Kuldatíð var í sumar og uppskeran mun minni.
Kuldatíð var í sumar og uppskeran mun minni.
Mynd / Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir
Fréttir 13. október 2026

Koma öðrum flokki ekki í verð

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Gulræturnar eru á leið á markað en sökum tíðarfars verður hlutfall annars flokks hærra en vant er. Jóhannes Ingi Árnason, bóndi hjá Akri Organic í Þistilfirði, gerir ráð fyrir að þau þurfi að henda fleiri hundruð kílóum, finnist ekki fleiri kaupendur.

Akur Organic framleiða lífrænt ræktaðar gulrætur og ákváðu að prófa sig áfram í kálrækt í sumar. Sumarið var svalt og blautt í Þistilfirðinum og uppskera mun minni en í fyrra. Ingi segir þau líka hafa verið í basli með að selja annan flokkinn síðustu ár og keppi við innflutning á rófum.

Sjá fram á að þurfa að henda miklu

„Við erum búin að vera að taka upp og þvo og erum með óseld 600 kg af öðrum flokki núna inni á lager sem ég held að við séum að fara að henda,“ segir Ingi. Hann segir þau hafa verið í basli með að koma öðrum flokknum í verð. Í honum eru minni gulrætur, þær sem hafa brotnað í vinnslunni eða eru til dæmis kræklóttar. Bragðgæðin og næringargildið eru hin sömu og þær smærri oft enn sætari á bragðið, sem telst kostur.

„Þegar við byrjuðum á sínum tíma, settum við það sem skilyrði þegar við sömdum við Sölufélagið að þeir myndu taka við öllu frá okkur, líka öðrum flokknum. Þeir notuðu hann fyrst í vinnslu, en drógu svo í land og það endaði með því að við fórum að selja hann sem safagulrætur. Það fór vel af stað en svo datt botninn úr því.“

„Það verður að segjast að nú með ójafna uppskeru, þá sjáum við fram á að þurfa að henda öðrum flokknum. Við höfum hvorki aðstöðu né búnað til að geyma eða vinna þetta.“

Samkeppni við innfluttar rófur

Akur Organic selja hluta af annars flokks uppskeru af gulrótum og rófum til mötuneyta og í fjáraflanir, í vinnslu til annarra lífrænna framleiðenda á Íslandi eins og Móður Jarðar, Syðra Holts og Breiðagerðis. En fleiri kaupendur þarf til að selja alla uppskeruna.

„Við höfum líka oft verið í basli með að selja rófurnar,“ segir Ingi. „Þegar gulrótarvertíðin er búin, þá höfum við oft verið með 2–3 tonn af rófum. Það hefur verið í janúar eða febrúar og við höfum oft farið í átak og haft samband við aðila sem matbúa fyrir þorrablót til að reyna að selja þær, en það hefur gengið illa. Þessi fyrirtæki virðast öll kaupa forunna vöru, meira og minna innflutta held ég, því miður.“

Tilraunir í kálrækt

Í vor ákváðu bændur Akurs Organic að hefja tilraunir í kálrækt. „Við settum niður tvö afbrigði af grænkáli, annað grænt og hitt rauð-svartleitt og líka hnúðkál,“ segir Ingi. Hnúðkálið hafði vaxið misvel en grænkálið mjög vel.

Ingi segir þau hafa sáð í 2–300 fermetra til að prófa og notað sama áburð og á gulræturnar. Allur áburður Akurs Organic kemur frá fiskimjölsverksmiðjunni á Þórshöfn sem er skammt frá. Loðnumjöl, sem er lífrænt vottaður áburður og hefur gefist einstaklega vel.

Kuldatíð og minni uppskera

„Við erum að sjá minni uppskeru og ójafnari en við erum vön. Ég er ekki bjartsýnn úr þessu að það komi einhver kraftur í vöxtinn. Til þess þyrftum við verulega hlýja viku til tíu daga.“

„Tíðarfarið er búið að vera djöfullegt, eiginlegan allan ræktunartímann. Lítið var um sólardaga og 12°C voru góðu dagarnir.“

Ræktunin er eins norðarlega og hægt er að komast á Íslandi, við Langanes í Þistilfirði. Ingi útilokar ekki að þau muni halda káltilraunum áfram næsta sumar, en vonast eftir að koma uppskeru sumarsins í verð.

Akur Organic tók þátt í lífræna deginum í ár en í þetta skiptið var hann haldinn í Kringlunni. Vel tókst til, að sögn Ólínu Ingibjargar Jóhannesdóttur, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, sem stóð vaktina, og var lífrænni framleiðslu sýndur mikill áhugi sem og lífrænu gulrótunum sem kláruðust fljótt. Nálgast má fyrsta flokk gulróta Akurs Organic í öllum helstu matvöruverslunum landsins á komandi tíð.

Skylt efni: kalrækt

Skreiðarhjallur í Torino
Fréttir 13. október 2026

Skreiðarhjallur í Torino

„Við höfðum mikið að segja, tókum okkar pláss og vöktum gríðarlega athygli,“ seg...

Meiri lægðagangur í NV-Evrópu
Fréttir 13. október 2026

Meiri lægðagangur í NV-Evrópu

Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands segir of...

Koma öðrum flokki ekki í verð
Fréttir 13. október 2026

Koma öðrum flokki ekki í verð

Gulræturnar eru á leið á markað en sökum tíðarfars verður hlutfall annars flokks...

Djúp lægð nálgast landið
Fréttir 12. október 2026

Djúp lægð nálgast landið

Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Bliku, varar við djúpri lægð sem nálgas...

Ráðleggingar frá grasalækninum
Fréttir 12. október 2026

Ráðleggingar frá grasalækninum

Fjölmargar jurtir hafa lækningamátt og hafa verið notaðar í þúsundir ára. Í flen...

Vel sótt Landbúnaðarsýning
Fréttir 12. október 2026

Vel sótt Landbúnaðarsýning

Sýningin Íslenskur Landbúnaður fór fram í Laugardalshöllinni síðustu helgi, 9.-1...

Íslensk klassík með amerískan hatt
Fréttir 12. október 2026

Íslensk klassík með amerískan hatt

Karamellusnúðurinn sem fæst í hverju bakaríi og nær hverri kjörbúð er klassískur...

Viðarkyndistöð sett upp á Reyðarfirði
Fréttir 12. október 2026

Viðarkyndistöð sett upp á Reyðarfirði

Uppsetning nýrrar kyndistöðvar stendur nú yfir á Reyðarfirði. Henni er ætlað að ...