Ungir vinna Haustmótið
Haustmót Taflfélags Reykjavíkur kláraðist í síðustu viku með öruggum sigri Jósefs Omarssonar. Jósef, sem er 15 ára, vann A-flokk mótsins mjög örugglega með 8½ vinning eftir skákirnar 9. Eini punkturinn sem hann missti niður var jafntefli gegn greinarhöfundi! Sú skák var í járnum mestallan tímann. Jósef tefldi gríðarlega vel í mótinu og gerði fá mistök. Reyndar hélt ég að nú væri tækifærið mitt til að verða skákmeistari TR, en ekki í ár, Jósef var óstöðvandi! Eftir mótið rýfur hann 2200 stiga múrinn, en hann hækkar um 132 stig eftir árangurinn. Jósef er í hópi þeirra yngstu sem hafa orðið skákmeistarar TR, og þá sérstaklega þeirra sem hafa unnið A-flokkinn, það þarf reyndar að skoða hvort hann hafi slegið það met. Bárður Örn Birkisson var vinningi á eftir Jósef í öðru sæti, greinarhöfundur þriðji með sex vinninga. Í A-flokki tefldu tíu skákmenn allir við alla.
Aðeins einn lokaður flokkur var í mótinu í ár, en opni flokkurinn var vel skipaður ungum skákmönnum í bland við eldri og reynslumeiri. Sigurvegari flokksins hefur þó varla verið á bingóspjaldi margra. Það var hinn átta ára gamli (!) Helgi Fannar Óðinsson sem vann ofan á það ótrúlega öruggan sigur. Helgi var búinn að vinna flokkinn fyrir síðustu umferð, slíkir voru yfirburðir hans! Í opna flokknum voru tefldar níu umferðir eftir svissneska kerfinu og var Helgi nr. 16 í byrjunarröð (starting rank) af 27 keppendum. Það voru því ungir sigrar á Haustmóti TR 2026!
Ólympíuskákmótið er hafið og er árangur íslensku liðanna nokkurn veginn á pari. Fjallað er um mótið á skák.is. Reyndar hafa líka Facebook-færslur Illuga Jökulssonar um mótið vakið nokkra lukku. Þegar greinin er skrifuð er mótið nýbyrjað, en því verður gert betri skil í næsta pistli. Landslið Íslands í opnum flokki er númer 48 í byrjunarröð af 206 landsliðum. Í kvennaflokki er lið Íslands númer 58 af 189. Auðvitað er það markmið beggja liða, í það minnsta, að enda fyrir ofan byrjunarröðina!
Ef lesendur Bændablaðsins luma á áhugaverðum skákum geta þeir haft samband.
Umsjón: Gauti Páll Jónsson
gauti.pj[hjá]hotmail.com
