Fékk nafnið Vafi
– Átti að kasta í júlí en folaldið kom í september
Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þær kasti á haustin telst örugglega sjaldgæft. Það gerðist þó 23. september síðastliðinn þegar hryssan Maístjarna, eða Mæja eins og hún er alltaf kölluð, kastaði fallega bleikum hesti.
Mæja býr á bænum Fagurhóls- brekku rétt utan við Flúðir en þau Hinrik Þór Sigurðsson og Elísabet Eir Garðars- dóttir keyptu jörðina fyrir tveimur árum og ætla að byggja þar upp myndarlega hestaaðstöðu.
Þau eiga fjögur börn og eru með fyrirtæki sem býður upp á reiðkennslu, þjálfun, tamningar, járningar, fyrirlestra og uppeldi á unghestum ásamt því að reka litla búð og vefverslun með hestavörur. En saga Mæju, hver er hún?
23 ára gömul hryssa
„Maístjarna frá Lambanesi er 23 vetra gömul hryssa undan mikilli gæðinga- móður sem hét Sveifla frá Lambanesi og Þyrni frá Þóroddsstöðum sem hlotið hefur fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi. Hún var sýnd í kynbótadómi 4 vetra gömul og fór svo fljótlega í ræktun hjá eiganda sínum, Aðalsteini Sæmundssyni.
Síðustu fjögur árin hefur Maístjarna verið í fóstri hjá okkur á Fagurhólsbrekku og höfum við verið svo heppin að hafa fengið að halda henni undir stóðhesta síðustu þrjú árin. Maístjarna hefur verið að gefa mjög góð hross, hágeng og fasmikil. Mæja er mikill leiðtogi í stóðinu enda alveg stórsérstakur og ákveðinn karakter og afkvæmin hennar erfa þennan sérstaka persónuleika.
Mæja er mikil og verndandi mamma enda er hún þrælvön, því hún var að eignast sitt fjórtánda folald í ár,“ segir Elísabet Eir.
Stefnumót við Skjóna
Mæja fór í fyrrasumar á stefnumót við stóðhestinn Skjóna frá Skálakoti. Eftir sumarið var hún síðan með staðfest fyl með Skjóna en samkvæmt útreikningum var von á folaldi í byrjun júlí í sumar en ekkert gerðist.
„Við vorum á þessum tíma á leiðinni á landsmótið á Hólum og því heilmikið stress í gangi hvenær folaldið kæmi. Hópur fólks var því virkjaður til þess að fylgjast með henni og huga að henni kvölds og morgna. Það má því segja að biðin langa hafi hafist í byrjun júlí og síðan orðið eins og atriði í áramóta- skaupinu enda var orðið vel pínlegt á tímabili að folaldið kæmi aldrei.
Þegar heim var komið eftir 10 daga ferð fyrir norðan fórum við mörgum sinnum á dag, alltaf jafn bjartsýn um að það væri komið folald í hagann hjá okkur. Dagarnir, vikurnar og svo mánuðirnir liðu án þess að folaldið léti sjá sig,“ segir Elísabet Eir hlæjandi.
Missti staðfest fyl
Elísabet segir að það hafi alltaf verið greinilegt að hryssan væri fylfull en í kringum verslunarmannahelgina var hún komin það langt yfir áætlaðan köstunartíma að þau fóru að átta sig almennilega á að það væri nú ekki allt eins og það ætti að vera.
„Við ráðfærðum okkur við dýralækna sem gátu eðlilega lítið sagt annað en að það færi nú líklega bara að koma, en eftir því sem dagarnir liðu voru nú flestir orðnir sammála um það að Maístjarna hefði líklega misst staðfesta fylið sitt og fyljast síðan aftur. Þá var sú óþægilega staða komin upp að við vissum einfaldlega ekkert hvenær hún myndi kasta. Hún var mjög stór og mikil þarna strax í byrjun júlí, við vorum því viss hvern einasta dag sem við mættum án þess að sjá folald að folaldið hlyti nú að koma þá á morgun. Svoleiðis gekk þetta í þrjá mánuði,“ segir Elísabet Eir.
Fagur bleikskjóttur hestur
Fagur bleikskjóttur hestur kom svo í heiminn 23. september og gekk köstunin vel. Hann hefur fengið nafnið Vafi, sem er vel við hæfi í tengslum við alla þessa vafasömu köstun hjá Mæju.
„Eftir öll þessi vafamál um tilurð þessa litla hests, fannst okkur nafnið Vafi passa honum einstaklega vel og grípa aðeins utan um sögu hans. Hér er því fæddur Vafi frá Fagurhólsbrekku, bleikskjóttur, gullfallegur og algjörlega biðarinnar virði. Maístjörnu og Vafa heilsast mjög vel og hann dafnar virkilega vel þó að seinfæddur sé.
Við munum fylgjast vel með tíðarfarinu og það er alveg viðbúið að þau þurfi mögulega að koma aðeins inn á hús þegar tíðin verður verri,“ segir Elísabet Eir, hæstánægð með hvað sagan endaði vel.
