgöngum

Bændur í Suður-Þingeyjarsýslu brugðu á það ráð að keyra vagna með nýþresktu bygg...

Samtök sveitarfélaga í landbúnaði stofnuð
Fréttir 22. október 2026

Samtök sveitarfélaga í landbúnaði stofnuð

Formaður stjórnar SLS var kjörinn Jón Björn Hákonarson, sveitarstjóri í Eyjafjar...

Ágangur álfta töluverður
Fréttir 22. október 2026

Ágangur álfta töluverður

Íslenskir kornbændur glíma við sívaxandi álag vegna ágangs álfta sem setjast á a...

Ljósmyndakeppni hjá Skógræktarfélagi Íslands
Fréttir 19. október 2026

Ljósmyndakeppni hjá Skógræktarfélagi Íslands

Skógræktarfélag Íslands efnir til ljósmyndakeppni undir þemanu „Skógurinn að vet...

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...