Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 24. september 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn finnur fyrir miklum léttleika í vikunni og fram undan eru áhugaverðir tímar. Samskipti við aðra ganga einstaklega vel og í nánum samböndum er gott að nýta þetta flæði til að dýpka tengslin, ræða málin af einlægni. Fyrir þá sem eru að leita að nýjum kynnum gæti óvænt spjall kveikt neista sem vert er að skoða nánar. Happatölur: 4, 17, 29.

Fiskarnir þurfa að huga að fjárútlátum þessa dagana og sýna smá nægjusemi aldrei þessu vant. Nú er frábær tími til að endurskoða þetta svolítið og skapa rými fyrir mikilvægari markmið sem munu veita meiri ánægju þegar fram líða stundir. Eitthvað vilja stjörnurnar benda á að ástarmálin verða í brennidepli – að lengi leynist líf í litlum blossa. Happatölur: 8, 22, 31.

Hrúturinn upplifir mikla orku og vellíðan í líkamanum þessa vikuna. Það er eins og þreytan sem hefur setið í honum sé loks að víkja fyrir nýjum krafti og því kjörið að prófa eitthvað æsilegt sem kemur blóðinu á hreyfingu. Vert er að taka fram að þeir sem heita Hilmar þurfa þó að hafa hemil á sér, en annars munu smágerðar verur setjast ofan á þá og þeir munu sig ekki geta hrært. Happatölur: 11, 19, 44.

Nautið stendur frammi fyrir skapandi áskorunum og þarf að treysta eigin getu og trú á sjálft sig. Hugmyndir sem hafa verið í gerjun lengi geta loksins fengið brautargengi ef þær eru kynntar af yfirvegun. Þetta er vika framfara og viðurkenningar fyrir vel unnin störf. Áfram nautið! Happatölur: 3, 25, 38.

Tvíburarnir, sér að óvörum sjá lífið allt í einu í nýju ljósi og velta fyrir sér stóru spurningunum. Því má skoða hvert stefnan er tekin og hvort hversdagurinn endurspegli það sem raunverulega skiptir máli. Gamlar venjur sem þjóna ekki lengur neinum tilgangi ættu að fjúka til að gera pláss fyrir ný ævintýri. Andlegt jafnvægi er lykillinn að árangri þessa dagana. Happatölur: 14, 27, 49.

Krabbinn má eiga von á að finna eldheitar tilfinningar í hjartanu, já honum að óvörum. Einhleypir gætu fundið fyrir sterkum áhuga frá manneskju sem þeir hafa þekkt lengi en aldrei leyft sér að líta hýru auga. Yfirhöfuð er krabbanum ráðlagt að leyfa hjartanu að ráða för og vera óhræddur við framhaldið. Happatölur: 7, 16, 33.

Ljónið upplifir dásamlegt jafnvægi í tilverunni en nú fer að ganga í garð mikil sátt með það hvernig hlutirnir hafa þróast og framtíðin lítur bjartari út en oft áður. Samband við hina ýmsu félaga dýpkar og hafa skal í huga að mikilvægt er að þiggja öll boð og tækifæri til samveru sem bjóðast, því þau munu hafa langvarandi áhrif. Happatölur: 6, 26, 42.

Meyjan þarf að huga vel að hvíldinni og passa að ofgera sér ekki. Það að taka sér stuttar pásur yfir daginn til að anda djúpt getur gert kraftaverk fyrir heilsuna, einnig getur samvera með ástvinum hjálpað til við að núllstilla kerfið. Heilsan er dýrmætasta eignin og á skilið alla þá umhyggju sem hægt er að veita, ekki síst í eigin garð. Happatölur: 9, 13, 30.

Vogin blómstrar í vinnu eða skóla og finnur fyrir mikilli hvatningu til að klára erfið verkefni. Leiðtogahæfileikar koma skýrt fram og tekið verður eftir þeim metnaði sem vogin leggur í vinnuna. Vogin þarf að muna að það er mikilvægt að fagna litlu sigrunum á leiðinni. Happatölur: 2, 18, 35.

Sporðdrekinn sér fram á jákvæðar breytingar í fjármálum. Þetta gæti þýtt að gamalt lán greiðist upp eða að samningar náist sem hafa verið í lausu lofti. Það er skynsamlegt að skoða fjárfestingar sem geta borið ávöxt síðar og komið sporðdrekanum skemmtilega á óvart ... þegar hann hefur steingleymt þeim. Happatölur: 5, 21, 40.

Bogmaðurinn finnur fyrir óvanalega mikilli ástríðu í nánum samböndum og skal á móti gefa af sér af örlæti. Einhleypir bogmenn ættu að vera vel vakandi, því ástin getur leynst á óvæntustu stöðum, jafnvel í matvörubúðinni. Opið hugarfar og bros á vör munu laða að rétta fólkið á réttum tíma. Happatölur: 1, 15, 28.

Steingeitin þarf að sýna ákveðna varfærni í eyðslu en getur jafnframt vænst góðs árangurs í viðskiptum. Nú er gott að endurskoða samninga og tryggingar til að athuga hvort hægt sé að spara einhverjar krónur. Þolinmæði mun skila sér í betri kjörum og meira öryggi þegar líður á mánuðinn, svo nú er bara að anda djúpt en ekki blása eldi ... Happatölur: 12, 24, 37.

Skylt efni: stjörnuspá

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 8. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin má eiga von á, nú með nýju tungli, að reynt verði á samskipta- og/eða sams...

Ungir vinna Haustmótið
Líf og starf 7. október 2026

Ungir vinna Haustmótið

Haustmót Taflfélags Reykjavíkur kláraðist í síðustu viku með öruggum sigri Jósef...

Ásaspurning – en hvað er tromp?
Líf og starf 7. október 2026

Ásaspurning – en hvað er tromp?

Þegar ég lærði bridds fyrir hálfri öld voru ásarnir í spilinu bara fjórir. Og of...

Vönduð óþekkt
Líf og starf 6. október 2026

Vönduð óþekkt

Haustið er mætt og það þýðir að nú er kominn tími til að stokka aðeins upp í fat...

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.
Líf og starf 6. október 2026

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.

Hér er lausnin á vísnagátunni sem birtisti í 17. tölublaði Bændablaðsins.

Hugrekki persónulegrar tjáningar
Líf og starf 6. október 2026

Hugrekki persónulegrar tjáningar

Safnasafnið, vel kynnt höfuðsafn íslenskrar alþýðulistar, hefur um áraraðir unni...

Horfinn er séra Oddur
Líf og starf 6. október 2026

Horfinn er séra Oddur

Sveinn Pálsson, náttúrufræðingur og læknir, hélt dagbók öll sín fullorðinsár og ...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 24. september 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin blómstrar í vinnu eða skóla og finnur fyrir mikilli hvatningu til að klára...