Íslensk klassík með amerískan hatt
Karamellusnúðurinn sem fæst í hverju bakaríi og nær hverri kjörbúð er klassískur sætur biti á íslenskum heimilum. Nýlega kom það til tals að karamelluglassúr margra snúða hafi ferðast yfir hafið áður en honum er smurt á snúðana og er í raun sérútbúinn vara af fyrirtæki í Bandaríkjunum.
Í septembermánuði gripu neytendur í tómt er þeir ætluðu að kaupa sér karamellusnúð eða kleinuhring. Ástæðan var landlægur skortur á karamelluglassúr. Vilhjálmur Þorláksson greindi frá þessu í viðtali á Vísi. Þar kom fram að karamellan sem notuð sé á flesta snúða og kleinuhringi sé sérútbúin hjá bandaríska framleiðandanum Dawn Foods og þarf því að vera send til landsins. Í svari frá Danól, heildsölunni sem sér um innflutninginn, kemur fram að karamelluglassúrinn hafi verið fluttur inn frá Bandaríkjunum í um fjóra áratugi. Bakarar um allt land nýta sér glassúrinn þar sem hann er hentugur, auk þess sem neytendur þekkja hann vel. Að jafnaði er farið í gegnum tæpan gám af karamellu á mánuði og því varð karamelluskortur þegar gám með nýrri sendingu seinkaði.
Íslensk karamella í Innri-Njarðvík
Sumir bakarar gera eigin karamellu, ekki gafst tími til að gera ítarlega úttekt á því hvaða bakarí eru sjálf í karamellugerð þó það hefði eflaust orðið bragðgóð rannsókn. Týnda bakaríið í Innri-Njarðvík var þó eitt þeirra bakaría sem nýtti tækifærið þegar karamelluumræðan fór af stað til þess að kynna eigin karamelluframleiðslu.
Elvar Hauksson, bakari og eigandi Týnda bakarísins, sagði í samtali við blaðið að þau geri karamellu á sína snúða sjálf. „Við höfum alltaf haft það að leiðarljósi að vinna allt sem við gerum frá grunni úr hráefni. Þetta er svona gamaldags „toffee“ karamella sem við búum til og í henni er bara rjómi, mjólk, glúkósi og sykur. Þetta er ekki eins og glassúrinn, hann er þynnri, okkar karamella er töluvert þykkari og einkennandi þannig að hún er ekki fyrir alla, sumum finnst hún of bragðsterk, en okkur fannst liggja fyrir að ef við ætlum að gera allt frá grunni þá þurfum við að gera karamelluna líka.“
Að sögn Elvars þurfa þau að gera um 12 kíló af karamellu á viku. „Það er miklu meira öryggi í að gera okkar eigin karamellu, það er alltaf til sykur á landinu og mjólkin er innlend og rjóminn líka, og við verðum að nota íslenskan rjóma, hann er svo feitur og góður, við höfum ekki fengið sömu niðurstöðu þegar við höfum prófað annan rjóma. Þá erum við ekki með nein litarefni eða neitt aukalegt.“ Elvar segist skilja vel að bakarar stóli á innfluttu karamelluna þar sem hún er hentug og það sérstaklega í stærri framleiðslu, en að þau hafi langað að fara aðra leið.
Litarefni sem skerða athygli
Matvörur sem innihalda litarefni eins og allúrarauðan (E129) og tartrasín (E102) þarf að merkja sérstaklega með þeim skilaboðum að efnin „geti haft neikvæð áhrif á athafnasemi og eftirtekt barna“. Frá árinu 2012 hafa þær reglur gilt að merkja þurfi ákveðin litarefni með þessum skilaboðum auk þess sem neytendastofnun hvatti framleiðendur til að skipta þeim út fyrir náttúruleg efni. Sumir hafa forðast karamellusnúðinn í gegnum tíðina vegna þess að E129 og E102 eru algeng í karamelluglassúr.
Í umfjöllun Vísis kom fram að glassúrinn hafi upphaflega verið þróaður fyrir bandarískan markað en svo hafi þurft að fjarlægja litarefni sem eru leyfð í Bandaríkjunum en ekki hérlendis. Ekki náðist í Vilhjálm né Gæðabakstur við gerð greinarinnar til að fá upplýsingar um það hvert umrætt litarefni hafi verið en í innihaldslýsingu karamellusnúðsins á vef Gæðabaksturs er ekki að finna nein þeirra litarefna sem þarf að merkja sérstaklega.
Neytendur þurfa þó ekki að forðast karamellusnúðinn. Margir framleiðendur hafa hætt að nota efnin eða skipt þeim út og verða neytendur því að lesa á pakkningarnar hverju sinni hvort karamellubakkelsið sem keypt sé innihaldi allúrarauðan eða tartarsín eða hvort hægt sé að sleikja karamellugljáða fingurna áhyggjulaust.
