Viðarkyndistöð sett upp á Reyðarfirði
Uppsetning nýrrar kyndistöðvar stendur nú yfir á Reyðarfirði. Henni er ætlað að kynda mannvirki tengd skóla- og íþróttastarfi. Fyrirtækið Tandraorka á Eskifirði sér um framkvæmdina.
Uppsetning er nú í fullum gangi og Tandraorka, dótturfyrirtæki Tandrabrettis, hefur gert 25 ára samning við sveitarfélagið um rekstur hennar. Fyrirtækið framleiðir viðarperlur úr grisjunartimbri og notuðum vörubrettum og hefur sérinnflutt búnað frá Austurríki til að knýja stöðina.
Fullkomin kyndistöð
„Við erum núna að setja upp mjög fullkomna kyndistöð, sem á að kynda öll skólahúsin, öll íþróttamannvirki og fótboltahúsið, sem hefur ekki verið kynt fram til þessa,“ segir Einar Birgir Kristjánsson, framkvæmdastjóri Tandraorku, dótturfyrirtækis Tandrabrettis á Eskifirði.
Á Reyðarfirði verður ein varmadæla hluti kyndistöðvarinnar. „Við erum í samvinnu við austurrískt fyrirtæki sem er gríðarlega framarlega í orkunni og notar varmadælur og viðarbrennslu saman,“ segir Einar. Hann segir þetta tvennt fara vel saman.
Góð lausn á köldum svæðum
Einar segir kyndingu með viðarperlum hentuga á köldum svæðum eins og Austurlandi. Hann segir gríðarlegt magn grisjunarviðar þegar falla til og eiga eftir að aukast á komandi árum.
Tandrabretti framleiðir viðarperlur úr grisjunarvið, sem að mestu er lerki á Austurlandi. Einar segir það feitara en annað timbur, og þar með orkuríkara og nýtast vel í kyndingu. Einar segir að úr kílói af lerkiperlum fáist fimm kílóvött af hita.
Hann segir viðarkyndingu geta verið góða viðbót til dæmis á Eskifirði þar sem hitastig og yfirborð borholunnar hefur verið að lækka, og geti lengt líftíma hennar. Sama gildi um Seyðisfjörð, en þar séu þegar lagnir í jörðu sem hægt er að nýta. Þar er nú kynt með rafmagni og olíu þegar þörf krefur, en samtal við sveitarfélagið um uppbyggingu hefur staðið yfir. „Við erum komnir með lausn fyrir Seyðisfjörð.“
