Orkuver á þaki reiðhallarinnar
Á þaki reiðhallarinnar á Lýsuhóli á Snæfellsnesi hefur verið sett upp birtuorkukerfi með uppsett hámarksafl upp á 172 kílóvött, ásamt „snjallri orkugeymslu“ sem rúmar 253 kílóvattstundir.
Geir Sveinsson, framkvæmda stjóri Ljósorku, sem sá um búnað, hönnun og uppsetningu kerfisins, telur þetta vera stærsta birtuorkukerfi sem sett hefur verið upp á Íslandi til þessa.
Kerfið samanstendur af 340 sólarsellum og er tengt við stóra rafhlöðuorkugeymslu. Orkustýring kerfisins sér um að nýta framleidda orku eins vel og hægt er á staðnum, stýra hleðslu og afhleðslu rafhlaðna eftir framleiðslu og notkun og draga þannig úr þörf fyrir keypta orku frá dreifikerfinu.
Geir segir að verkefnið sé gott dæmi um hversu hratt möguleikar slíkra kerfa eru að þróast hér á landi – frá minni kerfum fyrir heimili og bú yfir í hundruð kílóvattstunda orkugeymslur og eigin raforkuframleiðslu af þessari stærðargráðu.
