Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynjanna sem voru metin. Í rannsókninni sem var birt í vísindaritinu Science Direct eru eiginleikar 14 mismunandi hreinræktaðra hestakynja skoðaðir.
Miklir reiðhestakostir íslenska hestsins hafa verið staðfestir í alþjóðlegri rannsókn. Íslenski hesturinn var metinn öruggasta kynið til útreiða, ólíklegastur til að sýna kergju og meðal annars auðveldast að stöðva.
Stofninn hefur um aldir verið einangraður og ræktaður sem traustur fararskjóti í þeim krefjandi aðstæðum sem eru á Íslandi. Samkvæmt rannsókninni sýnir íslenski hesturinn einnig mest hugrekki gagnvart nýjum hlutum og í samskiptum við önnur dýr og langmesta þolið fyrir líkamlegri snertingu.
Ræktunarstarf hófst snemma og miðaði ávallt að traustum reiðhestum. Þessir þættir eru taldir veigamiklir í ræktun og hafa skilað þessum góða árangri. Rannsakendur álykta um hegðunareiginleika og að íslenski hesturinn hafi þá sem flestir reiðmenn sækjast eftir.
Rannsókninni er ætlað að meta hvort almennar hugmyndir fólks um skapgerð ólíkra hestakynja eigi við rök að styðjast. Hún byggir á alþjóðlegum spurningalista og svörum frá eigendum 1.635 hreinræktaðra hrossa. Eiðfaxi greindi frá.
