Matfugl áformar að reisa hænsnabú við Kjalarnes.
Matfugl áformar að reisa hænsnabú við Kjalarnes.
Mynd / smh
Fréttir 12. október 2026

Áform um að reisa hænsnabú

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

– Í umsögnum birtast áhyggjur af mögulegum umhverfisáhrifum

Matfugl áformar að reisa nýtt hænsnabú á Tindstöðum á Kjalarnesi, annars vegar til uppeldis stofnfugla til framleiðslu á kjúklingakjöti og hins vegar til eldis stofnfugla til eggjaframleiðslu. Málið hefur legið í Skipulagsgátt til umsagnar og er beðið ákvörðunar um hvort þörf sé á að setja verkefnið í umhverfismat.

Tindstaðir eru í Reykjavík en á sveitarfélagsmörkum við Kjósarhrepp. Í áformunum er gert ráð fyrir að búið verði reist í tveimur áföngum með byggingu fjögurra nýrra hænsnahúsa. Heildarbyggingarmagn allra bygginga verður samtals 10 þúsund fermetrar. Í áætlunum Matfugls er gert ráð fyrir að 360–390 tonn af hænsnaskít falli til frá búinu á ári þegar búið er komið í fulla starfsemi samkvæmt fyrsta áfanga, með stæðum fyrir 28 þúsund stofnhænur. Í öðrum áfanga verður búið stækkað í 39.900 stæði og er áætlað að heildarmagn hænsnaskíts verði þá 520–560 tonn.

Gert er ráð fyrir að allur hænsnaskítur sem fellur til verði nýttur sem áburður á ræktað og óræktað land.

Áhyggjur af umhverfisáhrifum

Í umsögnum birtast áhyggjur af mögulegum umhverfisáhrifum, meðal annars vegna lyktarmengunar af þeim hænsnaskít sem fellur til og öðrum lífrænum úrgangi. Í niðurstöðum umsagnar Umhverfis- og orkustofnunar segir að mikilvægt sé að nánari grein verði gerð fyrir því hvernig söfnun, geymslu og fjarlægingu hænsnaskíts verður háttað og hvaða ráðstafanir verða gerðar til að lágmarka lyktarmengun frá starfseminni áður en ákvörðun um matsskyldu sé tekin.

Að því gefnu að fullnægjandi ráðstafanir verði gerðar til að koma í veg fyrir og draga úr mengun frá starfseminni telur stofnunin, með hliðsjón af umfangi, eðli og staðsetningu fyrirhugaðrar framkvæmdar, að framkvæmdin sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif. Að öðru leyti telur stofnunin ekki tilefni til að framkvæmdin verði háð mati á umhverfisáhrifum. „Sveinn Vilberg Jónsson, framkvæmdastjóri Matfugls, segir að reglur um umhverfismat séu nokkuð skýrar. Þar er miðað við bú sem eru með stæði fyrir 60.000 hænur. Því þarf búið að vera um 50% stærra en núverandi framtíðaráform segja til um. Þá má einnig geta þess að fyrirhuguð uppbygging mun ekki eiga sér stað öll í einu. Gert er ráð fyrir að fullreist bú í fyrsta áfanga rúmi 28.000 hænur. Það er ekki ólíklegt að þessi fyrsti áfangi verði reistur í 2–3 skrefum,“ segir Sveinn.

Hann segir að í kafla 3.2 í greinargerð Matfugls vegna matskyldutilkynningar sé fjallað um forsendur framkvæmdarinnar. Þar komi fram að annars vegar verði mokað úr hverju húsi á um 15 vikna fresti, þar sem uppeldi hænsna fer fram, og hins vegar á um 45 vikna fresti þar sem hús er innréttað fyrir varphænur.

Stærsti framleiðandi kjúklingakjöts

Matfugl er einn stærsti framleiðandi kjúklingakjöts hér á landi. Auk búsins á Tindstöðum er Matfugl með kjúklingabú á Móum á Kjalarnesi, að Hurðabaki í Svínadal, í Eskiholti í Borgarfirði, á Melavöllum á Kjalarnesi og Felli í Kjós. Auk þess rekur Matfugl stofnfuglabú á Þórustöðum II í Ölfusi.

Skilgreint hlutverk Matfugls er ræktun og eldi alifugla, slátrun þeirra og framleiðsla afurða unnum úr kjúklingakjöti til neytenda á Íslandi

Skylt efni: kjúklingabú | hænsnabu

Áform um að reisa hænsnabú
Fréttir 12. október 2026

Áform um að reisa hænsnabú

Matfugl áformar að reisa nýtt hænsnabú á Tindstöðum á Kjalarnesi, annars vegar t...

Átaksverkefni um endurheimt votlendis
Fréttir 9. október 2026

Átaksverkefni um endurheimt votlendis

Átaksverkefni um endurheimt votlendis á ríkisjörðum hófst formlega á föstudaginn...

Orkuver á þaki reiðhallarinnar
Fréttir 9. október 2026

Orkuver á þaki reiðhallarinnar

Á þaki reiðhallarinnar á Lýsuhóli á Snæfellsnesi hefur verið sett upp birtuorkuk...

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá
Fréttir 9. október 2026

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin í Laugardalshöll dagana 9.–11. október næ...

Allir básar uppbókaðir
Fréttir 9. október 2026

Allir básar uppbókaðir

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin 9.–11. október í Laugardalshöll. Þetta er...

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar
Fréttir 8. október 2026

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar

Flestir sem taka slátur hafa á undanförnum árum þurft að nota gervivambir eftir ...

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn
Fréttir 8. október 2026

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn

Mánudaginn 28. september skrifuðu Gundula Sharman, forseti FEIF, alþjóðasamtaka ...

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja
Fréttir 8. október 2026

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja

Ný reglugerð um merkingar og skráningar dýra var gefin út 14. september, en þar ...